Fréttablaðið - 20.06.2013, Side 20
20. júní 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR FERÐIR | 20
Halldóra Geirharðsdóttir leikkona ferðast um landið ásamt manni sínum
og ungum börnum og því skiptir máli fyrir hana að ferðast um staði sem
eru fjölskylduvænir. „Ég myndi segja að það væri Snæfellsnesið,“ segir
hún eftir örskamma umhugsun spurð um sinn uppáhaldsstað á landinu.
„Allt það svæði, sérstaklega Arnarstapi og Hellnar. Það er frábært að vera
þarna með börn, stutt að fara og svo aðgengilegt.“
Hún segir að þar sé alltaf eitthvað nýtt að
sjá og að hver ferð sé ótrúlegt ævintýri. Það
leiðist engum á Snæfellsnesi ef marka má orð
Halldóru. „Æðislegir klettar, hellaskoðun, hægt
að tjalda og ótrúlega margar gönguleiðir sem
eru viðráðanlegar fyrir fjölskyldu.“ Hún heim-
sækir Snæfellsnesið gjarnan og var þar síðast í
fyrrasumar. Hún segir að lokum að sterk
tilfinning fyrir fortíðinni á staðnum sé
heillandi og nefnir sem dæmi að þar sé
hægt að sjá gamlar hlaðnar réttir. -ne
Lostæti og handverk
úr héraði
1. Háls í Kjós
Nautakjöt, sultur og kæfur auk margs annars.
2. Bjarteyjarsandur við Hvalfjörð
Ferðaþjónustan er grundvölluð á matvælaframleiðslu
og er gestum boðið í heimsókn í fjárhúsin. Gallerý
Álfhóll er rekið á staðnum og þar eru til sölu gler-
listaverk, ullarvörur, sultur, brauð og fíflahunang
auk ýmislegs annars.
3. Háafell í Hvítársíðu
Kiðlingakjöt, geitakjöt, egg, handverk úr geitaskinni,
sápur, geitagærur og geitamjólkurís.
4. Erpsstaðir í Dalasýslu
Heimagerður rjómaís, sem ber nafnið Kjaft-æði.
Pokaskyr unnið á gamla mátann og svo ostur í krydd-
legi.
5. Staður í Reykhólasveit
Framleiðsluvörur Reykskemmunnar á Stað eru
hangikjöt, bjúgu, rúllupylsa og reyktur rauðmagi.
Æðardúnn og sængur eru einnig til sölu.
Landsmót Fornbílaklúbbs Íslands.
21.-23. júní
Ýmiss konar dagskrá á
Selfossi.
Jónmessan.
22. júní
Jónsmessu er fagnað
um helgina, meðal annars
á Eyrarbakka og Siglufirði.
Þá er Jónsmessuganga Útivistar haldin um
helgina og sumri fagnað í Básum.
HÁTÍÐIR HELGARINNAR
➜ Bændum sem selja vörur beint frá býli
hefur fjölgað undafarin ár og
eftirspurn eftir vörunum aukist.
VEÐUR
UPPÁHALDSSTAÐURINN MINN Á ÍSLANDI
SNÆFELLSNES
VIÐ VEISLUBORIÐ Geitin Mollí stillir sér upp við kræsingar á Bjarteyjarsandi sem er eitt fjölmargra býla sem selja afurð sína
beint frá býli. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Föstudagur
8-15°C HLÝJAST SUNNAN-
OG VESTANLANDS
Norðaustan 3-8 m/s. Víða
bjart með köflum en skýjað
og dálitlar skúrir NA-til og
einnig SV-lands síðdegis.
Allur akstur er bannaður á ýmsum hálendis-
leiðum vegna aurbleytu og hættu á skemmdum. Nánari upplýsingar
Vegagerdin.is eða í síma 1777.
Gönguhátíðin
Umfar.
21. til 28. júní 2013
Gönguferðir alla
daga um náttúru-
perlur Vesturbyggðar.
Skógardagurinn
mikli.
22. júní
Fjölskylduhátíð í
Hallormsstaðaskógi.
HALLDÓRA GEIRHARÐSDÓTTIR
Sterk tilfinning fyrir
fortíðinni heillar
Laugardagur
10-15°C BJART
MEÐ KÖFLUM
Hæg norðvestlæg
eða breytileg átt og
bjart með köflum.
Skúrir SV- og V-lands.
Sunnudagur
9-17°C ÞYKKNAR UPP
Vestlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og
bjart með köflum. Síðdegisskúrir A-til
og þykknar upp um landið vestanvert
þegar líður á daginn með lítilsháttar
úrkomu um kvöldið. Heimild: vedur.is
6. Gil í Skagafirði
Sultur, pickles, reyktur silungur, heimabakstur og
handverk.
7. Holtsel í Eyjafjarðarsveit
Rjómaís fyrir sykursjúka. Ávaxtaís eða sorbet, t.d.
fyrir þá sem eru með mjólkur- og eða eggjaóþol.
Kiðlingakjöt, lífrænt lambakjöt, vistvænt svínakjöt,
hákarl, taðreyktur silungur, sultur, saftir, hlaup,
kryddsultur og mjölvörur svo sem hrökkkex, bygg-
flögur, bankabygg og margt fleira.
8. Hella í Mývatnssveit
Í Reykkofanum fæst hangikjöt, lambakjöt, sauðakjöt,
reyktur silungur, hakk, sperðlar og kæfa.
9. Lón II í Kelduhverfi
Sápugerðin Sælusápur framleiðir og selur handgerð-
ar íslenskar gæðasápur úr náttúrulegum hráefnum.
10. Egilsstaðir I
Á Egilsstöðum I er kaffihús og verslun sem kallast
Fjóshornið á Egilsstöðum. Skyr, jógúrt, ostur, mjólk,
nautakjöt, berjahlaup og prjónavörur.
11. Miðhús á Egilsstöðum
Listmunir úr íslenskum við, hornum og beini. Þurrk-
aðir og frystir sveppir, berja- og rabarbarasíróp,
þurrkaðar jurtir og heil og möluð fjallagrös.
12. Langholtskot í Hrunamannahreppi
Á bænum Langholtskoti eru ræktaðir nautgripir sem
eru holdagripir af Galloway og Aberdeen Angus kyni
og einnig naut af íslensku kúakyni.
13. Engi í Biskupstungum
Kryddjurtir, grænmeti og ávextir.
Fíflahunang, geitakæfa, nautatunga,
sultur, ostar og loftþurrkað lambakjöt.
Þetta er meðal þess úrvals af matvælum
sem um 70 bændur víðs vegar um land selja
beint frá býli. Úrvalið af handverki er einnig
fjölbreytt. Hér eru nefnd nokkur af öllum
þeim býlum sem bjóða ferðamönnum upp á
lostæti og handverk úr héraði.
2
3
4
5
6 7
8
9
10
1213
11
HÁLENDIÐ
1