Fréttablaðið - 20.06.2013, Blaðsíða 2
20. júní 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
HJÁLPARSTARF Aurora velgerðar-
sjóður veitti á árunum 2009 til 2011
hæsta framlag einkaaðila á Íslandi
til einstaks þróunarsamvinnuverk-
efnis hingað til. Aurora gaf alls
211 milljónir króna til verkefnis á
vegum UNICEF en auk þess veittu
stofnendur Aurora 37 milljónir til
verkefnisins.
Verkefnið sem um ræðir er
stuðningur við menntun barna í
Síerra Leóne, einu fátækasta ríki
heims. Menntun barna, og þá sér-
staklega stúlkna, er mjög ábótavant
í landinu. Þá er tíðni barnadauða í
landinu ein sú hæsta í heimi.
„Aurora og íslenska lands nefndin
hafa breytt landslaginu í mennta-
málum hér í Síerra Leóne,“ segir
Roeland Monasch, yfirmaður UNI-
CEF þar í landi. Þá segir hann að
framlag sjóðsins hafi kostað bygg-
ingu nýs skóla, kaup á nauðsyn-
legum námsgögnum og þjálfun
kennara.
UNICEF hefur í Síerra Leóne
þróað nýja nálgun til þess að
tryggja að fátæk börn fari í nám,
svokallaða mæðraklúbba. „Mæðra-
klúbbarnir fylgjast með börn-
unum, bregðast við vandamálum
þeirra, tala við foreldra og hafa
umsjón með sjóði sem styður börn
sem annars kæmust ekki í skóla til
náms,“ útskýrir Monasch.
Þessi nýja nálgun hefur reynst
mjög vel í hinu fátæka Konó-hér-
aði þar sem UNICEF hefur beitt
sér sérstaklega. Er því stefnt að því
að stofna mæðraklúbba alls staðar í
landinu á næstu árum. - ne
DÓMSMÁL Hæstiréttur sýkn-
aði í gær Stefán Loga Sívarsson
og Þorstein Birgisson af ákæru
um nauðgun í nóvember 2011.
Héraðs dómur hafði áður sakfellt
þá báða og dæmt Stefán í fimm
ára fangelsi og Þorstein í fjögurra
og hálfs árs fangelsi.
Í dómi Hæstaréttar er niður-
staða Héraðsdóms Reykjavíkur
frá því í janúar gagnrýnd og sagt
að þar hafi verið dregnar ályktan-
ir af framburði ætlaðs brotaþola
sem ekki fáist staðist.
Meirihluti Hæstaréttar segir
að verulegs misræmis gæti um
ýmis mikilvæg atriði í framburði
stúlkunnar, sem var rétt tæplega
nítján ára gömul þegar atburður-
inn átti sér stað. Engu að síður
segi í héraðsdómnum að hún hafi
borið „á sama veg og fyrr“ frá
einni skýrslugjöf til annarrar,
jafnvel þótt það eigi sér ekki stoð.
Þá stangist framburður hennar
sumpart á við það sem sýnileg
sönnunargögn taki af tvímæli
um.
Þorsteinn og Stefán, sem er
þekktur sem annar Skeljagranda-
bræðra og á langan brotaferil að
baki, neituðu báðir sök og kváðu
samræðið hafa verið með full-
um vilja stúlkunnar. Niðurstaða
Hæstaréttar er að gegn þeim
framburði tvímenninganna hafi
ákæruvaldinu ekki tekist að færa
sönnur á sekt þeirra.
Þá segir einnig í dómi Hæsta-
réttar að annmarkar séu á rann-
sókn lögreglu „sem úr því sem
komið er verður ekki séð að unnt
væri að bæta úr nema að hluta“.
Er þar meðal annars átt við að
ekki hafi verið teknar skýrslur af
ýmsum vitnum sem varpað hefðu
getað skýrara ljósi á málið, ekki
hafi verið kallað eftir upptökum
úr öryggismyndavélum í tæka tíð
og gagna um símtöl ekki aflað.
„Ég tel að þetta sé mikill sigur
fyrir réttarkerfið á Íslandi,“ segir
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson,
verjandi Stefáns. „Ég held að hér-
aðsdómur í þessu máli þurfi alvar-
lega að hugsa sinn gang miðað við
þá yfirhalningu sem héraðsdóm-
ur fær í niðurstöðu Hæstaréttar,“
segir hann og bætir við að niður-
staðan sé mikill áfellisdómur yfir
vinnubrögðum lögreglu.
