Fréttablaðið - 16.02.2013, Page 32

Fréttablaðið - 16.02.2013, Page 32
16. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 32 Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is Ég útskrifaðist úr leiklist-arskólanum 2003. Guð minn góður, það eru tíu ár síðan! Áður en ég fór í leikaranámið var ég búin með einn vetur í bók- menntafræðinni og þremur árum eftir að ég útskrifaðist byrjaði ég aftur, meðfram vinnu og leiklist- inni. Ég kláraði BA-námið og síðan mastersnámið, skilaði masters- ritgerðinni daginn áður en sonur minn kom í heiminn fyrir fjórtán mánuðum. Hann var svo hugul- samur að koma tveimur vikum of seint þannig að ég náði að klára ritgerðina.“ Ekki hliðhollt strákum Og hún fjallaði um birtingarmynd- ir kvenna í Pixar-myndunum, ekki satt? „Já, eða reyndar í barnaefni almennt. En ég tók Disney sérstak- lega fyrir, þar sem hann er stærsti framleiðandinn og mjög ráðandi á Vesturlöndum, og það leiddi mig að Pixar enda hafa fyrirtækin runn- ið saman og eru orðin eitt. Þótt rit- gerðin hafi fyrst og fremst snúist um birtingarmyndir kvenna þá, eins og alltaf í femínismanum, snerist þetta upp í skoðun á birt- ingarmyndum annarra minnihluta- hópa, kyngerva og kynþátta. Þetta var mjög sjokkerandi. Mér finnst Pixar-myndirnar æðislegar, vel gerðar og vel til þeirra vandað en þeim mun mikilvægara er að benda á hvaða heim þær eru að sýna. Sá heimur er ekki beint endurspeglun á fjölbreytileikanum í okkar heimi. Sérstaklega vantar konur og aðra kynþætti spegilmynd, það er bara eins og þær séu vampýrur. Í öllu barnaefni eru þrír karlmenn á móti einni konu. Meira að segja þegar kona er aðalpersónan, eins og til dæmis í Mjallhvíti og Pocahontas, þá breytast hlutföllin ekkert.“ Komu þessar niðurstöður þér á óvart? „Maður hafði auðvitað ein- hverja hugmynd um hvernig þetta væri, en þetta var miklu meira afgerandi en mig grunaði. Niður- stöður rannsókna benda til að því meira barnaefni sem stelpur horfi á því minni framtíðarmöguleika sjái þær fyrir sjálfar sig. Og annað áfall var að sjá að þær konur sem þó eru þarna þjóna oft bara því hlut- verki að sýna fram á að karlhetjan sé gagnkynhneigð. Það er nefnilega þannig að feðraveldið er ekkert sérstaklega hliðhollt strákum held- ur. Það er í rauninni bara hliðhollt þeim hvíta karlmanni sem, innan gæsalappa, vill kúga. Þeir sem ekki falla inn í það þrönga form eru litnir hornauga. Ef það er t.d. ýjað að því að karlpersóna sé samkynhneigð er það í besta falli hlægilegt en í versta falli er hann illmenni. Svo er ákveð- inn tólerans fyrir því að stelpur séu „stráka legar“ en voðalegt tabú að strákar séu „stelpulegir“ – það á að vera slæmt – sem er auðvitað alveg út í hött!“ Svo ertu ein af bloggurum á bók- menntavefnum Druslu bækur og doðrantar. Var líka svona kynja- pæling að baki þar? „Neeei. Þær byrjuðu á þessu Þórdís Gísla- dóttir og Þorgerður E. Sigurðar- dóttir, höfðu svo samband við mig og fleiri konur og, jú, á einhverj- um tímapunkti varð þetta dálítið kynjamiðað. Meðal annars hugsað til að gera konur meira áberandi í bókmenntaumræðunni.“ Femínistavetur í leikhúsinu Hefurðu verið að leika eitthvað með allan tímann sem þú varst í náminu? „Já, það hafa verið svona eitt til tvö verkefni á ári, misviða mikil. Svo hef ég unnið í hlutastarfi í bókabúðinni Eymundsson síðan ég var 19 ára. En klukku tímunum í sólarhringnum hefur fækkað síðan sonur inn kom, ég held það hefði verið erfitt að vera í tveimur vinnum og fullu námi með lítið barn. Á sumrin hef ég svo verið með bókmenntagagnrýni í Víðsjá á Rás 1.“ Og nú ertu í hverju verkefninu af öðru hjá Þjóðleikhúsinu? „Já, ég er í þremur verkum í Kassanum í vetur. Var í Jónsmessunótt, eftir Hávar Sigurjónsson, er að æfa Karma fyrir fugla eftir Kristínu Eiríksdóttur og Kari Grétu dóttur, og verð svo í danska leikritinu Kvennafræðaranum seinna í vetur.“ Þið frumsýnið Karma fyrir fugla þann 1. mars. Hvernig verk er það? „Það er bara frábært! Krist- ín Jóhannesar er að leikstýra og þetta er óvenjulegt verk en mjög flott og fjallar um sölu á konunni í sinni víðustu mynd, misnotkun og áfallið sem konan er í eftir það. Þær komust að því höfundarnir að vændiskonur eiga það sameiginlegt með hermönnum í stríði að þjást af áfallastreituröskun og reyndar ekki bara vændiskonur heldur allir þeir sem hafa lent í kynferðislegri mis- notkun. Það lýsir sér þannig að þótt þessir skelfilegu atburðir séu liðn- ir hjá halda líkaminn og hugurinn áfram að sýna sömu viðbrögð. Það er auðvitað erfitt að reyna að setja sig inn í þennan heim, en þakklátt. Það er svo gaman að fá að taka þátt í verkefni sem bæði er listrænt áhugavert og skiptir mann líka máli. Það gerist ekkert alltaf. En þetta er líka kómískt verk, ekki ein- hver táradalur um misnotkun. Enda er hlátur oft góð leið til að opna inn í kvikuna.