Fréttablaðið - 16.03.2013, Page 4

Fréttablaðið - 16.03.2013, Page 4
16. mars 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 4 76%JORGE MARIO BERGOGLIO nr. 1 20 cm stór marmarasteinn kom Davíð Erni Bjarnasyni í fang-elsi í Antalya í Tyrklandi. 4 systur voru í bikarmeist-araliði Vals í handbolta. Ólafía B. Rafns- dóttir sigraði Stefán Einar Stefánsson í formannskjöri í VR með 76% atkvæða. er tekinn við sem páfi . Hann tók sér nafnið Frans og er sá fyrsti sem það gerir. Borgaryfi rvöld áforma að reisa íbúðir á svæði í Skerjafi rði þar sem nú er fl ugbraut.800 Tvær ungar stúlkur sluppu ótrúlega vel eft ir að hafa farið 6 TIL 7 VELTUR út af veginum í Öxnadal. 4,3 STARFSMENN LANDS- BANKANS HAFA TRYGGT SÉR 4,3 MILLJARÐA KRÓNA HLUT Í BANKANUM. milljarðar kr. VANTRAUSTS- TILLAGA ÞÓRS SAARI VAR FELLD MEÐ 32 ATKVÆÐUM GEGN 29. VÍSINDI Eftir að forfeður Neanderdalsmanna fluttu frá Afríku til Evr- ópu þróuðust kynslóðirnar þannig að augun urðu sífellt stærri. Þetta var nauðsynlegt til að sjá betur í myrkrinu á norður slóðum en um leið fór æ stærri hluti af heilastarfseminni í að vinna úr sjón- skynjuninni. Þar með varð of lítið aflögu af heilanum til að sinna flóknari úrlausnarefnum á borð við félagsleg samskipti í hópum. Þetta varð Neanderdals mönnum að falli, samkvæmt nýrri rann- sókn breska vísindamannsins Eiluned Pearce við Oxford-háskóla. Frá þessu er skýrt á fréttavef breska útvarpsins BBC. Meðan Neanderdalsmenn bjuggu í Evrópu héldu for feður mann- kyns áfram að þróast í Afríku, þar sem birtan var næg og engin þörf fyrir jafn stór augu og Neanderdalsmenn fengu. Forfeður okkar réðu því betur við hin flóknu úrlausnarefni sem Neanderdals menn gátu ekki tekist á við. - gb Bresk rannsókn á beinum Neanderdalsmanna: Augun urðu þeim að falli NEANDERDALSMAÐUR Of stór hluti heilastarfseminnar fór í sjónina. NORDICPHOTOS/AFP SLYS Banaslys varð við bæinn Fjósatungu í Fnjóskadal í gær þegar stúlkubarn varð fyrir lítilli vinnuvél. Lögreglan á Akureyri fer með rannsókn málsins en hún gefur ekki frekari upplýsingar um málið að svo stöddu. - sv Banaslys við Fjósatungu: Lítil stúlka lést LÝÐHEILSUMÁL Fjöldi Dana hefur á síð- ustu mánuðum greinst með lifrarbólgu A og leikur grunur á því að einstakling- arnir hafi smitast vegna neyslu á frosn- um berjum. Vinsælt er að nota frosin ber í ýmsa drykki, eftirrétti og kökur og hafa Heil- brigðiseftirlit Reykjavíkur, Matvæla- stofnun og sóttvarnarlæknir því hvatt almenning til þess að sjóða framvegis frosin ber áður en þau eru notuð í kaldan mat eða drykki. Lifrarbólga A er veirusjúkdómur sem getur truflað starfsemi lifrarinnar. Hann er mjög sjaldgæfur á Íslandi og 25 til 30% þeirra sem sýkjast fá engin einkenni. Ann- ars geta liðið tvær til sex vikur frá því að einstaklingur smitast þar til einkenni koma fram. Einkennin eru lík flensu- einkennum fyrst um sinn en sjúkdómur- inn getur einnig valdið gulu og kláða. Yfirleitt gengur lifrarbólga A sjálfkrafa yfir án þess að til meðferðar þurfi að koma en í einstaka tilvikum getur hann valdið óafturkræfri lifrarbilun. Alls 30 tilvik sjúkdómsins hafa komið upp í Danmörku að undanförnu en rann- sókn á faraldrinum stendur yfir. Eins og áður sagði er mælt með því að frosin ber verði soðin áður en þau eru notuð í mat en neytendum hefur lengi verið ráðlagt að sjóða frosin hindber fyrir notkun vegna hættu á nóróveirusýkingum. Það að sjóða frosinn mat eyðir öllum bakteríum og veirum sem