Fréttablaðið - 15.05.2013, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 15.05.2013, Blaðsíða 28
Hinn 21 árs gamli Jack Gleeson leikur hinn ógeðfellda unglingskonung Joffrey Barat- heon. Gleeson er írskur og þrátt fyrir ungan aldur enginn nýgræðingur þegar kemur að kvikmyndaleik. Hann fór með lítið hlut- verk í Batman Begins og fékk afar góða dóma fyrir aðalhlutverkið í myndinni All Good Children. Hann hefur leikið Joffrey frá því að hann var sautján ára og þarf að gera sér upp bresk- an hreim enda talar hann sjálfur með þykkum írskum hreim. Gwe og kr er bre í minn Imag er he engin og va Chris verkið krafta reiðtí HAFA GERT GARÐINN FRÆGA 15. maí 2013 MIÐVIKUDAGUR4 Leikarinn Kit Harington, sem túlkar Jon Snow í þátt- unum Game of Thrones, er heillaður af Íslandi. Hann hefur mært bæði land og þjóð í fjölmörgum viðtölum sem birst hafa um allan heim. Harington kom fyrst til Íslands fimmtán ára gamall og var þá strax áfjáður í að koma hingað aftur. Hann sneri síðan aftur til landsins nokkrum árum síðar með kvikmyndatökuliði Game of Thrones og barðist við kulda og trekk uppi á jökli. Hann segist hafa heillast samstundis af stórbrotinni náttúrunni. „Fegurðin er ótrúleg og við eyddum miklum tíma í að góna á landslag- ið,“ segir Harington í einu viðtalinu. Þá taldi hann það líkast því að lenda á tunglinu að koma til Íslands. „Ísland er land öfga, hér eru miklar sléttur og háir jöklar.“ Hari get ger segir h verður Hari tökum honum sammá Haring sem ha ir,“ seg Í ein sem ek ins. „Jö ÍSLANDSVINUR GAME OF THRONES Kl. 21.20 mánudag TYWIN LANNISTER Höfðingi Casterly Rock og afar valda- mikill maður. Afi Joffreys konungs og ráðgjafi hans. STANNIS BARATHEON Bróðir Roberts og telur sig hafa tilkall til krúnunnar. Beið mikinn ósigur við King’s landing. Er í slagtogi við nornina Melisandre. DAENERYS TARGARYEN STORMBORN Drekamóðir. Sú eina sem eftir lifi r af Targaryen-ættinni. JON SNOW Sonur Eddards Stark sem hann átti í lausaleik. Er í Næturvaktinni en er nú í slagtogi með Villingunum norðan Veggjarins. BRANDON STARK Lamaður eftir að Jamie Lannister ýtti honum ofan úr háum turni. Brandon hefur yfi rnáttúrulega krafta. RICKON STARK Yngsti Stark- drengurinn. Er á fl akki með bróður sínum Brandon eftir að Theon Greyjoy hertók Winterfell. ARYA STARK Slapp naumlega frá kónum Joffrey í King’s Landing og er nú á fl akki. SANSA STARK Var heitbundin Joffrey en á nú að giftast dvergnum Tyrion að skipun Tywins Lannister. THEON GREYJOY Ólst upp með Stark-systkinunum. Er sonur eins helsta óvinar ættarinnar. ROBB STARK Höfðingi af Winterfell og konungur Norð- ursins. LAFÐI CATELYN STARK Berst fyrir því að ná aftur dætrum sínum sem hún telur vera í haldi í King’s Landing. EDDARD STARK Höfðingi af Winterfell. Hálshöggvinn í lok fyrstu þáttaraðar að skipun Joffreys konungs. STARK-ÆTTIN Veturinn nálgast Winter is coming TARGARYEN-ÆTTIN Eldur og blóð Fire and blood LANNISTER-ÆTTIN Heyrið mig öskra Hear me roar BARATHEON ÆTTIN Ofsinn er okkar Ours is the fury TYRION LANNISTER Ráðsnjall og vel gefi nn en fyrirlitinn af föður sínum sem kennir Tyrion um dauða konu sinnar. JAIME LANNISTER. Konungabani. Vóg geðveika konunginn Aerys II Targaryen og batt þar með enda á aldalanga valdatíð Targaryen ættarinnar. ROBERT BARATHEON Konungur ríkjanna sjö. Drykkjurútur og lést í veiðislysi í fyrstu þáttaröð. Game of thrones er á dagskrá Stöðvar 2 á mánudags- kvöldum. CERSEI BARATHEON Cersei Baratheon, áður drottning og nú móðir konungsins. Hún á í ástarsam- bandi við tvíbura- bróður sinn Jaime. GENDRY Launsonur Robert Baratheon og því mögulegur erfi ngi krúnunnar. JOFFREY BARATHEON Konungur ríkjanna sjö. Opinberlega sonur Robert Baratheon en í raun sonur móður sinnar og móðurbróður, Jamie Lannister.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.