Straumhvörf - 15.01.1943, Qupperneq 25

Straumhvörf - 15.01.1943, Qupperneq 25
STRAUMHV ÖRF 23; þegar hann sá spólurokkinn: „Mikil eru verk guðs, en meiri eru mann- anna“. Sá, sem lætur í Ijós trú á al- mætti, er stjórni öllu lífi, getur átt von á að verða fyrir háðsglotti „menntaðra" manna, því að sá, sem þarf að styðjast við guðstrú á þess- ari vísinda- og tæknisöld, getur tæp- ast talizt algerlega „klár í perunni". Þetta er' ríkisstjóranum ljóst, því að hann er ekki brynjaður fyrir hnútu- köstum fremur en aðrir, en hann læt- ur sér á sama standa. Sýnir hann þar hugrekki, sem aðrir mættu taka sér til fyrirmyndar. Vel sé honum fyrir það. Ríkisstjórinn kemst ennfremur svo að orði: „Eg held, að allar mann- eskjur séu í heiminn bornar með trú- arþörf, þörf til þess að trúa á mátt, sem er æðri okkar mætti. Enda ligg- ur það svo að segja beint við. Hvað verður úr mætti okkar mannanna, þrátt fyrir allra fullkomnustu tækni nútímans, er við lítum til alheimsins eða náttúrunnar í kring um okkur? Hnötturinn okkar, með sjálfum okk- ur og öllu því, sem á þessum hnetti er „lifað fyrir og barizt móti“, er og verður ekki nema eins og sandkorn á sjávarströnd, borið saman við það, sem við þykjumst vita eitthvað um af himingeimnum. Við mennirnir, dýrin og blómin á akrinum eru miklu fullkomnari en nokkuð það, sem mesta tækni nútímans getur fram- leitt. Og ekki má gleyma hinu und- ursamlega samræmi í þessu öllu. — Hvað annað en okkur óendanlega miklu meiri máttur getur verið höf- undur alls þessa?“ í þessum orðum ríkisstjóra kemur fram fölskvalaus guðstrú og lotning fyrir mikilfengleik alheimsins. Hann telur sig ekki of mikinn mann né of hátt settan í þjóðfélaginu til þess að hefja hug sinn upp úr önnum og erjum hversdagslífsins og finna hon- um hvíld í andlegri íhugun. Engum ætti að vera ljósara en ríkisstjóra nauðsynin á því að breyta lögum og: siðvenjum manna til þess að fyrir- byggja misrétti það og miskunnar- leysi, sem á sér stað í mannlegu þjóð- félagi, til þess að fyrirbyggja eyð- ingu andlegra verðmæta, mannlegrar fegurðar, mannlegrar elsku og mann- legrar orku. Og engum er ljósari en honum fallvaltleiki veraldlegra verð- mæta og nauðsynin á endurmati mannlegra verðmæta. Við mennirnir erum grátlega mann- legir. Margir okkar fyrirgera lífi sínu. og svelta sálir sínar fyrir glingur og prjál og til þess að geta lifað í „vel- lystingum praktuglega". Þjóðirnar- hafa oftar hagað lífi sínu samkvæmt reglum heimsku og fláræðis en vizku og drengskapar. Þær hafa oftar dýrk- að hina ríku og voldugu en hina vitru og dyggðugu. Þær hafa oftar lagt eyrun að orðum þeirra, er hæst hafa galað en hinna, sem mælt hafa spek- innar orð. Þær hafa oftar svelt sína mætustu menn en hegnt þeim, sem rænt hafa og sólundað verðmætum þeirra. Og þær hafa oftar trúað þús- undfalt meiri lygum en sannleik. En ef breyting á að geta átt sér- stað í þessu efni, þá verða menn fyrst og fremst að gera sér eitt ljóst. Það er þetta: Gildi manns eða konu er-

x

Straumhvörf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Straumhvörf
https://timarit.is/publication/1092

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.