Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.05.2013, Qupperneq 15

Fréttablaðið - 15.05.2013, Qupperneq 15
MIÐVIKUDAGUR 15. maí 2013 | SKOÐUN | 15 Krafan um að skuldugu fólki verði bætt áföllin sem urðu vegna afleiðinga hrunsins – vegna „for- sendubrestsins“ svonefnda – er einfaldlega krafa um að staða skuldsettra heim- ila verði gerð sú hin sama og hún var fyrir hrun. Þessa sömu kröfu má eins orða þannig: „Við viljum fá 2007 aftur!“ Þá þegar voru samt 16 þúsund heim- ili komin á vanskilaskrá – höfðu sem sé lifað langt um efni fram og sáu fram á greiðsluþrot. Níu þús- und heimili bættust við skrána við hrunið. Er fólk þá sátt við að ein- ungis þeim heimilum, sem bætt- ust á vanskilaskrána í hruninu, verði hjálpað? Er krafan um að „forsendubresturinn“ sé bættur ekki einvörðungu sú? Að hin 16 þúsundin verði þá skilin eftir eins og þau voru á sig komin af eigin völdum fyrir hrun – án nokkurs „forsendubrests“? Eða er ætlast til þess að skuldlitlir lífeyris þegar, skuldlitlir skattborgarar – nú eða erlendir lánveitendur, sem skuldunautar þeirra kalla „hrægamma“, taki þeirra vanda á sig líka? Vanda þessara 16 þúsunda sem komu sér á vanskilaskrá án nokkurrar utanaðkom- andi „aðstoðar“? Af ein- hverjum orsökum hefur hin sjálfhverfa kynslóð aldrei gefið neitt svar við þessari einföldu spurn- ingu? Þeir Bjarni og Sig- mundur Davíð vita því ekki hvað skuldsetta fólkið vill nákvæmlega. Vill það „forsendubrestinn“ einan bættan – eða vill það að skuldir þess alls séu greiddar niður, hvernig svo sem skuldavandinn er til kominn? 2007 á góðri leið Vill þetta fólk virkilega fá lífs- hættina eins og þeir voru fyrir hrun aftur – fá aftur ástandið sem skóp „forsendubrestinn“? Þegar draumurinn var að græða á daginn og grilla á kvöldin. Þegar íslensk heimili urðu á fjórum árum skuld- settustu heimili innan OECD. Ég fæ satt að segja ekki séð annað en að íslenska þjóðin sé á góðri leið áleiðis að því markmiði – án nokk- urrar hjálpar annarra en sjálfrar sín. Árið 2007 námu yfirdráttar- skuldir heimilanna, kreditkorta- skuldir og neyslulán 77 milljörðum króna. Nú nálgast þessar skuldir 90 milljarða! Fyrir hrun hugð- ust fjölmargir Íslendingar hagn- ast á því að slá lán til hlutafjár- kaupa, græða á því morð fjár og komast með tærnar á hæla gull- drengjanna, sem var æðsti óska- draumur fjölmargra heimilisfeðra. Nú eru menn aftur byrjaðir á sama athæfi. Slá lán til hlutafjárkaupa í von um margfalda uppskeru. 2007 er komið á færibandið og færist nær! Aftur hægt að grilla Heildarhagsmunir er orð sem virðist vera illskiljanlegt, a.m.k. er það ekki í hávegum haft. Góð- kunnur rithöfundur og íslensku- maður sagði mér á dögunum, að nú skildu nemendur í íslenskunámi; framhaldsnámi; ekki lengur orðið „blæbrigði“. Hví ætti fólk þá að skilja orðið „heildarhagsmunir“? Samt er þó enn fullur skilningur á orðinu „eiginhagsmunir“. Þar er átt við budduna, hvað kemur mikið af aurum í hana og að aurarnir komi strax. Sama hvaðan „gott“ kemur; hvort heldur frá afa og ömmu, frá nágrönnunum nú eða „hrægömm- unum“ – bara að það komi, komi strax og komi nóg. Þá getum við nefnilega aftur farið að grilla. 2007 í augsýn! Nú er liðinn síð- asti opnunardag- ur á skíðasvæð- inu í Bláfjöllum. Fjöll in bar við bláan himinn, sólin skellihló og hvítir topp- ar toguðu til sín marga skíða- menn á öllum aldri bæði á mið- vikudagskvöld og fimmtudag. Haldin var hátíð snjóbretta og skíðamanna miðvikudagskvöldið 7. maí í dulúðlegri kvöldstemning- unni. Af hverju er þetta merkilegt? Jú, maímánuður er nærri hálfnaður og enn þá er fullt af snjó á skíða- svæðinu. Þvílíkt færi, hart og vel troðið um morguninn, sólin mýkti svo snjóinn aðeins síðdegis. Mikil vinna á bak við hvern dag Í vetur hefur verið opið í Blá- fjöllum í 74 daga. Þegar mest hefur verið voru um 5.000 gestir á svæðinu. Ef skoðað er meðaltal gesta í vetur hafa verið um 1.100 gestir hvern einasta