Fréttablaðið - 15.05.2013, Síða 50
15. maí 2013 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 26
visir.is
Allt um leiki
gærkvöldsins
SPORT
ÚRSLIT
PEPSI-DEILD KVENNA
ÞÓR/KA - STJARNAN 1-2
0-1 Harpa Þorsteinsdóttir (10.), 0-2 Elva
Friðjónsdóttir (27.), 1-2 Mateja Zver (65.)
ÍBV - HK/VÍKINGUR 7-2
1-0 Shaneka Gordon (7.), 2-0 Gordon (9.), 3-0
Rosie Sutton (11.), 4-0 Bryndís Jóhannesdóttir
(38.), 5-0 Bryndís Hrönn Kristinsdóttir (48.), 6-0
Ana Maria Escribano Lopez (62.), 6-1 Íris Dóra
Snorradóttir (81.), 7-1 Shaneka Gordon (85.), 7-2
Karen Sturludóttir (86.).
AFTURELDING - ÞRÓTTUR 2-0
1-0 Lára Kristín Pedersen (74.), 2-0 Telma
Hjaltalín Þrastardóttir (83.)
BREIÐABLIK - VALUR 1-0
1-0 Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir (64.)
FH - SELFOSS 1-2
1-0 Ashlee Hincks (27.), 1-1 Guðmunda Brynja
Óladóttir (53.), 1-2 Tiana R Brockway (83.)
ENSKA ÚRVALSDEILDIN
ARSENAL - WIGAN 4-1
1-0 Lukas Podolski (11.), 1-1 Shaun Maloney
(45.), 2-1 Theo Walcott (63.), 3-1 Podolski
(68.), 4-1 Aaron Ramsey (71.). Nýkrýndir
bikarmeistarar Wigan eru þar með fallnir.
READING - MANCHESTER CITY 0-2
0-1 Sergio Agüero (40.), 0-2 Edin Dzeko (88.).
STAÐA EFSTU OG NEÐSTU LIÐA
Man. United 37 28 4 5 81-38 88
Man. City 37 23 9 5 64-31 78
Chelsea 37 21 9 7 73-38 72
Arsenal 37 20 10 7 71-37 70
Tottenham 37 20 9 8 65-46 69
Everton 37 16 15 6 54-38 63
Liverpool 37 15 13 9 70-43 58
West Brom 37 14 6 17 48-52 48
FÓTBOLTI Baldur Sigurðsson átti
stórleik þegar KR hafði betur
gegn Keflavík, 2-0, suður með sjó
um helgina. Hann skoraði bæði
mörkin í leiknum og var þess utan
yfirburðamaður á miðsvæðinu, þar
sem hann spilaði sem varnartengi-
liður.
„Mér líður vel en það eru bara
tveir leikir búnir og ég ætla ekki
að ofmetnast,“ sagði Baldur í sam-
tali við Fréttablaðið í gær. Þess
má geta að hann skoraði einnig
tvö mörk í Keflavík fyrir tveimur
árum en í báðum leikjum léku KR-
ingar í appelsínugulu varabúning-
unum sínum. Baldur hefur skorað
fleiri mörk í varabúningnum sem
líkist búningi hans uppeldisfélags,
Eilífi í Mývatnssveit þar sem hann
er uppalinn.
„Jú, það er rétt,“ sagði Baldur
spurður um líkindin við gamla
búninginn en hann spilaði með
Eilífi þar til hann var fjórtán ára
og fór til Völsungs á Húsavík.
„Þetta virðist bara fara mér vel,“
bætti hann við í léttum dúr.
Meiðslafrír í vetur
Síðan þá hefur Baldur spilað með
Keflavík og Bryne í Noregi en
hann kom árið 2009 til KR þar
sem hann hefur verið lykilmaður.
Hann segist ánægður með líkam-
legt form sitt nú.
„Helsti munurinn á mér nú og
áður er að ég hef yfirleitt verið að
glíma við einhver meiðsli á undir-
búningstímabilinu. Það var ekki
tilfellið nú og því var ég í topp-
formi þegar tímabilið hófst,“ segir
Baldur sem var þó veikur fyrir
leikinn gegn Keflavík.
„Ég fékk magavírus og var með
hita í þokkabót, en gat sem betur
fer spilað. Ég reyndar verð að við-
urkenna að ég er enn frekar slapp-
ur en ég læt það ekki stoppa mig.
Ég mæti á æfingar og verð klár í
næsta leik,“ segir Baldur en KR
mætir Þór á heimavelli sínum á
fimmtudagskvöldið. Þór hefur
tapað báðum leikjum sínum til
þessa en Baldur varar við vanmati.
„Þórsarar veittu okkur harða
mótspyrnu í deildinni fyrir tveim-
ur árum og þeir verða bara enn
erfiðari fyrir vikið eftir tvo tap-
leiki í röð. Ég á því von á erfiðum
leik og við verðum að passa okkur
á því að koma inn í leikinn af full-
um krafti.“
Nú þegar tveimur umferðum er
lokið í Pepsi-deildinni hefur það
helst komið Baldri á óvart hversu
stórir sigrar hafa litið dagsins ljós.
