Fréttablaðið - 20.06.2013, Blaðsíða 24
20. júní 2013 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 24
Á heimasíðu menntamála-
ráðuneytis birtist þann 22.
maí sl. skýrsla um úttekt á
stjórnsýslu fornleifarann-
sókna og fornleifaverndar
á Íslandi 1990 til 2010, sem
ráðuneytið hafði látið forn-
leifafræðing vinna, þar
sem fjallað er um ástandið í
fornleifaverndinni (t.d. 150
þús. uppgrafnir forngripir
í óskilum). Þetta er raunar
ekki nýtt og meira að finna
í greinasafni Mbl. sl. 15
ár. Ef nafn undirritaðrar
er slegið í leitarvél kemur
fram hörð gagnrýni í viðtölum og
aðsendum greinum (m.a. þeirri sem
vitnað er til í skýrslunni).
Skýrsluhöfundur kom fram
í Kastljósi RÚV þann 27. maí
http://www.ruv.is/sarpurinn/kast-
ljos/27052013-1 og við-
brögðin létu ekki á sér
standa, t.d. frá handhafa
Hólarannsókna og Forn-
leifastofnun Íslands (ekki
opinber stofnun eins og
oftast misskilst, heldur
verktaki í einkaeign) auk
Fornleifanefndar ríkisins
og nýrrar Minjastofnun-
ar Íslands, sem urðu hvað
harðast úti í gagnrýninni.
Forstöðumaður Minja-
stofnunar, sem ber stjórn-
unarlega ábyrgð, sat fyrir
svörum í Kastljósi daginn
eftir http://www.ruv.is/sarpurinn/
kastljos/28052013-0. Bar ýmsu við
en slapp í raun með að gefa mál-
efnalegt svar við nokkrum hlut.
Lögmaður Hólarannsókna ýjaði
að málssókn í fréttaviðtali hjá
RÚV. Ráðuneytið dró skýrsluna til
baka af heimsíðu sinni (?) sbr. t.d.
Fréttablaðið 29. maí. Hvers vegna?
Og ekkert hefur heyrst meira um
málið, er hér þöggun í gangi á
kostnað menningararfs þjóðarinn-
ar sem fornleifar hafa að geyma?
Forstöðumaður nýrrar Minja-
stofnunar taldi eitt gagnlegt við
skýrsluna; að hana mætti nota til
að fá meira fjármagn til sinnar
stofnunar, sem undirritaðri fannst
nokkuð bíræfið, þar eð ein af brýn-
ustu tillögum skýrslunnar er að
Ríkisendurskoðun geri úttekt á
málaflokknum. Því að hér er um
mikla fjárfestingu af opinberu fé
að tefla, sem augljóslega hefur ekki
skilað sér.
Meginatriðum ekki svarað
En með þögninni virðist málið
ganga óáreitt áfram. Eftir að þetta
„slys“ átti sér stað (þ.e. sannleik-
urinn slapp út hjá sjálfu ráðuneyt-
inu, frekar en gagnrýnisrödd úti í
bæ sem ekki þyrfti að svara) aug-
lýsir Minjastofnun Íslands 27. maí
styrkveitingar sínar úr nýjum
Fornminjasjóði þetta árið, þar
sem einungis verkefna er getið
en ekki styrkþega (þ.e. ábyrgðar-
manna) http://www.husafridun.is/
styrkir/fornminjasjodur/uthlutun-
styrkja-2013/.
Undirrituð spurðist fyrir um
þetta 31. maí sem umsækjandi sem
ekki hlaut styrk og barst það svar
7. júní að henni væri boðið að gera
athugasemdir ef hún svo kysi!
En vandinn er sá að undirrituð
fær ekki upp gefið hverjir fengu
styrkina (ábyrgðarmenn, rann-
sóknaleyfishafar) svo að unnt sé að
ganga úr skugga um, hvort hér sé
ekki verið að styrkja áfram þá sem
brotlegir eru við fornleifaverndar-
lögin.
