Fréttablaðið - 16.03.2013, Side 68
sími: 511 1144
| ATVINNA |
Dalvegur – hringtorg
Breytt deiliskipulag - Mál nr. 1203144
Í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst tillaga Skipulags- og byggingardeildar
Kópavogs að breyttu deiliskipulagi Dalvegar nr. 2 til 28. Tillagan er breyting á deiliskipulagi Dalvegar samþykkt í
bæjarstjórn 23. október 1990 og deiliskipulagi Sorpu samþykkt í bæjarstjórn 20. desember 1999 og birt í B- deild
Stjórnartíðinda 28. apríl 2000.
Í tillögunni felst að nýrri akrein og tveimur hringtorgum er komið fyrir, annars vegar á móts við Dalveg nr. 14 og 16 og hins
vegar við Dalveg nr. 24 og 26. Núverandi gatnamót og gata milli Dalvegar nr. 18 og 24 er felld út. Ný gata tengir Dalveg
og Reykjanesbraut milli Dalvegar nr. 24 og 26.
Aðkoma, lóðamörk og stærðir lóða Dalvegar nr. 2-28 breytast. Á lóðunum við Dalveg nr. 20 til 28 breytast bygg ingarreitir,
hæðir húsa, byggingarmagn eykst og heimilt verður að fjarlægja núverandi hús. Heimilað verður að koma fyrir niður-
gröfnum bílageymslum við Dalveg nr. 24, 26 og 28. Samfelld akstursleið verður austast á lóðunum við Dalveg nr. 6-8
að Dalvegi nr. 20
Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:3000 ásamt skýringarmyndum og greinargerð dags. 5. mars 2013.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillagan verður til sýnis á Skipulags- og byggingardeild Kópavogs, Fannborg 6, 2. hæð frá kl. 8:30 til 16:00 mánu daga til
fimmtudaga og á föstudögum frá 8:30 til 15:00, frá og með 19. mars 2013. Einnig má sjá tillöguna á heima síðu bæjarins,
www.kopavogur.is. Athugasemdir eða ábendingar skulu hafa borist skriflega Umhverfissviði, Skipulags- og byggingar-
deild eigi síðar en kl. 15:00 þriðjudaginn 7. maí 2013. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast
samþykkir tillögunni.
Skipulagsstjóri Kópavogs
Umhverfissvið.
Skipulags- og byggingardeild
Auglýsing um breytingar á deiliskipulagi í Kópavogi.
Selfossveitur og Míla -ÚTBOÐ
HITA- OG GAGNAVEITA AÐ
AUSTURÁS OG ÁSAMÝRI
Selfossveitur og Míla óska eftir tilboðum í lagningu hita-
og gagnaveitu frá Suðurhólum að Lækjarmótum og þaðan
yfir tún og Votmúlaveg að Austurás og Ásamýri. Verkið
inniheldur einnig lagnir frá Byggðarhorn að Jórvík.
Helstu magntölur eru:
- Gröftur lagnaskurða 802 m
- Hitaveita stál 802 m
- Plæging hitaveitu PEX 1273 m
- Plæging gagnaveitu 1273 m
- Gagnveitu brunnar 3 stk
- Hitaveitulokar 5 stk
Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með
föstudeginum 15.mars.
Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband
við Verkfræðistofu Suðurlands í síma 412 6900, eða með
tölvupósti á netfangið utbod@verksud.is og gefa upp nafn,
heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið útboðs-
gögnin send í tölvupósti.
Tilboðum skal skila á Verkfræðistofu Suðurlands,
Austurvegi 1-5 2.hæð gengið inn á austurhlið, fyrir kl. 11:00
miðvikudaginn 3. apríl 2013, en þá verða þau opnuð að
viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Umsóknir
um dvöl í íbúð fræðimanns
í Kaupmannahöfn 2013-2014
Íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn, skv. reglum
um hús Jóns Sigurðssonar, er laus til afnota
tímabilið 28. ágúst 2013 til 26. ágúst 2014.
Allar nánari upplýsingar og sérstök eyðublöð er
að finna á heimasíðu Jónshúss: jonshus.dk
(Fræðimannsíbúð).
