Fréttablaðið - 15.05.2013, Side 27

Fréttablaðið - 15.05.2013, Side 27
BEINT BEINT 365 MIÐLAR | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Umbrot: Jónas Unnarsson Hljómsveitin Sigur Rós bætist í hóp heimsþekktra listamanna þegar með- limum hennar bregður fyrir í næst- síðasta þætti 24. seríu Simpsons-þátt- anna sem sýndur verður á Stöð 2 næsta mánudag. Tveir síðustu þættir seríunn- ar verða sýndir í Bandaríkjunum 19. maí og sólarhring síðar á Stöð 2. Hljóm- sveitin var einnig beðin um að semja tónlist fyrir þáttinn en engin hljómsveit hefur áður hlotið þann heiður. Georg Hólm, bassaleikari sveitarinnar, segir verkefnið hafa borið brátt að en það hafi verið skemmtileg áskorun. „Okkur skilst að Matt Groening, höfundur Simpsons-þáttanna, sé mikill aðdáandi hljómsveitarinnar og þannig hafi þetta upprunalega komið til. Við erum auðvi- tað allir aðdáendur þáttanna og fannst þetta vera skemmtilegt verkefni.“ Meðal frægra tónlistarmanna sem birst hafa í þáttunum vinsælu eru Aerosmith, Michael Jackson og bítl- arnir Ringo Starr, George Harrison og Paul McCartney. Georg segir tónlistina sem hljómar í þættinum hafa verið samda á tón- leikaferðalagi sveitarinnar um Evr- ópu í febrúar og mars. „Við settum upp litlar vinnustofur á tónleikastöðunum og unnum í þessu verkefni eins og tími gafst til.“ Þátturinn ber heitið „The Saga of Carl Carlsson“ og fjallar um ferðalag Homers, Carls, Lennys og barþjóns- ins Moes til Íslands. Félagarnir kaupa lottómiða saman og vinna stóra vinn- inginn. Carl stelur miðanum og flýr til Íslands en hann á ættir að rekja þang- að og dvaldi þar á sínum yngri árum. Hinir þrír leggja því í ferðalag á eftir honum og lenda í ýmsum ævintýrum. Tveir þættir verða sýndir á mánu- dagskvöld og kemur Sigur Rós fram í fyrri þætti kvöldsins. SIGUR RÓS Í SIMPSONS Georg Hólm, bassaleikari Sigur Rósar. Dómarar í American Idol segj- ast aldrei hafa haft jafn sterka keppendur og þennan veturinn. Sérstaklega voru þeir hrifnir af þeim þremur stúlkum sem kepptu í síðasta þætti. Nú eru bara tvær eftir, þær Candice Glover og Kree Harr- ison, sem keppa um titilinn annað kvöld í beinni útsendingu á Stöð 2 og hefst fjörið klukkan 23.15 þegar sýndur verður fyrri þáttur vikunnar. Þar syngja stúlkurnar tvær sem keppa til úrslita þrjú lög hvor. Síðan verð- ur skipt yfir í beina útsendingu á miðnætti þar sem úrslitin verða tilkynnt. Í síðasta þætti datt hæfileika- rík söngkona úr keppni, Angie Miller, en margir töldu að hún myndi keppa til úrslita. Það verð- ur mikið um dýrðir þegar keppn- in verður send út beint frá Holly- wood og munu allir keppendur sem komust í úrslit koma fram í þættinum auk eldri keppenda. Ákveðið hefur verið að Americ- an Idol verður aftur að ári og þá í þrettánda skiptið. Randy Jackson hefur tilkynnt að hann ætli að hætta sem dómari en hann hefur verið með frá upphafi. ÚRSLITASTUND AMERICAN IDOL Kree Anette Harrison er fædd 17. maí 1990 og á því afmæli daginn eftir úrslitakeppnina. Hún kemur frá Port Arthur í Texas. Sorgaratburðir höfðu áhrif á líf hennar. Hún missti föður sinn í fl ug- slysi 11 ára og 19 ára missti hún móður sína. Candice Rickelle Glover er fædd 22. nóvember 1989. Hún kemur frá eyjunni St. Helena í Suður-Karólínu. Hún er elst sjö systkina. Hún hefur verið sögð besti fl ytjandi keppninnar frá upphafi og eru sigurlíkur hennar miklar. MYND/GVA THE SIMPSONS Kl. 19.45 mánudag AMERICAN IDOL Kl. 23.15 fi mmtudag Billboard-tónlistarverð- launahátíðin fer fram á hvítasunnudag og verð- ur sýnd í beinni útsendingu á Popptíví. Á hátíðinni verður lista- manninum Prince veitt sérstök heiðursviðurkenning auk þess sem hann mun taka lagið. Fjöldi vinsælla tónlistarmanna kemur fram á hátíðinni, þar á meðal Jennifer Lopez og Pitbull, Christina Aguilera, Justin Bieber og Bruno Mars. Flestar tilnefningar í ár fengu hljómsveitirnar Maroon 5 og fun., auk söngkonunnar Tay- lor Swift en þau fengu hvert ellefu tilnefningar. Kynnir hátíðarinnar er grínistinn Tracey Morgan sem þekkt- ur er úr grínþáttunum Saturday Night Live og 30 Rock. Billboard- verðlaunahátíðin BILLBOARD Kl. 00.00 sunnudag

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.