Þar sem meginatriðum er ekki
svarað með beinum spurningum
til forstöðumanns Minjastofnunar
Íslands sem úthlutar styrkjunum,
er sá eini kostur eftir (fyrir hönd
þeirra umsækjenda sem ekki fá
áheyrn) að gera fyrirspurnina
opinbera. Þetta getur vart talist sú
gegnsæja stjórnsýsla sem boðuð er
við úthlutun styrkja úr nýjum Forn-
minjasjóði, fjármögnuðum af fjár-
veitingum Alþingis?
Hvers vegna dró ráðuneytið skýrsluna til baka?
Ómar Ragnarsson frum-
sýndi nýlega mynd sína „In
Memoriam?“ í Bíó Paradís.
Fyrir áratug lauk hann við
enska gerð myndarinnar
og kynnti erlendis. Í mynd-
inni varar hann við óaftur-
kræfum áhrifum Kára-
hnjúkavirkjunar og þeim
skaða sem framkvæmdin
gæti valdið.
Nú, tíu árum síðar, gengur
hann frá íslenskri útgáfu og
bætir þar við upplýsingum
um hvað eftir hafi gengið
um fyrri spár. Þeir sem fylgst hafa
með vita að nær allar „hrakspár“
um virkjunina hafa gengið eftir.
Neikvæðu áhrifanna gætir í til-
fellum mun hraðar en reiknað var
með. Aurburðurinn frá Brúarjökli
er ótrúlega ör. Gilið við Töfrafoss,
sem kunnáttumenn gáfu hundrað ár
til að fyllast, hvarf á tveimur árum.
Hvað er langt í að lónið hætti að skila
þeirri orku sem því var ætlað? Hvað
hefur það grynnkað frá því
að það myndaðist? Svæðið
sem lónið fyllir fáum við
aldrei aftur. Vitneskja um
veður og vatnafar fyrri alda,
sem lágu eins og opin bók, er
varanlega glötuð. Sérstætt
gróðurlendi og griðland
dýra týnt fyrir fullt og allt.
Fossar, hjallar og heiðaland
sem heilluðu augað þurrk-
uð út. Hvernig geta menn
verið svona skammsýnir?
Hver gaf leyfi til að ráðskast
þannig með náttúruna?
Síðustu tvær þrjá mínútur mynd-
arinnar þyrmir yfir mann þegar
höfundur tíundar væntingar og
röskun sem menn svo upplifðu að
framkvæmd lokinni. Áttatíu prósent
starfsmanna við framkvæmdina
voru útlendingar. Heima mönnum
sem fjölga átti um 1.500 vegna
virkjunarinnar og álvers á Reyðar-
firði fjölgaði ekki, en húsnæði sem
byggt var til að taka á móti nýbú-
unum stendur autt. Rekstur álvers-
ins gengur vel að sögn ráðamanna
Alcoa, þeir njóta líka skattfríðinda
og lágs orkuverðs.
Enn steinöld
Hver er svo staða Íslendinga vegna
Kárahnjúkavirkjunar? Íslendingar
borga nú kr. 8.47 fyrir kílóvatt-
stundina sem þeir nota. Þessi tala
hefur mjög hækkað síðan Kára-
hnjúkavirkjun tók til starfa. Hinu er
aldrei flíkað hvað stóriðju fyrirtækin
borga. Hitt kemur mjög á óvart hve
stór hluti íslenskrar raforku fer til
málmbræðslu. Heimamenn nota
aðeins fimm prósent þeirrar orku
sem framleidd er í landinu. Engin
íslensk starfsgrein nýtur sömu fríð-
inda og Alcoa. Til að örva útflutn-
ing mætti örugglega ívilna til dæmis
ylræktendum eða þeim sem sinna
úrvinnslu sjávarfangs. Það mundi
um leið ýta undir fullvinnslu og full-
nýtingu. Við gætum örugglega gert
meira af því að sinna orkufrekri
hátækni. Í þessu tilfelli ríkir enn
steinöld á Íslandi.