Umsóknir um íbúðina skulu hafa borist skrifstofu
Alþingis eigi síðar en þriðjudaginn 16. apríl nk.
Tollstjóri
Sýslumaðurinn í Kópavogi
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði
Sýslumaðurinn í Keflavík
Sýslumaðurinn á Akranesi
Sýslumaðurinn í Borgarnesi
Sýslumaðurinn í Stykkishólmi
Sýslumaðurinn í Búðardal
Sýslumaðurinn á Ísafirði
Sýslumaðurinn í Bolungarvík
Sýslumaðurinn á Patreksfirði
Sýslumaðurinn á Hólmavík
Sýslumaðurinn á Siglufirði
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki
Sýslumaðurinn á Blönduósi
Sýslumaðurinn á Akureyri
Sýslumaðurinn á Húsavík
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði
Sýslumaðurinn á Eskifirði
Sýslumaðurinn á Höfn
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
Sýslumaðurinn á Selfossi
Sýslumaðurinn í Vík
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli
Greiðsluáskorun
Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna gjalda að gera skil
nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar:
Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur í eindaga til og með 15. mars 2013, virðisaukaskattur
sem fallið hefur í eindaga til og með 5. mars 2013 og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga
til og með 15. mars 2013, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds, virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, vanskilum
launagreiðenda á gjöldum í og utan staðgreiðslu, fjármagnstekjuskatti á skilaskylda aðila, áfengisgjaldi, launaskatti, bifreiðagjaldi,
úrvinnslugjaldi, olíugjaldi, kílómetragjaldi, gistináttaskatti, fjársýsluskatti, viðbótar- og aukaálagningu söluskatts vegna fyrri tímabila,
skráningargjaldi vegna lögskráningar sjómanna, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum,
eftirlitsgjöldum, aðflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum, fisksjúkdómagjaldi,
jarðarafgjaldi, sektum skattrannsóknarstjóra, ofgreiddri uppbót á eftirlaun, eftirlitsgjaldi Fjármálaeftirlitsins og álögðum þing- og
sveitarsjóðsgjöldum, sem eru:
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og
öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda.
Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er
allt að 19.100 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald er 2.000 kr. og stimpilgjald 1,5% af heildarskuldinni, auk útlagðs kostnaðar eftir
atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað.
Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald, afdreginn fjármagnstekjuskatt, áfengis-
gjald og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er skulda bifreiðagjöld og
þungaskatt mega eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda
gjöld þar sem lögveð fylgir mega búast við að send verði út sérstök greiðsluáskorun fyrir gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin
hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði þannig að fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu áskorunar þessarar gildir ekki í
þessum tilvikum.
Reykjavík, 16. mars 2013
Tekjuskattur og útsvar ásamt verðbótum á ógreiddan tekjuskatt og útsvar, sérstakur tekjuskattur manna, eignarskattur,
sérstakur eignarskattur, fjármagnstekjuskattur, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, tryggingagjald, búnaðargjald,
iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjald, markaðsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra og skattur af verslunar- og skrif-
stofuhúsnæði, ofgreiddar barnabætur, ofgreiddar vaxtabætur og útvarpsgjald.
Kópavogsbær
ÚTBOÐ
NÝTT GERVIGRASYFIRBOÐ
Fífan knattspyrnuhús
Kópavogsbær óskar eftir tilboðum endunýjun á
gervigrasi á knattspyrnuvelli knattspyrnuhússins
Fífunar ásamt tilheyrandi búnaði, einnig skal fjar-
lægja hluta af hlaupabrautum og endurgera.
Helstu magntölur eru:
Gervigrasyfirborð 7.668 m²
Hlaupabrautir 435 m²
Verkinu skal að fullu lokið 3. september 2013.
Útboðsgögn verða seld á kr. 5.000 – í þjónustuveri
Kópavogsbæjar Fannorg 2 frá og með þriðjudeg-
inum 19. mars 2013.
Tilboðum skal skilað á sama stað þriðjudaginn 9.
apríl 2013 fyrir kl. 11:00 og verða þau þá opnuð í
viðurvist þeirra bjóðenda sem þar mæta.
16. mars 2013 LAUGARDAGUR18