“ Svo tekur Kvennafræðarinn við? „Já, þetta er óvenjumikill femínista vetur hjá mér í leikhúsinu. Kvennafræðarinn byggir á sam- nefndri bók sem kemur út reglulega í Danmörku, en hefur held ég bara komið tvisvar út á íslensku. Leik- ritið hefur gengið gríðarlega vel í Danmörku og hlotið verðlaun þar þannig að það verður spennandi að sjá hvort íslenskir áhorfendur tengja við það á sama hátt.“ Tvær aðskildar konur Þú hefur mjög sterkar skoðanir. Myndirðu einhvern tíma leika í verki sem gengi þvert á þína sann- færingu? „Sem betur fer hef ég aldrei lent í því að þurfa að gera það upp við mig. Þegar maður er í stofnanaleikhúsunum hefur maður auðvitað minna val, en ég held það séu samt fordæmi fyrir því að hafna hlutverki ef það geng- ur þvert á einhverja sannfæringu manns. Þannig að, jú, ég hugsa að ég myndi neita að leika í slíku verki. Maður er nú orðinn 35 ára og lætur bjóða sér minna en þegar maður var ungur og hræddastur af öllu við að vera leiðin legur. Mér finnst alveg dásamlegt að leika og vona að ég geti gert það áfram, en ef það er ekki hægt af einhverri ástæðu munu himinn og jörð ekki farast. Mig langar t.d. bæði til að skrifa meira og mennta mig meira. Þegar þú ert leikari ertu alltaf háður því að aðrir fíli þig, það leikur eng- inn fyrir skúffuna. Og það getur verið dálítið hættulegt fyrir egóið. Maður er rosalega ánægður þegar maður er með vinnu og svo alveg á Önnur leikur, hin skrifar Maríanna Clara Lúthersdóttir verður í undarlegri stöðu þann 1. mars. Þá verður frumsýnd fyrsta kvikmyndin sem hún leikur í, Þetta reddast, en hún kemst ekki á frumsýninguna því hún verður á sviði í Þjóðleikhúsinu að frumsýna Karma fyrir fugla. Þessi staða er dálítið dæmigerð fyrir líf hennar því hún segist eiginlega vera tvær konur í einni. MARÍANNA CLARA „Þetta er óvenjumikill femínistavetur hjá mér í leikhúsinu.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Fyrsta kvikmyndin í fullri lengd sem þú leikur í, Þetta reddast eftir Börk Gunnarsson, verður frumsýnd 1. mars. Þú kemst þá ekki á frumsýningu? „Nei, ég verð að frumsýna Karma fyrir fugla á sama tíma. Ég vona samt að ég nái að sjá hana í bíó, þótt það sé dálítið hallærislegt að kaupa sig inn á mynd sem maður leikur í sjálfur. En ég hlakka til– hún var tekin upp 2009 og hugmyndin unnin 2007 og ég held að hún sé skemmtilegur og afhjúpandi spegill á fyrir-hrun-samfélagið. Bæði hvað varðar afstöðu til velgengni – það var víðar útrásarvíkingahugsunarháttur en í fjármála- bransanum – og kannski líka til femínisma.“ ➜ Þetta reddast botninum þegar maður hefur ekki vinnu og svoleiðis getur maður auðvitað ekkert lifað. Þess vegna hugsaði ég þegar ég fór aftur í bók- menntafræðina að maður þyrfti að hafa sterkan grunn. Ég er ekki bara atvinnulaus eða vinnandi leik- kona, ég er kona, ég er námsmaður, ég er bókmenntafræðingur, ég er eiginkona, ég er móðir og allt þetta fyllir upp í heildarmyndina af mér. Hvort ég er atvinnulaus eða vinn- andi leikkona kippir ekkert fót- unum undan því hver ég er. Fyrir mér er það algjörlega lykillinn að því að vera ánægð í þessum bransa. Þegar mikið gengur á í heiminum finnst manni stundum svolítið trivi- alt að vera leikkona, en það er svo sem hægt að segja um nánast hvaða stétt sem er, maður verður bara að finna hvernig maður getur gert sem mest gagn í þeirri stöðu sem maður er í hverju sinni.“ Þig langar ekkert að fara að skrifa leikrit eða skáldsögur? „Jú, kannski seinna. En það situr á hak- anum á meðan ég er að leika svona mikið. Leikkonan leikur og bók- menntafræðingurinn skrifar.“ Eru þær alveg aðskildar? „Já. Ég ætla ekki að segja að þær hittist ekki annað slagið yfir kaffibolla, en það er einmitt svolítið þakklátt að hafa þær báðar. Leikhúsið er sam- starf en við skriftirnar er maður einn og þegar ég skrifa vanda ég mig endalaust, ligg yfir hlutunum, en í leikhúsinu verður maður stund- um bara að sleppa og láta vaða sem er líka mjög gott. Þannig að ég held að þessar tvær konur í mér séu ákveðið mótvægi hvor við aðra og bæti hvor aðra upp.“ Maður er nú orðinn 35 ára og lætur bjóða sér minna en þegar maður var ungur og hræddastur af öllu við að vera leiðinlegur.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.