Fréttablaðið - 16.03.2013, Síða 68

Fréttablaðið - 16.03.2013, Síða 68
sími: 511 1144 | ATVINNA | Dalvegur – hringtorg Breytt deiliskipulag - Mál nr. 1203144 Í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst tillaga Skipulags- og byggingardeildar Kópavogs að breyttu deiliskipulagi Dalvegar nr. 2 til 28. Tillagan er breyting á deiliskipulagi Dalvegar samþykkt í bæjarstjórn 23. október 1990 og deiliskipulagi Sorpu samþykkt í bæjarstjórn 20. desember 1999 og birt í B- deild Stjórnartíðinda 28. apríl 2000. Í tillögunni felst að nýrri akrein og tveimur hringtorgum er komið fyrir, annars vegar á móts við Dalveg nr. 14 og 16 og hins vegar við Dalveg nr. 24 og 26. Núverandi gatnamót og gata milli Dalvegar nr. 18 og 24 er felld út. Ný gata tengir Dalveg og Reykjanesbraut milli Dalvegar nr. 24 og 26. Aðkoma, lóðamörk og stærðir lóða Dalvegar nr. 2-28 breytast. Á lóðunum við Dalveg nr. 20 til 28 breytast bygg ingarreitir, hæðir húsa, byggingarmagn eykst og heimilt verður að fjarlægja núverandi hús. Heimilað verður að koma fyrir niður- gröfnum bílageymslum við Dalveg nr. 24, 26 og 28. Samfelld akstursleið verður austast á lóðunum við Dalveg nr. 6-8 að Dalvegi nr. 20 Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:3000 ásamt skýringarmyndum og greinargerð dags. 5. mars 2013. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Tillagan verður til sýnis á Skipulags- og byggingardeild Kópavogs, Fannborg 6, 2. hæð frá kl. 8:30 til 16:00 mánu daga til fimmtudaga og á föstudögum frá 8:30 til 15:00, frá og með 19. mars 2013. Einnig má sjá tillöguna á heima síðu bæjarins, www.kopavogur.is. Athugasemdir eða ábendingar skulu hafa borist skriflega Umhverfissviði, Skipulags- og byggingar- deild eigi síðar en kl. 15:00 þriðjudaginn 7. maí 2013. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni. Skipulagsstjóri Kópavogs Umhverfissvið. Skipulags- og byggingardeild Auglýsing um breytingar á deiliskipulagi í Kópavogi. Selfossveitur og Míla -ÚTBOÐ HITA- OG GAGNAVEITA AÐ AUSTURÁS OG ÁSAMÝRI Selfossveitur og Míla óska eftir tilboðum í lagningu hita- og gagnaveitu frá Suðurhólum að Lækjarmótum og þaðan yfir tún og Votmúlaveg að Austurás og Ásamýri. Verkið inniheldur einnig lagnir frá Byggðarhorn að Jórvík. Helstu magntölur eru: - Gröftur lagnaskurða 802 m - Hitaveita stál 802 m - Plæging hitaveitu PEX 1273 m - Plæging gagnaveitu 1273 m - Gagnveitu brunnar 3 stk - Hitaveitulokar 5 stk Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með föstudeginum 15.mars. Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Verkfræðistofu Suðurlands í síma 412 6900, eða með tölvupósti á netfangið utbod@verksud.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið útboðs- gögnin send í tölvupósti. Tilboðum skal skila á Verkfræðistofu Suðurlands, Austurvegi 1-5 2.hæð gengið inn á austurhlið, fyrir kl. 11:00 miðvikudaginn 3. apríl 2013, en þá verða þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Umsóknir um dvöl í íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn 2013-2014 Íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn, skv. reglum um hús Jóns Sigurðssonar, er laus til afnota tímabilið 28. ágúst 2013 til 26. ágúst 2014. Allar nánari upplýsingar og sérstök eyðublöð er að finna á heimasíðu Jónshúss: jonshus.dk (Fræðimannsíbúð). Umsóknir um íbúðina skulu hafa borist skrifstofu Alþingis eigi síðar en þriðjudaginn 16. apríl nk. Tollstjóri Sýslumaðurinn í Kópavogi Sýslumaðurinn í Hafnarfirði Sýslumaðurinn í Keflavík Sýslumaðurinn á Akranesi Sýslumaðurinn í Borgarnesi Sýslumaðurinn