Fréttablaðið - 20.06.2013, Síða 46
20. júní 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 34
Sjötta sólóplata rapparans Kanye
West, Yeezus, kom út núna á
þriðjudaginn á vegum útgáfunnar
Def Jam Recordings og hafa við-
brögð gagnrýnenda verið sérlega
góð.
Rolling Stone gefur henni fjórar
og hálfa stjörnu af fimm og segir
hana algjöra snilld. „Allir brjál-
aðir snillingar verða að gera plötu
eins og þessa að minnsta kosti
einu sinni á ferlinum. Þegar hún
er hvað mest illkvittin lætur hún
Kid A eða In Utero hljóma eins
og Bruno Mars.“ Pitchfork gefur
henni 9,5 af 10 í einkunn og Los
Angeles Times gefur henni þrjár
og hálfa af fjórum og segir hana
uppfulla af naumhyggju en samt
kraftmikla.
Yeezus var að mestu leyti tekin
upp í París og eins og oft áður fékk
West til liðs við sig fjölda sam-
starfsmanna. Franski elektró-
dúettinn Daft Punk stjórnaði upp-
tökum á fjórum lögum af tíu á
plötunni, þar á meðal þeim þremur
fyrstu, en West starfaði síðast
með sveitinni með góðum árangri
í stuðlaginu Stronger. Hinn ungi
rappari Chief Keef frá heimaborg
Wests, Chicago, og Justin Vernon
úr hljómsveitinni Bon Iver, sungu
jafnframt inn á plötuna. Vernon
var einmitt á meðal gesta á síðustu
plötu West, My Beautiful Dark
Twisted Fantasy, sem margir töldu
á meðal þeirra bestu 2010.
Þegar West var kominn í tíma-
þröng með að klára Yeezus hóaði
hann í stjörnu-upptökustjórann
Rick Rubin, sem hefur unnið með
Red Hot Chili Peppers, Metallica,
Beastie Boys og Johnny Cash, og
bað hann um aðstoð við að fínpússa
hana. „Ég er enn þá bara krakki að
læra hvernig naumhyggja virkar
og hann er meistari í henni,“ sagði
West um Rubin í viðtali við New
York Times.
Að sögn Rubins þurfti West að
skila plötunni af sér þremur vikum
eftir að hann hafði samband við
hann. Rubin taldi að nokkra mán-
uði þyrfti til að ljúka við verkið en
lét engu að síður til leiðast. Aðeins
tveimur dögum áður en rappar-
inn átti að skila af sér Yeezus var
hann á leiðinni í flug til Mílanó til
að vera viðstaddur veislu í tilefni
af væntanlegri fæðingu dóttur
hans og raunveruleikastjörnunn-
ar Kim Kardashian. Þá átti hann
eftir að syngja inn á fimm lög og
texta vantaði fyrir nokkur þeirra.
Áður en hann þurfti að mæta á
flugvöllinn hafði hann tvo klukku-
tíma aflögu og skilaði sínu á síð-
ustu stundu fyrir Rubin, og rúm-
lega það. freyr@frettabladid.is
Nemi í naumhyggju
Nýjasta plata bandaríska rapparans Kanye West hefur fengið frábærar viðtökur.
KANYE WEST Rapparinn í hlustunarpartíi í Sviss þar sem hann spilaði lög af nýju plötunni, Yeezus. NORDICPHOTOS/GETTY
Allar fimm sólóplötur Kanye West til þessa hafa náð platínusölu í Bandaríkj-
unum, eða selst í yfir einni milljón eintaka. My Beautiful Dark Twisted Fan-
tasy og þær þrjár sem komu á undan fóru allar í efsta sæti vinsældarlistans.
West hefur selt yfir þrjátíu milljónir stafrænna laga í Bandaríkjunum og
er hann einn söluhæsti tónlistarmaðurinn í þeirri deild. Sex lög hafa selst
í yfir þremur milljónum eintaka, eða Gold Digger, Stronger, Heartless, E.T.,
Love Lockdown og Niggas in Paris.
