Straumhvörf - 15.01.1943, Side 23

Straumhvörf - 15.01.1943, Side 23
STRAUMHVÖRF 21 in víkja, en það eitt látið ráða, sem orð- ið gæti þjóðinni til heilla um ókomnar aldir. í stað þess komust flokkadrætt- irnir í algleyming. Ekkert mátti gera til þess að stöðva kapphlaupið um gullið; ekkert mátti gera til þess að stöðva dýrtíðina og verðbólguna. — Hagsmunamál flokkanna voru látin sitja í fyrirrúmi fyrir hagsmunamál- um þjóðarheildarinnar. Hinir svoköll- uðu „ábyrgu flokkar" gátu ekki kom- ið sér saman um lausn hinna mest að- kallandi vandamála þjóðarinnar. — Stjórnmálabaráttan var óbilgjörn og til ógagns fyrir alla. Öngþveitið sem af þessu leiddi, virðist hafa náð hámarki á því drottins ári 1942. Ár þetta var að mörgu leyti viðburða- ríkt, og er fram líða stundir, kann það að marka tímamót í sögu hinnar íslenzku þjóðar. Þess er skemmst að minnast, að í lok þessa árs fékk rík- isstjóri Islands utanflokkamann til þess að mynda stjórn, þegar þing- flokkarnir höfðu gefizt upp við stjórnarmyndun, hver af öðrum. Og er gamla árið hafði kvatt og var horf- ið inn í mistur aldanna, talaði ríkis- stjórinn á þessum örlagaríku tíma- mótum til þjóðarinnar á.öldum ljós- vakans. Margir munu hafa hlustað á ræðu ríkisstjóra og búizt við því, að hann ræddi hispurslaust um þau mik- ilvægu vandamál, er biðu úrlausnar hér á landi. En það er eigi unnt að tala svo að öllum líki, og sízt af öllu fyrir mann í æðsta sessi þjóðarinnar. Margir munu eflaust hafa orðið fyrir vonbrigðum, en margir munu hins- vegar hafa glaðzt í hjarta sínu yfir orðum ríkisstjóra. Þeir, sem einna helzt munu hafa orðið fyrir von- brigðum, eru þeir, sem gert hafa stjórnmálin að trúarbrögðum sínum. En sumir hverjir, er hlustuðu á ræðu ríkisstjóra, kunna að hafa hugsað eitthvað á þessa leið: „Þetta er gott og blessað, svo langt sem það nær, en það nær aðeins skammt. Á undan- förnum árum, og það þegar afkoma fjölmargra þegna þjóðfélagsins var sem allra bágbornust, þá var pré- dikað sýknt og heilagt af postulum hinna „pólitísku trúarbragða", að þrátt fyrir allt væru það ómetanleg réttindi, að fá að búa við málfrelsi og trúfrelsi, er teljast mikilvægir hyrningarsteinar lýðræðisins. En ef einhver lét sannfæringu sína í ljós, er fór í bága við réttlínustefnu hinna ýmsu flokka, gat hann átt á hættu að verða sviftur rétti sínum til að lifa sem frjáls og nýtur þegn í þjóðfélag- inu. Já, vér höfum haft nóg af fögr- um orðum um frelsi og réttlæti. Vér vitum, hvernig málfrelsið hefir verið notað. Það hefir verið notað til að rægja og svívirða póli- tíska andstæðinga og vekja hatur, úlfúð og öfund meðal þegna þjóðar- innar. Vér vitum einnig, hvernig trú- frelsið hefir verið notað. Menn hafa notað það til þess að rífast um dauð- an bókstaf, til að básúna trú sína á rétt hins sterka, og til þess að skop- ast að þeim, sem beygðu kné sín i lotningu fyrir einhverjum æðri mátt- arvöldum. Og kirkjan hefir ávallt lagt blessun sína yfir þá, sem náð hafa í stjórnartaumana, jafnvel þótt þessir menn kynnu ef til vill að verða fyrstir til að svíkja þjóð sína á örlagastund

x

Straumhvörf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Straumhvörf
https://timarit.is/publication/1092

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.