dag í fjallinu. Það hefur verið ærin vinna að ná þetta mörgum dögum í fjallinu og eiga Einar Bjarnason og hans harðduglegu starfsmenn mikið hrós skilið. Ég held að enginn viti hvað mikil vinna liggur á bak við glæsilegan dag í Blá fjöllum. Eld- snemma þarf að byrja að berja ís af vírum, undirbúa lyftur, kalla til starfsmenn á hverja vinnu- stöð og halda svo öllu gangandi fram til kvölds. Þegar mest hefur verið að gera eru 50 starfsmenn að vinna á svæðinu. Þetta er atvinnuskapandi og ánægjuskap- andi vinnustaður. Á degi eins og síðasta opnunar- daginn voru fjölskyldur með fullt af börnum á öllum aldri á leið upp í Töfrateppinu, ein barnalyfta var opin og starfsmaður kallaði hvatn- ingarorð til eins gutta sem datt aftur og aftur: „Þetta er alveg að koma hjá þér.“ Stöðug umferð var í fjögurra stóla lyftuna í Kóngsgili og alls staðar var líf og fjör í frá- bæru veðri. Að rekstrinum standa sjö sveitarfélög á höfuðborgar- svæðinu. Ef forsvarsmenn þess- ara sveitarfélaga sæju hversu heil- brigt og gott starf fer þarna fram væru þeir stoltir af að fá að vera með. Ég vil með orðum mínum beina þeirri ósk til sveitarfélag- anna sem reka skíðasvæðið að líta á fjöllin sem auðlind og það starf sem þar fer fram. Ég sem skatt- greiðandi í þessu samfélagi er stolt af því að leggja eitthvað af mörk- um til að þessi frábæra íþrótt fái að vaxa og dafna. Auðlindin fjöll … Auðlindin Bláfjöll! FJÁRMÁL Sighvatur Björgvinsson fv. ráðherra ➜ Vill þetta fólk virkilega fá aftur lífshættina eins og þeir voru fyrir hrun … ÍÞRÓTTIR Hildur Jónsdóttir skíðakona ➜ Þetta er atvinnuskapandi og ánægjuskapandi vinnu- staður. ED DU MED DÍBBLAD NEB? Nezeril 0,1 mg/ml, 0,25 mg/ml og 0,5 mg/ml nefúði, lausn. 1 ml inniheldur: Oximetazolinhýdróklóríð 0,1 mg, 0,25 mg eða 0,5 mg. Notkun: Nezeril er notað gegn einkennum eins og nefrennsli, bólgum í nefslímhúð og nefstíflu vegna kvefs eða skútabólgu (sinusitis), eða sem stuðningsmeðferð við miðeyrnabólgu og ofnæmisbólgum í nefi. Ekki skal nota Nezeril ef þekkt er ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefni þess. Skömmtun: Börn frá 7 mánaða - 0,1 mg/ml, 2 úðar í hvora nös 2-3 sinnum á sólarhring. 2 úðar í hvora nös 2-3 sinnum á sólarhring. Börn frá 2 ára – 0,25 mg/ml, 1 úði í hvora nös 2-3 sinnum á sólarhring. Börn frá 7 ára – 0,25 mg/ml, 2 úðar í hvora nös 2-3 sinnum á sólarhring. Fullorðnir og börn frá 10 ára – 0,5 mg/ml: 2 úðar í hvora nös 2-3 sinnum á sólarhring. Nezeril má mest nota í 10 daga samfleytt. Varnaðarorð: Segið lækni frá því ef einhverjir aðrir sjúkdómar eru til staðar, sérstaklega hjartasjúkdómar, ofstarfsemi skjaldkirtils eða gláka (þrönghornsgláka), áður en byrjað er að nota Nezeril. Lesið vandlega leiðbeiningar um notkun lyfsins í fylgiseðli. Fulltrúi markaðsleyfishafa: GlaxoSmithKline ehf. Þverholti 14, 105 Reykjavík, Ísland, Sími 530 3700. Tilkynning um aukaverkanir: Aukaverkanir má tilkynna á vef Lyfjastofnunar: www.lyfjastofnun.is/Aukaverkanir/tilkynna eða til GlaxoSmithKline í síma 530 3700. Þarftu að losa um stífluna? Notaðu Nezeril og andaðu léttar. ÁN ROTVARNAR- EFNA D Y N A M O R E Y K JA V ÍK Margrét Guðmundsdóttir, forstjóri Icepharma er gestur MBA námsins við Háskóla Íslands, fimmtudaginn 16. maí kl. 12:15-13:00 í stofu 101 á Háskólatorgi. Fundarefnið: Hvað ræður árangri íslenskra kvenstjórnenda? Margrét hefur um árabil starfað sem stjórnandi bæði hér á landi og erlendis. Auk forstjórastarfsins er hún stjórnarformaður N1 og fékk hún nýlega FKA viðurkenninguna 2013 hjá Félagi kvenna í atvinnulífinu. Skráning hjá lena@hi.is www.mba.is Margrét Guðmundsdóttir „Hún var rétt rúmur metri á hæð þegar hún ákvað að hún ætlaði aldrei að verða heimavinnandi húsmóðir. Ástæðan var einföld og rökrétt, henni hundleiddust húsverk og þar með var það afgreitt“ Úr viðtali við Margréti vegna FKA viðurkenningarinnar 2013

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.