leynst geta í matnum. Hins vegar getur suða eytt ákveðnum ensímum sem hjálpa til við meltingu matar auk þess sem sum vítamín eru viðkvæm fyrir miklum hita. Ebba Guðný Guðmundsdóttir heilsu- kokkur segir mögulegt að nota ýmislegt annað en frosin ber í kalda drykki. „Í stað berja er hægt að nota til dæmis frosna ávexti. Ég get nefnt sem dæmi frosinn mangó sem stundum er hægt að kaupa og ferskjur sem eru rosa góðar í drykki,“ segir Ebba Guðný og heldur áfram: „Ég geri líka oft kakósjeika þar sem ég nota bara banana en engin ber. Enda þola ekki allir ber, sem eru yfirleitt súr.“ Loks mælir Ebba Guðný með því að fólk tíni sjálft ber á sumrin. „Það tekur ekki nema nokkra klukkutíma að fylla heilu föturnaar og þá er maður með birgðir fyrir allan veturinn. Bæði finn- ur maður bláber úti um allt hérna og þá búa margir svo vel að þekkja ein- hvern sem er með rifsberja runna í garðinum hjá sér. Þá er bara að biðja um leyfi og fara að tína.“ magnusl@frettabladid.is Noti aðra ávexti til að forðast lifrarbólgu Dönsk heilbrigðisyfirvöld rekja lifrarbólgufaraldur þar í landi til neyslu frosinna berja sem vinsælt er að nota í drykki og eftirrétti. Mælt er með því að frosin ber séu soðin fyrir notkun en heilsukokkur bendir á að ýmislegt annað sé hægt að nota. BERJADRYKKUR Vinsælt er að nota frosin ber í ýmiss konar kalda drykki. Ebba Guðný Guðmundsdóttir heilsukokkur bendir á að ýmislegt sé hægt að nota í stað berja. NORDICPHOTOS/GETTY EBBA GUÐNÝ GUÐMUNDSDÓTTIR 09.03.2013 ➜ 15.03.2013 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigrún Kristinsdóttir sigrunp@365.is, Sigurjón Viðar Friðriksson sigurjon@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Steinunn Sandra Guðmundsdóttir ssg@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is GO-KART HÖLLIN – Race fyrir 1 Go-kart er skemmtilegur kappakstur fyrir 10 ára og eldri. Akstur í Go-Kart höllinni hefst á 7 mínútna upphitun og tímatöku áður en ökumönnum er raðað á ráspól fyrir 10 mínútna kapp- akstur sem krefst bæði hraða og útsjónarsemi. í krafti fjöldans NÝ MYND 1.980 kr. 4.500 kr. Verð 56% Afsláttur 2.520 Afsláttur í kr. AFMÆLISVIKA VIÐ ENDURTÖKUM VINSÆLUSTU TILBOÐIN 1 af hverjum 100 fær endurgreitt eitt Hópkaupsbréf! GILDIR 48 TÍMA 2 ÁRA PI PA R\ TB W A • SÍ A Veðurspá Mánuddagur Víða 8-13 m/s, að 20 m/s austast. BJART UM HELGINA á V-verðu landinu en él NA- og A-til. Frost að 9 stigum inn til landsins en frostlaust við S- og V-stöndina að deginum. Allhvasst eða strekkingur austast á landinu næstu daga. -2° 3 m/s -1° 3 m/s -1° 2 m/s 1° 5 m/s Á morgun Víða 3-8 m/s en allhvasst austast. Gildistími korta er um hádegi -2° -4° -2° -5° -7° Alicante Basel Berlín 17° 8° 4° Billund Frankfurt Friedrichshafen 0° 7° 8° Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas 2° 2° 26° London Mallorca New York 6° 16° 4° Orlando Ósló París 26° 1° 10° San Francisco Stokkhólmur 19° 0° -3° 2 m/s -2° 8 m/s -5° 6 m/s -5° 5 m/s -4° 2 m/s -3° 2 m/s -9° 3 m/s -1° -2° -4° -6° -5° Snjólaug Ólafsdóttir veðurfréttamaður HALDIÐ TIL HAGA Í leiðara Fréttablaðsins í gær sagði að í landsfundarályktun Framsóknar- flokksins kæmi fram að flokkurinn stefndi „að því að tekjuskattsprósenta og launaskattar fyrirtækja á Íslandi séu ávallt með þeim lægstu í löndum Vestur- og Norður-Evrópu“. Hið rétta er að setninguna er að finna í drögum að landsfundarályktun flokksins en ekki lokaútgáfu hennar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.