Fréttablaðið - 02.05.2013, Side 33
www.visir.is Sími: 512 5000 | Fimmtudagur 2. maí 2013 | 19. tölublað | 9. árgangur
KYNJAHLUTFÖLL JAFNAST
Í SKRÁÐUM FYRIRTÆKJUM
➜ Viðtal við Pál Harðarson, forstjóra Nasdaq OMX Iceland
➜ Sama konan er stjórnarformaður í tveimur skráðum félögum
➜ 46 prósent stjórnarmanna íslenskra Kauphallarfélaga eru konur
SÍÐA 4
F Y R S TA
F L O K K S
Þ JÓNUSTA
OYSTER PERPETUAL DATEJUST
Benda ferðalöngum á Amivox
Ferðavefurinn HomeExchange.com bendir við-
skiptavinum sínum sérstaklega á að nota þjónustu
íslenska sprotafyrirtækisins Amivox til að draga
úr kostnaði sínum við símanotkun í útlöndum. Eric
Figueras Torras, framkvæmdastjóri Amivox, fagn-
ar samstarfinu við HomeExchange og kveður það
auka til muna sýnileika fyrirtækisins utan land-
steinanna. Um sé að ræða viðbót við þjónustu þar
sem fólk geti náð miklum sparnaði í símhringing-
um milli landa eða þegar ferðast er með farsíma
til útlanda. Viðskiptavinir Amivox eru nú um 40
þúsund talsins, en fyrirtækið hefur fengið styrki
frá bæði Impru og Tækniþróunarsjóði. - óká
Starfsemi Icelandair Group óx
mikið á fyrsta ársfjórðungi
Icelandair Group tapaði 18,3 milljónum Banda-
ríkjadala, jafngildi ríflega 2.100 milljónum króna,
á fyrsta ársfjórðungi ársins. Til samanburðar var
tap félagsins 13,2 milljónir dala á sama tímabili í
fyrra. Á ársfjórðungnum jukust rekstrartekjur um
ríflega 15 milljónir dala en rekstrar kostnaður jókst
meira eða um ríflega 20 milljónir dala. Í frétta-
tilkynningu er haft eftir Björgólfi Jóhannssyni, for-
stjóra Icelandair Group, að afkoma félagsins á árs-
fjórðungnum hafi verið betri en spár gerðu ráð
fyrir og áætlanir um vöxt gengið eftir.
Nokkurrar árstíðasveiflu gætir jafnan í rekstri
Icelandair Group. Þannig er fyrsti árs fjórðungur
yfirleitt lakasti fjórðungur félagsins, sem hefur síð-
ustu ár skilað tapi á fyrsta og fjórða árs fjórðungi
en hagnaði á öðrum og þriðja. Árs niðurstaðan
hefur síðan verið jákvæð síðustu þrjú ár. - mþl
Noma velt úr fyrsta sætinu
Norræna veitingastaðnum Noma í Kaupmanna-
höfn, sem fjöldi Íslendinga hefur snætt á síðustu
ár, hefur verið velt úr fyrsta sætinu á listanum
yfir 50 bestu veitingahús heims. Breska tímarit-
ið Restaurant gefur út listann, sem byggir á mati
alþjóðlegs hóps kokka, veitingahúsaeigenda og
matar gagnrýnenda. Í 2013-útgáfu listans er Noma,
sem hefur verið í fyrsta sæti síðustu þrjú ár, í öðru
sæti en í fyrsta sæti er El Celler de Can Roca í
Girona í Katalóníu á Spáni. - mþl