Fréttablaðið - 20.06.2013, Síða 26

Fréttablaðið - 20.06.2013, Síða 26
20. júní 2013 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 26TÍMAMÓT Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, RAGNHILDUR ÓLAFSDÓTTIR lést á líknardeild Landspítalans laugardaginn 15. júní. Hún verður jarðsungin frá Neskirkju fimmtudaginn 27. júní kl. 13.00. Þórður Bjarnason Edda Karen Haraldsdóttir Hjördís Sif Bjarnadóttir Hilmar Þórarinn Hilmarsson Birta Dís, Atli Þór, Darri, Haraldur Hrafn og Hjörtur Þór Minningarathöfn og útför um okkar ástkæru SIGRÍÐI HJARTARDÓTTUR COLLINGTON (SIRRÝ) sem lést í Bandaríkjunum 7. febrúar sl. verður haldin í Dómkirkjunni miðvikudaginn 26. júní kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Wayne Collington Gabriela Bóel, Oliver Thor, Freyja Ena Ingibjörg F. Ottesen Garðar Valur Jónsson Bóel Ísleifsdóttir Ena James Bóel Hjartardóttir Hjálmar Þorsteinsson Hjörtur Kristjánsson Anna Margrét Einarsdóttir Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, dóttir, tengdadóttir, systir og mágkona, GUÐLAUG BRYNJARSDÓTTIR lést mánudaginn 17. júní. Gunnar Steinþórsson Brynjar Þór Gunnarsson Sindri Freyr Gunnarsson Fríður Björnsdóttir Brynjar Júlíusson Lilja G. Sigurðardóttir Steinþór Ingvarsson Björn Brynjarsson Júlíus Brynjarsson Þóra Hreinsdóttir Kristín Brynjarsdóttir Pétur Óskarsson Guðrún Brynjarsdóttir Skúli Aðalsteinsson Halldór Brynjarsson Guðrún Þórðardóttir Anna Sigríður Brynjarsdóttir Halldór Grétar Einarsson Katrín Brynjarsdóttir Hjörleifur Steinarsson Elskulegur stjúpfaðir minn, afi okkar og bróðir, JÓN KLEMENZ JÓHANNESSON lyfjafræðingur, áður til heimilis að Stóragerði 28, Reykjavík, sem lést á Droplaugarstöðum mánudaginn 10. júní, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 21. júní kl. 15.00. Elín Davíðsdóttir Bergljót Gyða Guðmundsdóttir Kolbrún María Guðmundsdóttir Kristján Páll Guðmundsson Óskar Gíslason og systkini hins látna. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og bróðir, HERJOLF SKOGLAND yfirvélstjóri, Melgerði 10, Reykjavík, sem lést þann 5. apríl í Haugesund í Noregi, verður jarðsettur frá Fossvogskapellu föstudaginn 21. júní kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, Gunnhildur Jónsdóttir Elsa Herjolfsdóttir Skogland Hulda Björg Herjolfsdóttir Skogland Árni Herjolfsson Skogland Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR JÓNSSON skipstjóri og útgerðarmaður frá Vestmannaeyjum, sem lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut þann 13. júní verður jarðsunginn frá Landakirkju Vestmannaeyjum laugardaginn 22. júní kl. 11.00. Fyrir hönd aðstandenda, Selma Jóhannsdóttir Eysteinn Gunnarsson Íris Róbertsdóttir Jón Atli Gunnarsson Sigurhanna Friðþórsdóttir Árni Gunnarsson Bryndís Stefánsdóttir barnabörn og barnabarnabarn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem heiðruðu minningu elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, INGU J. GÍSLADÓTTUR Vogatungu 5, Kópavogi. Þökkum fyrir auðsýnda samúð og vinarhug. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á öldrunarlækningadeild B4 fyrir hlýju og fagmennsku. Guðrún Halldórsdóttir Baldur Jónsson Guðborg Halldórsdóttir Andri Már Ólafsson Birna Friðfinnsdóttir Baldur Baldursson Anna Rún Einarsdóttir Kristín Sveiney Baldursdóttir Hlynur Guðlaugsson og barnabarnabörn. Ástkær maður minn, faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir og afi, ÞÓRHALLUR DAN JOHANSEN lést 12. júní sl. á Líknardeild Landsspítalans í Kópavogi. Hann verður jarðsunginn frá Háteigskirkju 21. júní kl 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Líknardeild Landsspítalans í Kópavogi. Anna Lilja Gunnarsdóttir Bertha Ingibjörg Johansen Elliði Vignisson Gyða Dan Johansen Ari Edwald Hallur Dan Johansen Oddný Jóna Bárðardóttir Agnar Gunnar Agnarsson Atsuko Sato og barnabörn. Tveggja heima sýn er heiti sýningar sem opnuð verður í dag í Ráðhúsi Reykjavíkur og stendur í tíu daga. Nafnið vísar til þess að listakonan Lu Hong notar eingöngu hefðbundnar aðferðir kínverskrar landslags málunar til að túlka íslenskt landslag, ásamt kínversku bleki, vatnslitum og þunnum bambuspappír. Lu Hong er fædd í Peking og hóf þar skipulegt myndlistarnám þegar hún var fimmtán ára undir handleiðslu Zhu Daxiongs, eins virtasta núlifandi málara í hefðbundnum kínverskum stíl. Hún var ein sex nemenda sem fengu inngöngu í kínverska listahá- skólann í Peking, æðsta myndlistar- skóla Kína, árið 1981. Sum ár eru engir teknir inn vegna strangra inntökuskil- yrða. Þaðan útskrifaðist Lu Hong árið 1985 og var fyrsta konan til að ljúka námi í kínverskri landslagsmálun frá skólanum. Íslandi kynntist Lu Hong í gegnum íslenska námsmenn. Hún kom til Íslands árið 1990 og býr nú í Garðabæ, er gift Íslendingi og eiga þau tvær dætur. Það er Kínversk-íslenska menningar- félagið sem stendur fyrir sýningunni í Ráðhúsinu í tilefni 60 ára afmælis félagsins. Með því vill það kynna Lu Hong, sem í verkum sínum tvinnar saman íslenska þjóðarvitund og æva- fornar hefðir kínverskrar myndlistar. - gun Málar íslenskt landslag með ævafornum kínverskum aðferðum Sýning á málverkum myndlistarkonunnar Lu Hong verður opnuð í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag klukkan 16 í tilefni 60 ára afmælis Kínversk-íslenska menningarfélagsins. LU HONG Segir íslenska náttúru mjög frábrugðna þeirri sem hún ólst upp við í Asíu. Á HNAPPAVÖLLUM Í ÖRÆFUM Stigafoss, sem hér sést, er meðal hæstu fossa landsins. Hann fær fóður sitt úr lindum við jökulrætur norðan Bleikafjalls.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.