Margrét Gunnlaugsdóttir,
réttar gæslumaður stúlkunnar, er
ósammála. „Ég er mjög undrandi
yfir dómnum,“ segir hún. - sh, hjh
Hæstiréttur gagnrýnir
nauðgunarrannsókn
Nauðgunardómi yfir Stefáni Loga Sívarssyni og Þorsteini Birgissyni var snúið við í
Hæstarétti í gær. Hæstiréttur gagnrýnir rannsókn lögreglu og niðurstöðu héraðs-
dóms. „Sigur fyrir réttarkerfið,“ segir verjandi. Réttargæslumaður er undrandi.
SÝKNAÐUR Stefán Logi Sívarsson á langan brotaferil að baki. Hann neitaði alla tíð
að hafa nauðgað stúlkunni.
Hæstaréttardómarinn Ingibjörg Benediktsdóttir, eina
konan í fimm manna dómi, skilar sératkvæði í málinu
og vill staðfesta sektardóm Hæstaréttar.
Þetta er í annað sinn á þessu ári sem Ingibjörg situr
ein með nokkrum körlum í dómi og skilar sératkvæði
sem varðar kynferðisbrot. Það gerðist líka í febrúar
þegar dómur féll í líkamsárásarmáli sem kennt var við
Hells Angels.
Þá komst meirihluti dómsins að því að það væri
ekki kynferðisbrot að stinga fingrum inn í leggöng og
endaþarm konu ef tilgangurinn var ekki kynferðislegur heldur einungis að
meiða þolandann. Ingibjörg var þessu ósammála.
Annað sératkvæði Ingibjargar
Ólafur Rafns-
son lést í gær
Ólafur Eðvarð
Rafnsson, for-
seti Íþrótta-
og Ólympíu-
sambands
Íslands (ÍSÍ),
er látinn,
fimmtugur að
aldri. Ólafur
varð bráð-
kvaddur í Sviss í gær.
Á yngri árum spilaði Ólafur
körfubolta með Haukum og
íslenska landsliðinu. Hann var
kjörinn formaður Körfuknatt-
leikssambands Íslands árið 1996
og gegndi því embætti til ársins
2006 þegar hann var kjörinn for-
seti ÍSÍ. Þá var hann kjörinn for-
seti FIBA Europe, körfuknatt-
leikssambands Evrópu, árið
2010 og tók í lok síðasta mánaðar
við stöðu forseta framkvæmda-
stjórnar Smáþjóðaleikanna.
Ólafur starfaði sem lögmaður
og rak eigin lögmannsstofu í
Hafnarfirði. Hann lætur eftir
sig eiginkonu og þrjú börn.
Myndarlegt framlag Aurora velgerðarsjóðs hefur gjörbreytt möguleikum barna í Síerra Leóne:
Metframlag til þróunarsamvinnuverkefnis
HVAÐ ER AURORA?
Aurora velgerðarsjóður hefur
þann megintilgang að stuðla
að og styrkja menningar- og
velgerðarmál á Íslandi sem og
erlendis. Stuðningi sjóðsins er
ætlað að hafa víðtæk áhrif og
virka sem vítamínsprauta út í
samfélög og áhersla er lögð á að
styrkja hvert verkefni myndar-
lega. Stofnendur sjóðsins eru
hjónin Ingibjörg Kristjánsdóttir
og Ólafur Ólafsson.
ALÞINGI Mikill samhljómur var
meðal þingmanna í sérstakri
umræðu um konur og stöðu
kvenna sem fram fór á Alþingi í
gær. Tilefnið var 19. júní, en 98
ár voru frá því að íslenskar konur
fengu kosningarétt.
Þingmenn voru ósparir á ham-
ingjuóskir til kvenna og í upphafi
þingfundar sagðist Einar K. Guð-
finnsson, forseti Alþingis, meðal
annars ætla að láta kjósa fimm
manna framkvæmdarnefnd til að
undirbúa hundrað ára afmælis-
árið 2015. Þau Sigríður Ingibjörg
Ingadóttir, Pétur Blöndal og
Bjarni Benediktsson voru meðal
þeirra sem ræddu nauðsyn þess
að koma á jafnrétti í landinu. - sv
Umræða um konur á þingi:
Sammælast um
kynjamisrétti
DÓMSMÁL Hæstiréttur komst í
gær að þeirri niðurstöðu að ríkið
þurfi að greiða auglýsingastof-
unni Jónsson & Le‘Macks (J&L)
5 milljónir í skaðabætur vegna
tillögu stofunnar að kynningar-
átakinu Inspired By Iceland.
