Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.05.2013, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 15.05.2013, Qupperneq 22
FÓLK|FERÐIR FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs- ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir jmh@365.is s 512 5473 Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, s 512 5432 Elsa Jensdóttir elsaj@365.is s. 512-5427 FRÁBÆRT VERÐ Lambaborgari bernaise með laukhringjum og frönskum kostar aðeins 1.390 kr. MYND/GVA Íslenskt lambakjöt hefur fengið heiðurssess á Texasborgurum við Grandagarð. „Í Texas hafa þeir nautið en lambið er auð-vitað langbesta kjöt sem við getum fengið,“ segir Magnús Ingi Magnússon veitingamaður. „Við úrbeinum og hökkum lambalæri og búum til hamborgara úr því án nokkurra aukaefna. Þetta er því eins hreint og heilnæmt gæðahráefni og hægt er að hugsa sér.“ Lambaborg ararnir ásamt meðlæti kosta aðeins 1.390 kr. Þeir eru 140 grömm, bornir fram með djúpsteiktum laukhringj- um, grænmeti og hamborgara- og kryddsósu. Meðlætið er fransk- ar og ekta heimalöguð bernaise-sósa. Nánar á texasborgarar.is, og á Facebook. LAMBABORGARI MEÐ BERNAISE-SÓSU Texasborgarar kynna Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins og Krabbameinsfélag Reykjavíkur standa að örráð- stefnu um húðkrabbamein og sortuæxli fimmtudaginn 16. maí kl. 16.30. Ráðstefnan er í húsi Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð 8. Frá árinu 1990 til 2000 fjórfald- aðist nýgengi sortuæxla hjá Íslendingum. Svipuð aukning var hjá körlum og konum. Hjá yngri en 50 ára var aukningin mun brattari, einkum hjá konum en þar féll nýgengið aftur. Líkleg skýring er breyting í sólbekkjanotkun og að þessi aldurshópur er duglegri að láta athuga grunsamlega bletti sem greindust því fyrr. Hjá einstaklingum 50 ára og eldri er myndin önnur. Þar er nýgengið mun hærra og aukn- ingin stöðug. Þetta bendir til þess að eldra fólk þurfi að gera átak í að láta skoða fæðingar- bletti. Guðlaug Birna Guðjónsdótt- ir, framkvæmdastjóri Krabba- meinsfélags Reykjavíkur, setur ráðstefnuna. Erindi flytja dr. Bárður Sigurgeirsson húð- sjúkdómalæknir, Gunnar Bjarni Ragnarsson krabbameinslækn- ir, Laufey Tryggvadóttir fram- kvæmdastjóri Krabbameins- skrárinnar og Vala Smáradóttir aðstandandi. Í lok ráðstefnunnar verða umræður og fyrirspurnir. Fund- arstjóri er Helga Möller söng- kona. Allir eru velkomnir. ÖRRÁÐSTEFNA UM HÚÐKRABBAMEIN Krabbameinsfélag Reykjavíkur kynnir FYRIRLESTRAR Laufey Tryggvadóttir er meðal þeirra sem halda fyrirlestra á ráðstefnunni. ■ BANNAÐ Tyrkneska flugfélag- ið Turkish Airlines hefur bannað flug- freyjum félagsins að nota rauðan varalit í vinnunni. Þetta er gert þrátt fyrir að litur félagsins og búninga sé rauður. Sömuleiðis hefur flugfélagið sett sig á móti því að flugfreyjurnar noti hárprjón til að setja upp hár- ið eða liti það í rauðum tónum. Það er því ljóst að ekki er auðvelt að starfa fyrir Turkish Airlines, enda hafa þær mótmælt þessum reglum meðal annars með því að setja eldrauðan lit á varirnar. Turkish Airlines hefur notið velgengni undanfarið og fengið mikið hrós fyrir þjónustu um borð. Það er news.com.au sem greinir frá þessu. EKKI RAUÐAN VARALIT Matartengd ferðaþjónusta nýtur sívaxandi vinsælda hérlendis. Þótt hún hafi verið við lýði hér á landi í áratugi í einhverri mynd má segja að hún hafi tekið kipp upp úr síðustu alda- mótum að sögn Laufeyjar Haraldsdóttur, lektors við Háskólann á Hólum. Skólinn býður upp á B.A. nám í ferðamálafræði og er matartengd ferðaþjónusta kennd í séráfanga í náminu. „Staða matartengdrar ferðaþjónustu er góð hér á landi og er allt- af að verða betri og betri. Ísland hefur á vissan hátt fjarlægst áhersluna á víkingana í norðri með sína grófu matarhefð og lagt meiri áherslu á náttúruna og grænu gildin. Þannig höfum við byggt upp ímynd af hraustri þjóð í norðri sem lifir af gæðum náttúrunnar og er stolt af arfleið sinni en kann samt að færa hana í nútímabúning.“ Hún segir mikil tækifæri felast í matar- tengdri ferðaþjónustu fyrir smá sem stór fyrirtæki hérlendis enda líti fleiri og fleiri ferðamenn á matinn sem mikilvægan hluta af upplifun á ferðalagi. „Yfirvöld, einstaka landshlutar og fyrirtækin hafa áttað sig á þessu og vilja nýta þau tækifæri sem skap- ast kringum þennan áhuga.“ Að sögn Laufeyjar er Ísland þekktast fyrir fiskinn og sjávarfangið. „Við eigum að halda áfram að leggja áherslu á fiskinn en lambakjötið okkar hefur einnig mikla sér- stöðu og þessa tengingu við villta náttúru. Einnig má nefna grænmetið sem ræktað er með umhverfisvænum orkugjöfum og mjólkurvörurnar, til dæmis skyr og osta. Svo erum við að verða sífellt færari í því að nota jurtir sem bragðaukandi þátt í mat og sem krydd.“ Ferðamenn taka líka oft þátt í að veiða matinn eða tína hann og því verður upplifun þeirra enn meiri. „Þannig sjá þeir matinn í upprunalegu umhverfi sínu. Þeir taka líka stundum þátt í að elda matinn og svo borða þau hann auðvitað að lokum.“ GÆÐI LANDSINS Í NÚTÍMABÚNINGI MATUR Á FERÐALÖGUM Sífellt fleiri ferðamenn líta á mat sem mikilvægan þátt í upplifun ferðalags. Matartengd ferðaþjónusta vex hratt hér á landi. KRÆSINGAR Efst eru ýmsar kræs- ingar úr náttúrunni. Til hliðar er saltkjöt og baunir í nýstárlegum búningi. Neðst má sjá ís úr kaplamjólk. MYND/ÚR EINKASAFNI Laufey Haraldsdóttir, lektor við Háskólann á Hólum. MYND/ÚR EINKASAFNI Minna að fletta meira að frétta F ÍT O N / S ÍA BESTI FRÉTTA- OG AFÞREYINGARVEFURINN Úr umsögn dómnefndar: „Vefurinn býður upp á margskonar afþreyingu auk gífurlegs úrvals frétta. Vefurinn er léttur og skemmtilegur auk þess sem einfalt og fljótlegt er að finna það efni sem leitað er að.“

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.