Síðasta snjallræðið er sæstrengur
til Evrópu. Líklega er það þrisv-
ar sinnum dýrari framkvæmd en
Kárahnjúkavirkjun og mundi fara
sömu leið. Framkvæmdaraðilar
mundu fá allt sitt greitt að fullu, en
þjóðin bera skaðann af lántökum
sem hugsanlega skiluðu sér aldrei
í arði. Hvernig stendur á því að
stórframkvæmdamennirnir benda
aldrei á leið til að afrekin þeirra skili
hagnaði? Jarðýtur, gröfur, dýnamít
og umturnun lands virðist vera loka-
takmark.
Holl hugvekja
Enginn hefur barist jafn hetjulegri
baráttu fyrir verndun íslenskar
náttúru og Ómar Ragnarsson. Þetta
er honum hjartans mál. Hann spyr
aldrei um tíma eða kostnað. Veður
eða aðrar hindranir stoppa hann
ekki. Hann veit sem er að stóru
augnablikin koma ekki aftur. Nú, eða
aldrei! Hann býr yfir óþrjótandi elju,
knúinn áfram af kölluninni. Ómar
fór margar ferðir til Noregs og eins
til Bandaríkjanna til að kynna sér
og mynda virkjanaframkvæmdir
þar, einnig griðlönd og þjóðgarða
sem stjórnvöld friðuðu fyrir ágengni
virkjunarsinna. Hann segir að á
tímum Kárahnjúkavirkjunar hefði
hún aldrei verið leyfð þar sem vernd-
unarsjónarmið voru einhvers metin.
Einn félaga á Ómar sem hefur verið
honum afar hollur. Það er Friðþjófur
Helgason, besti heimildatökumaður
á landinu. Myndin „In Memoriam?“
er holl hugvekja með ríkan boðskap
og einstæð myndskeið. Því hvet ég
alla sem unna landi sínu til að sjá „In
Memoriam?“.
„In Memoriam?“
MENNING
Margrét
Hermanns
Auðardóttir
doktor í norrænni
forsögulegri forn-
leifafræði og mið-
aldafornleifafræði
NÁTTÚRU-
VERND
Páll
Steingrímsson
kvikmynda-
gerðarmaður
➜ Og ekkert hefur heyrst
meira um málið, er hér
þöggun í gangi á kostnað
menningararfs þjóðarinnar‘?
➜ Hvernig stendur á því að
stórframkvæmdamennirnir
benda aldrei á leið til að
afrekin þeirra skili hagnaði?
BEINSKIPTUR FRÁ
SJÁLFSKIPTUR FRÁ
FORD KUGA TITANIUM
5.790.000 KR.
6.190.000 KR.
KUGA
Ford Kuga AWD 2,0 TDCi dísil 140 hö. 6 gíra beinsk./sjálfskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 5,9/6,2 l/100 km. Losun koltvísýrings CO2 154/162 g/km.
Ford Kuga AWD 1,6i EcoBoost bensín 182 hö. sjálfskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 7,7 l/100 km. Losun koltvísýrings CO2 179 g/km. Tökum allar
MEÐ DÍSILVÉL FRÁ
MEÐ BENSÍNVÉL FRÁ
FORD KUGA TITANIUM
5.790.000 KR.
6.190.000 KR.
ford.is
KUGA
NÝR FORD KUGA TITANIUM
Jeppi sem þú getur talað við? Sem svarar símtölum og spilar tónlist
fyrir þig? Sem hringir sjálfkrafa eftir aðstoð í neyð? Sem opnar fyrir þig
skottið þegar þú ert með báðar hendur fullar? Nýi Ford Kuga gerir þetta
fyrir þig. Hann er svo snjall að í raun er hann snjalljeppi. Kynntu þér
hvernig Ford gerir líf þitt þægilegra. Komdu og prófaðu. AFAR SNJALL
GLÆSILEGUR
UNDRAVERÐUR
KRAFTMIKILL
tegundir bíla upp í nýja. Brimborg og Ford áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður og gerð getur verið frábrugðin mynd í auglýsingu.
Ford SYNC samskiptakerfið er staðalbúnaður í Ford Kuga. Rafdrifinn afturhleri með skynjara er fáanlegur sem aukabúnaður.