Straumhvörf - 15.01.1943, Qupperneq 20
STRAUMHVÖRF
:X8
var hann til 12 ára aldurs. Bjarni
var dóttursonur Guðmundar Sche-
vings kaupmanns, en í föðurætt syst-
kinabarn við Jón Thoroddsen skáld.
Kona Bjarna var Hildur dóttir Bjarna
Thorarensen amtmanns. Meðal sona
þeirra var Páll Vídalín, sýslumaður
í Stykkishólmi.
Þegar Bjarni fékk fyrst sem barn
•að fara út í Flatey og heimsækja ætt-
fólk sitt, orti Einar fóstri hans þess-
.ar vísur:
Úti’ í Flatey afi þinn
er með sóma háan.
Blessaður litli Bjarni minn,
brátt færð þú að sjá hann.
Er þar frúin amma þín,
ört sem dyggðir prýða.
Sjá færð þú þá silkihlín,
■er sumarið kemur blíða.
Móður þinnar mætrar þar
munt þú einnig leita.
Biður hún þér blessunar
af buðlung englasveita.
Föður þinn ei færðu að sjá
— finnst það mæðustandið. —
Hann við smíðar hefur stjá
hér og þar um landið.
Veizlu held ég verði spjöll,
vart má slíku hamla,
þá hýr þig flytur hringaþöll
heim í kotið gamla.
'Víst munu þér og vera nær
— við það sorgin dvínar —
mettar dyggðum, mætar tvær
móðursystur þínar.
Vildi’ eg, Bjarni, vinur þinn,
vera þar þú stendur,
þá sykur, brauð og sætindin
seljast þér í hendur.
Kotið gamla, sem minnzt er á í
5. vísunni, er bærinn Svalbarð í Flat-
ey, en þar fæddist Bjarni. Móður-
systur Bjarna voru þær Hildur móðir
Davíðs Schevings læknis og Herdísar
Benedictsen.
Um Pétur Jónsson, systurson sinn;
orti Einar þessar vísur, þá er hann
kvæntist:
Pétur list og prýði ber,
prúður hristi geira.
Minnar systur-arfi er;
auðnan visti hann hjá sér.
Hamingjugróði hagfelldur
hjá þér staðar nemi,
ó, minn góði ættbróðir,
ungu fljóði nýgiftur.
Ungum klæðaeyði ég
óska þess af hjarta,
að þér þræði á allan veg
andleg gæði og líkamleg.
Séra Friðrik Jónsson á Stað á
Reykjanesi var góðvinur Einars í
Skáleyjum. Hann lézt af slysförum
sumafið 1839, og orti Einar vísu
þessa, er hann frétti lát hans:
Þegar ég stari að Staðarbæ,
sturlast brjóstið hrygga.