Fréttablaðið - 16.03.2013, Page 75
KYNNING − AUGLÝSING Brugghús16. MARS 2013 LAUGARDAGUR 3
Baldur er fyrsti íslenski bruggmeistari á Ís-landi eftir að bjórinn var leyfður árið 1989. Hann starfaði sem matvælafræðingur hjá
Vífilfelli en hélt síðan í nám í bruggun og eimun
við Heriot Watt-háskólann í Edinborg í Skotlandi og
tók við sem bruggmeistari árið 1993. Vífilfell hefur
komið með tólf nýja bjóra á markað á undanförnum
tveimur árum og Baldur á heiðurinn af þeim öllum.
„Stór hluti af starfi mínu er að þróa nýjar tegundir
af bjór. Þegar ég fæ hugmynd að bjór legg ég hana
undir markaðsdeild til að kanna grundvöllinn, til
dæmis einhverja ákveðna bragðgerð sem forvitni-
legt væri að prófa. Ef við sjáum markaðstækifæri
er hafist handa og þá velti ég þróuninni fyrir mér,
meðal annars hversu sterkur bjórinn ætti að vera.
Uppskriftin verður fyrst til á blaði en síðan tekur
við prufubrugg áður en smakkið hefst. Smakkið er
síðan gríðarlega mikilvægt,“ útskýrir Baldur.
Þegar hann er spurður um uppáhaldsbjórinn, svar-
ar hann: „Ja, við eigum vinsælustu bjórana á mark-
aðnum. Þeir hafa gengið vel og þá sérstaklega Vík-
ing Gylltur, Thule, Víking lager og Víking Lite. Síðan
hefur Víking jólabjórinn slegið í gegn,“ segir Baldur
sem um þessar mundir er að koma páska bjórnum
á markað. „Við erum með tvær gerðir af páskabjór
og nú í fyrsta skipti í dósum og PáskaBock sem er
sterkari og bragðmeiri bjór.“
Löng saga
Saga Vífilfells sem bjórframleiðanda á rætur að
rekja til Siglufjarðar árið 1939. Verksmiðjan flutti
síðan til Akureyrar um 1950. Vífilfell hefur verið
mjög öflugt í vöruþróun á undanförnum árum þar
sem farnar eru ótroðnar slóðir. Stout er til dæmis
fyrsti íslenski stout bjórinn, Pils Organic er eini vott-
aði lífræni bjórinn framleiddur á Íslandi. JólaBock
og PáskaBock hafa fengið gríðarlegt lof frá gagnrýn-
endum. Nýjustu bjórarnir komu á markað í janú-
ar, Þorraþræll, sem var fyrsti íslenski bitter bjór-
inn, og EiniberjaBock, sem er fyrsti íslenski bjórinn
kryddaður með einiberjum. Vífilfell leggur gríðar-
lega mikið upp úr faglegum vinnubrögðum og er
með tvær rannsóknarstofur sem sinna eftirliti með
framleiðslunni.“
Bragðið skiptir máli
Baldur segir starfið mjög skemmtilegt og gant-
ast með að hann taki sér frí frá drykkjunni um
helgar. „Menn myndu ekki endast lengi í þessu
starfi ef þeir væru alltaf fullir en smökkunin er
afar mikilvæg. Bragðið ræður ferðinni,“ segir
Baldur. Hann segir að bragðsmekkur Íslendinga
hafi breyst mikið síðustu tíu árin. „Í upphafi var
nær eingöngu horft í áfengisprósentuna en minna
í bragð. Upp úr aldamótunum fór maður að sjá
breytingu og sú þróun varð á heimsvísu. Árstíða-
bundnir bjórar komu sterkir inn og ýmsir sér-
bjórar. Í dag er mikill áhugi á slíkum bjórum og
fólk er miklu opnara fyrir að prófa nýjar tegund-
ir. Sá áhugi kemur með breyttum lífsstíl, fólk er
farið að huga meira að uppruna vörunn-
ar. Íslenski bjórinn er gerður úr íslensku
vatni sem er það besta í heimi og það
skiptir miklu máli í framleiðslunni. Við
erum óbundnir af hefðum og óhrædd-
ir að prófa eitthvað nýtt, til dæmis ýmsar
krydd tegundir sem eru mjög spennandi.“
Hitaeiningasnauður
Baldur segir að bjór sé ekki fitandi sé
hann drukkinn í hófi. „Það er mun frek-
ar naslið sem fólk borðar stundum með
honum sem er fitandi,“ segir hann.
„Bjórinn er hitaeiningasnauður en
þær aukast eftir áfengisstyrkleika.
Bjórinn er heldur ekki óhollur í hófi
því í honum eru B-vítamín, ýmis
steinefni og andoxunarefni sem
koma úr humlum.“
Baldur segir neysluna mun jafnari
en áður. „Áður fyrr var hún bara um
helgar en nú er neyslan jafnari og
veðrið getur skipt þar máli. Fólk er
ekki lengur litið hornauga þótt það
sitji með bjór í miðri viku.“
Útflutningur
Baldur og Vífilfell vinna með
Bandaríkjamönnum í að markaðs-
setja íslenskan bjór erlendis. Verkefnið
byrjaði sem vatnsútflutnings verkefni
en snerist yfir í útflutning á bjór þegar
eigendurnir höfðu smakkað Víking
bjór í ferð sinni um Ísland. Nú eru
f luttir tugir gáma af bjór frá Vífil-
felli til Bretlands og Bandaríkjanna
á hverju ári. Þarna koma því miklar
útflutningstekjur til landsins. Þess-
ir bjórar eru Einstök White Ale, Ein-
stök Pale Ale, Einstök Toasted Porter
og síðan jólabjórinn Einstök Doppel-
bock. Allir þessir bjórar eru til sölu á
Íslandi.
Bruggar vinsælasta
bjórinn á Íslandi
Baldur Kárason hjá Vífilfelli er bruggmeistarinn á bak við Víking bjór, Thule og fleiri vinsælar tegundir.
Hann er stöðugt að þróa nýja bjóra, enda hefur bragðsmekkur landans þróast mikið undanfarin ár.
Baldur Kárason, brugg-
meistari hjá Vífilfelli, er
stöðugt í vöruþróun og
finnst spennandi að búa
til nýjar tegundir af bjór.
MYND/AUÐUNN