„Yfirleitt eru fyrstu leikir tíma-
bilsins jafnir og miklir baráttuleik-
ir. En við höfum bara fengið eitt
jafntefli og nokkra mjög sannfær-
andi sigra. Eyjamenn hafa komið
skemmtilega á óvart og virðast
jafnvel vera með betra lið en menn
töldu fyrir fram,“ segir Baldur.
„Annars hafa úrslitin verið nokk-
urn veginn eftir bókinni og hefur
það komið mér örlítið á óvart.“
eirikur@frettabladid.is
Eilífsliturinn fer mér vel
Baldur Sigurðsson er leikmaður annarrar umferðar Pepsi-deildar karla að mati Fréttablaðsins. Hann skoraði
bæði mörk KR í 2-0 sigri á hans gamla félagi, Kefl avík. Baldur var að glíma við magavírus fyrir leikinn.
FAGNAR Baldur Sigurðsson fagnar marki í appelsínugulum varabúningi KR.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Róbert Örn Óskarsson FH
Jóhann Laxdal Stjarnan
Eiður Aron Sigurbjörnsson ÍBV
Bjarni Guðjónsson KR
Bjarni Ólafur Eiríksson Valur
Haukur Páll Sigurðsson Valur
Baldur Sigurðsson KR
Tonny Mawejje ÍBV
Bradley Simmonds ÍBV
Óskar Örn Hauksson KR
Atli Guðnason FH
Lið umferðarinnar
2200
POTTURINN STEFNIR Í
Fyrsti vinningur stefnir í 110 milljónir og Ofurpotturinn stefnir í 2.090 milljónir.
Ekki gleyma að vera með, fáðu þér miða fyrir klukkan fjögur í dag á
næsta sölustað eða á lotto.is
110.000.000
+2.090.000.000
ALLTAF Á MIÐVIKUDÖGUM!
MIÐINN GILDIR 15. MAÍ 2013A. 12 14 17 21 41 48
B. 05 16 23 36 37 38
C. 07 09 13 22 34 38
D. 03 06 19 24 25 31
E. 11 19 21 25 38 42
F. 01 25 35 36 39 46
G. 18 19 20 23 28 46
H. 22 27 29 39 40 42
82310000183296
SUMAROPNUN, SÖLU LÝKUR KL. 16
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
HANDBOLTI Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í Kiel tryggðu sér í gær þýska
meistaratitilinn í handbolta. Kiel vann sannfærandi sex marka sigur á Guð-
mundi Guðmundssyni og lærisveinum hans í Rhein-Neckar Löwen, 31-25, í
uppgjöri tveggja efstu liða deildarinnar. Kiel er með fimm stiga forskot á Löwen
sem er í 2. sæti en Löwen-liðið á aðeins tvo leiki eftir og getur því ekki náð Kiel.
Alfreð gerði Kiel því að meisturum í fjórða sinn á fimm árum. Kiel vann einnig
þýska bikarinn og er komið í úrslit í meistaradeildinni. Það stefnir því í enn eitt
frábært tímabil hjá Alfreð og lærisveinum hans.
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði þrjú mörk í leiknum og Aron Pálmarsson
skoraði tvö mörk. Guðjón Valur varð í kvöld þýskur meistari í fyrsta sinn á ferl-
inum en Aron var að vinna titilinn í þriðja sinn.
Guðjón Valur og Aron léku í gær eftir 35 ára gamalt afrek Axel Axelssonar og
Ólafs H. Jónssonar þegar þeir unnu þýska meistaratitilinn sem liðsfélagar. Axel
og Ólafur unnu þýska titilinn með Dankersen árið 1977. Axel skoraði þá sigur-
markið í hreinum úrslitaleik um titilinn. - óój
Íslenskir liðsfélagar þýskir meistarar í fyrsta sinn í 35 ár
FAGNAÐ Í GÆR Aron Pálmars dansar
sigurdansinn. NORDICPHOTOS/BONGARTS
Breiðablik, Stjarnan og Selfoss eru með fullt hús
eftir tvær fyrstu umferðirnar í Pepsi-deild kvenna
í fótbolta en önnur umferðin fór fram í gærkvöldi.
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir, til hægri, tryggði Blikum
1-0 sigur á Val með frábæru skoti.
Harpa Þorsteinsdóttir skoraði fyrra markið og lagði
upp það síðara þegar Stjarnan vann 2-1 útisigur á
Íslandsmeisturum Þór/KA. Harpa hefur komið að
öllum fimm mörkum Stjörnunnar í sumar.
Shaneka Gordon skoraði þrennu þegar ÍBV vann 7-2
stórsigur á nýliðum HK/Víkings í Eyjum en ÍBV-liðin
eru þar með búin að vinna þrjá fyrstu heimaleiki
sumarsins. Selfoss er búið að vinna tvo fyrstu leiki
sína undir stjórn Gunnars Rafns Borgþórssonar
eftir 2-1 sigur á FH í Kaplakrika.
Súper-sigurmark Þórdísar