Forsaga málsins er sú að
starfshópur á vegum ríkisins
óskaði eftir tillögu frá fimm
auglýsingastofum, þar á meðal
J&L, í kjölfar eldgossins í Eyja-
fjallajökli. Seinna gerðu Ríkis-
kaup athugasemd við þetta fyrir-
komulag þar sem verkefnið væri
útboðsskylt. Var þá ákveðið að
ferðaþjónustufyrirtæki myndu
sjá um átakið og völdu þau aðrar
auglýsingastofur til verksins.
Hafði J&L þá varið 5 milljónum
í verkefnið. Taldi Hæstiréttur að
þetta verklag stæðist ekki og að
J&L ætti rétt á skaðabótum. - mþl
Skaðabætur vegna átaks:
Auglýsingastofa
fær skaðabætur
INSPIRED BY ICELAND Ráðist var í
Inspired By Iceland kynningarátakið í
kjölfar eldgossins í Eyjafjallajökli árið
2010. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SJÁVARÚTVEGUR Íslendingar hafa samtals veitt
yfir 15 þúsund stórhveli og fyrirtækið Hvalur hf.,
með feðgana Kristján Loftsson og Loft Bjarnason í
farar broddi, stendur þar að baki. Noregur, Japan og
Ísland eru einu þjóðir heims sem enn stunda hval-
veiðar.
Frá fyrstu vertíð árið 1948 hafa alls verið veiddar
163 steypireyðar, en tegundin hefur ekki verið veidd
frá árinu 1959. Fimm árum fyrr, eða árið 1954, var
síðasti hnúfubakurinn veiddur.
Alls hafa verið veiddar 2644 sandreyðar og 2885
búrhvalir. Langmest hefur verið veitt af langreyð-
um, eða 9461 dýr alls. Þar af hafa 273 dýr verið
veidd frá árinu 2009, en fimm ára veiðileyfi sem tók
gildi það ár rennur út nú í ár. Ef veiðar ganga vel
í sumar gætu allt að 180 dýr bæst við þessar tölur.
Samtals hafa Íslendingar veitt 15.158 stórhveli. Þá
hafa verið veiddar 2707 hrefnur, þar af 11 nú í ár.
Sigursteinn Másson, fulltrúi Alþjóðadýraverndun-
arsjóðsins á Íslandi, segir þetta ótrúlega háar tölur,
ekki síst þar sem í mörg ár hafi engar hvalveiðar
verið stundaðar hér.
„Og í ljósi þess líka að þessi dýr sem verið er að
veiða hér 150 mílur vestur af landinu verða 80, 90
og jafnvel 100 ára gömul og það er verið að veiða
jafnvel þetta gömul dýr og draga hér inn í Hval-
fjörðinn, þannig að í þessu ljósi er þessi heildar-
fjöldi alveg gríðarlega hár,“ segir Sigursteinn. - hþ
Hvalur hf. er eina fyrirtækið sem hefur stundað hvalveiði hér á landi frá 1948:
Hafa veitt 15 þúsund stórhveli
HALDIÐ TIL VEIÐA Ísland, Noregur og Japan eru einu löndin
sem enn stunda hvalveiðar.
HEILBRIGÐISMÁL
Nýr smitsjúkdómur greindur
Alþjóðlegur hópur lækna hefur að
undanförnu rannsakað um 25 dauðs-
föll í Sádí-Arabíu sem rekja má til
áður óþekkts öndunarfærasjúkdóms.
Sjúkdómurinn hefur fengið nafnið
MERS en hann þykir svipa mikið til
smitsjúkdómsins SARS sem dreifðist
um heimsbyggðina árið 2003 og olli
800 dauðsföllum.
SPURNING DAGSINS
Ásdís, er Svanni góður granni?
Það má segja með sanni, hann hjálpar
kvenmanni að verða að leikmanni.
Ásdís Guðmundsdóttir er sérfræðingur í
atvinnumálum kvenna og umsjónarmaður
lánatryggingasjóðsins Svanna sem var endur-
reistur árið 2011 eftir átta ára dvala. Fjórar
umsóknir hjá Svanna verða afgreiddar á
næstu dögum.
www.jonogoskar.is Sími 5524910 Laugavegi 61 Kringlan Smáralind
Smart útskriftargjafir
Okkar hönnun og smíði