Hefur selt 30 milljón lög stafrænt
Sigur Rós - Kveikur
Ljótu hálfvitarnir - Ljótu hálfvitarnir
Queens of the Stone Age - … Like Clockwork
Í spilaranum
TÓNNINN
GEFINN
Freyr Bjarnason
Skýringar Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Þátttakendur í Lagalistanum Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, K100,5, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum Skífan, Hagkaup, Penninn/
Eymundsson, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elko, tonlist.is.
LAGALISTINN TÓNLISTINN
Sæti Flytjandi Plata
1 Robin Thicke / T.I. / Pharrell Blurred Lines
2 Daft Punk / Pharrell Get Lucky
3 Emmelie de Forest Only Teardrops
4 Pink / Nate Ruess Just Give Me A Reason
5 Capital Cities Safe And Sound
6 Macklemore & Ryan Lewis Can’t Hold Us
7 Justin Timberlake Mirrors
8 Bruno Mars Treasure
9 Botnleðja Panikkast
10 Maroon5 Love Somebody
Sæti Flytjandi Plata
1 Ýmsir This Is Icelandic Indie Music
2 Ýmsir Tíminn flýgur áfram
3 Ásgeir Trausti Dýrð í dauðaþögn
4 KK & Maggi Eiríks Úti á sjó
5 Botnleðja Þegar öllu er á botninum hvolft
6 Ýmsir Pottþétt 59
7 Of Monsters And Men My Head Is An Animal
8 Daft Punk Random Access Memories
9 Retro Stefson Retro Stefson
10 Ljótu hálfvitarnir Ljótu hálfvitarnir (2013)
13.6.2013 ➜ 19.6.2013
Eins og komið hefur fram verður mikill fjöldi tónleika með erlendum
flytjendum hér á landi í júní og júlí.
Hátíðin All Tomorrow´s Parties verður í næstu viku með Nick Cave and
the Bad Seeds fremsta í flokki, gítarsnillingurinn Jeff Beck spilar einnig í
næstu viku í Vodafone-höllinni, Frank Ocean stígur á svið í Laugardalshöll
í júlí og svo mætti áfram telja. Nú þegar er einum stórum tónleikum lokið
í Hörpu, þegar Ben Bridwell fór
á kostum með hljómsveitinni
Band of Horses í Eldborgar-
salnum.
Þessi tónleikafjöldi sem er
fram undan minnir óneitanlega
á stöðuna eins og hún var
fyrir bankahrunið þegar hver
stjarnan á fætur annarri sótti
landið heim. Eini gallinn þá
var að eftirspurnin var ekki
nógu mikil, enda erum við
Íslendingar jú bara nokkur
hundruð þúsund. Fólk varð að
velja og hafna þegar valið stóð
á milli nokkurra góðra kosta
og fyrir vikið töpuðu tónleika-
haldarar oft á tíðum umtals-
verðum peningum.
Mér er minnisstætt þegar ég
fór á tónleika, eða öllu heldur
leiksýningu, goðsagnarinnar
Alice Cooper í Kaplakrika í
hálftómum sal og þegar ég sá
aðra goðsögn, Iggy Pop, syngja
í Hafnarhúsinu á tónleikum
sem höfðu verið fluttir úr
Laugardalshöllinni. Cooper
og Iggy Pop voru einfaldlega fórnarlömb of mikils tónleikaframboðs. Sú
varð einmitt raunin með Deep Purple-tónleikana í Laugardalshöll sem
var aflýst fyrir skömmu, þó svo að eflaust hafði það einnig spilað inn í að
frekar stutt er síðan hljómsveitin hélt síðast tónleika hér á landi.
Spurningin er hvort von sé á fleiri fréttatilkynningum í sumar þar sem
tónleikum er aflýst vegna dræmrar miðasölu. Vonandi gerist það ekki, en
miðað við stöðu mála kæmi það mér alls ekkert á óvart.
Spurningin um framboð
og eft irspurn
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 9-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...
Blaðberinn
bíður þín