Fréttablaðið - 16.03.2013, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 16. mars 2013 | SKOÐUN | 19
Eflaust þekkja flestir á
eigin skinni hvernig tog-
streita getur skapast
milli heimilis og vinnu
og aðstæður í versta falli
orðið slíkar að fólki finn-
ist það sífellt vera að svíkj-
ast undan merkjum, ýmist
gagnvart fjölskyldunni
eða vinnunni. En þótt við
höfum hvert um sig hug-
mynd um hvernig þetta
getur verið er mikilvægt
að afla sem mestra upplýsinga um
þessi mál og rannsaka þau sem best
þannig að úr megi bæta.
Eitt af markmiðum laga um
jafna stöðu og jafnan rétt kvenna
og karla, nr. 10/2008, er að gera
bæði konum og körlum kleift að
samræma fjölskyldu- og atvinnu-
líf. Þetta sama markmið er mjög
áberandi í stefnu Evrópusambands-
ins í jafnréttismálum. Hér á landi
hefur umræðan að mestu snúist
um möguleika fjölskyldna með ung
börn til að samræma fjölskyldu- og
atvinnulíf en í Evrópu beinast sjón-
ir æ meir að umönnun eldri ætt-
ingja enda fer gömlu fólki fjölgandi
um alla álfuna. Þetta þarf að koma
inn í umræðuna hér á landi.
Lykilþáttur
Aðgerðir til að auðvelda fólki að
samræma fjölskyldu- og atvinnulíf
geta verið margvíslegar og
þar er jafnrétti kynjanna
bæði á vinnumarkaði og
inni á heimilum lykil þáttur.
Þar erum við að tala um
vinnutíma fólks, meðal ann-
ars lengd vinnuvikunnar,
sveigjanlegan vinnutíma,
fæðingarorlof foreldra, frí-
daga vegna veikinda barna
og veikinda eða umönnun-
ar aldraðra. Skipulag skóla-
starfs er einnig mikilvægur
þáttur, eins og aðgangur að leik-
skólum, samfelldur skóladagur og
skólamáltíðir svo eitthvað sé nefnt.
Einnig má nefna skiptingu heim-
ilis- og uppeldisstarfa, frítíma,
heilsu og réttinn til einkalífs. Með
þessu síðasta er meðal annars átt
við að fólk taki ekki vinnuna með
sér heim og fái frið frá vinnunni
utan vinnutíma. Í þessu sam-
hengi má nefna að Svíar hafa beint
sjónum að veikindadögum fólks
og hlutastörfum á vinnumarkaði
en þar í landi eru veikindadagar
kvenna helmingi fleiri en veikinda-
dagar karla.
Bent hefur verið á að okkur
skortir þekkingu og upplýsingar um
mörg framangreind atriði. Kannan-
ir sýna að verkaskipting á heimilum
er enn mjög ójöfn. Við höfum upp-
lýsingar um nýtingu fæðingarorlofs
en þó eru þar ýmsir þættir sem við
viljum kanna nánar. Einnig vantar
okkur upplýsingar um sveigjan-
legan vinnutíma hér á landi og
veikinda daga.
Leiðir að lausnum
Mikilvægt er að fjalla um þessi mál
og finna leiðir að lausnum, sam-
ræming fjölskyldu- og atvinnulífs
varðar lífsgæði fólks og á að stuðla
að farsælla fjölskyldulífi.
Til að vinna að þessu mikilvæga
verkefni skipaði ég í samstarfi við
Jafnréttisráð og Jafnréttisstofu
vinnuhóp um samræmingu fjöl-
skyldu- og atvinnulífs. Í vinnu-
hópnum sitja fulltrúar atvinnulífs-
ins og frjálsra félagasamtaka. Eitt
af fyrstu verkefnum vinnu hópsins
var að boða til morgunverðar-
fundar í Reykjavík þar sem meðal
annars var leitað svara við því
hvernig fyrirtæki, stofnanir og
sveitarfélög geta auðveldað starfs-
fólki og eða íbúum að samræma
fjölskyldu- og atvinnulíf. Upp tökur
erinda frá morgunverðar fundinum
má sjá á heimasíðunni www.hid-
gullnajafnvaegi.is Vinnuhópur-
inn mun skila mér greinargerð um
framkvæmd verkefna og aðgerðir
á opnum fundi sem haldinn verð-
ur á Akureyri föstudaginn 12.
apríl nk. Þar verða einnig kynntar
fyrstu niðurstöður rannsóknar á
því hvernig þátttakendum á vinnu-
markaði finnst þeim takast að sam-
ræma fjölskyldu- og atvinnulíf.
Barátta kvenna fyrir auk-
inni menntun og sýnileika í sam-
félaginu hefur leitt til aukinnar
þátttöku kvenna á vinnumarkaði.
Þrátt fyrir það bera þær enn í dag
megin ábyrgð á því ólaunaða starfi
sem fram fer inni á heimilunum.
Samræming fjölskyldu- og atvinnu-
lífs er jafnréttismál. Ef vel tekst til
þá leiðir það til aukinna lífsgæða
fyrir alla.
Samræming fjölskyldu- og atvinnulífs er jafnréttismál
JAFNRÉTTI
Guðbjartur
Hannesson
velferðarráðherra
➜ Kannanir sýna að verka-
skipting á heimilum er enn
mjög ójöfn.
Ergo veitir frumkvöðlum
umhverfisstyrki
Lumar þú á hugmynd?
Ergo veitir tvo styrki að fjárhæð 500.000
krónur hvorn til að styrkja frumkvöðlaverkefni
á sviði umferðar- og umhverfismála. Þannig
vill Ergo leggja sitt af mörkum við þróun
framtíðarlausna til sjálfbærrar nýtingar og
verndunar náttúruauðlinda.
Sendu inn þína hugmynd
Einstaklingar og fyrirtæki geta sótt um styrkina á ergo.is.
Viðskiptaáætlun þarf að fylgja umsókninni ásamt greinargerð fyrir því
til hvers nýta skal styrkinn. Umsóknarfrestur er til 10. apríl en styrkjum
verður úthlutað á degi jarðar 22. apríl.
Kynntu þér málið nánar á ergo.is
> www.ergo.is
Umhverfi Efnahagur
Samfélag