í Stykkishólmi Sýslumaðurinn í Búðardal Sýslumaðurinn á Ísafirði Sýslumaðurinn í Bolungarvík Sýslumaðurinn á Patreksfirði Sýslumaðurinn á Hólmavík Sýslumaðurinn á Siglufirði Sýslumaðurinn á Sauðárkróki Sýslumaðurinn á Blönduósi Sýslumaðurinn á Akureyri Sýslumaðurinn á Húsavík Sýslumaðurinn á Seyðisfirði Sýslumaðurinn á Eskifirði Sýslumaðurinn á Höfn Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum Sýslumaðurinn á Selfossi Sýslumaðurinn í Vík Sýslumaðurinn á Hvolsvelli Greiðsluáskorun Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar: Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur í eindaga til og með 15. mars 2013, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5. mars 2013 og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 15. mars 2013, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds, virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, vanskilum launagreiðenda á gjöldum í og utan staðgreiðslu, fjármagnstekjuskatti á skilaskylda aðila, áfengisgjaldi, launaskatti, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, olíugjaldi, kílómetragjaldi, gistináttaskatti, fjársýsluskatti, viðbótar- og aukaálagningu söluskatts vegna fyrri tímabila, skráningargjaldi vegna lögskráningar sjómanna, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, aðflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum, fisksjúkdómagjaldi, jarðarafgjaldi, sektum skattrannsóknarstjóra, ofgreiddri uppbót á eftirlaun, eftirlitsgjaldi Fjármálaeftirlitsins og álögðum þing- og sveitarsjóðsgjöldum, sem eru: Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda. Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 19.100 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald er 2.000 kr. og stimpilgjald 1,5% af heildarskuldinni, auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað. Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald, afdreginn fjármagnstekjuskatt, áfengis- gjald og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er skulda bifreiðagjöld og þungaskatt mega eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda gjöld þar sem lögveð fylgir mega búast við að send verði út sérstök greiðsluáskorun fyrir gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði þannig að fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum. Reykjavík, 16. mars 2013 Tekjuskattur og útsvar ásamt verðbótum á ógreiddan tekjuskatt og útsvar, sérstakur tekjuskattur manna, eignarskattur, sérstakur eignarskattur, fjármagnstekjuskattur, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, tryggingagjald, búnaðargjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjald, markaðsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra og skattur af verslunar- og skrif- stofuhúsnæði, ofgreiddar barnabætur, ofgreiddar vaxtabætur og útvarpsgjald. Kópavogsbær ÚTBOÐ NÝTT GERVIGRASYFIRBOÐ Fífan knattspyrnuhús Kópavogsbær óskar eftir tilboðum endunýjun á gervigrasi á knattspyrnuvelli knattspyrnuhússins Fífunar ásamt tilheyrandi búnaði, einnig skal fjar- lægja hluta af hlaupabrautum og endurgera. Helstu magntölur eru: Gervigrasyfirborð 7.668 m² Hlaupabrautir 435 m² Verkinu skal að fullu lokið 3. september 2013. Útboðsgögn verða seld á kr. 5.000 – í þjónustuveri Kópavogsbæjar Fannorg 2 frá og með þriðjudeg- inum 19. mars 2013. Tilboðum skal skilað á sama stað þriðjudaginn 9. apríl 2013 fyrir kl. 11:00 og verða þau þá opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þar mæta. 16. mars 2013 LAUGARDAGUR18
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.