Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.06.2013, Qupperneq 48

Fréttablaðið - 20.06.2013, Qupperneq 48
20. júní 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 36 Leikarinn Henry William Dalgliesh Cavill er fæddur þann 5. maí árið 1983. Hann stundaði nám við Stowe-heimavistar- skólann í Buckinghamshire, en kvikmyndin Proof for Life var meðal annars mynduð í og við skólann. Russell Crowe fór með aðalhlutverk myndarinnar og fékk hinn ungi Cavill nokkur góð ráð frá leikaranum á meðan á tökum stóð. Þeir leika nú feðga í Man of Steel. Cavill hafði mikinn áhuga á sögu á námsárum sínum og haft hefur verið eftir honum að hefði hann ekki gengið á vit listagyðjunnar hefði hann að öllum líkindum gengið í herinn eða lagt stund á mannkynssögu. Fékk ráð frá Crowe á unglingsaldri Flestir kannast við söguna um Ofurmennið frá plánetunni Krypton. Stórmyndin Man of Steel, sem frumsýnd var í gær, segir frá því þegar Ofurmennið kemur fyrst til Jarðar. Þegar myndin hefst ríkir mikil ólga á plánetunni Krypton. Vísindamaðurinn Jor-El og eiginkona hans ákveða að senda nýfæddan son sinn, Kal-El, með geimflaug til Jarðar í þeirri von að hann lifi af. Jor- El er því næst myrtur af hinum illa Zod, sem er refsað með útlegð á annarri plán- etu. Skömmu síðar springur Krypton í loft upp og láta foreldrar Kal-El báðir lífið. Á Jörðinni finna hjónin Jonathan og Martha Kent ungbarnið Kal-El og taka það að sér. Pilturinn fær nafnið Clark Kent og fljótlega kemur í ljós að hann býr yfir ofur- mannlegum kröftum. Í fyrstu koma kraft- arnir honum í mikið uppnám en með tíð og tíma lærir Clark að nýta þá til ýmissa góðverka. Þegar Clark kemst loks að sann- leikanum um uppruna sinn er Zod kominn til jarðar og upphefst þá æsispennandi bar- átta milli góðs og ills. Man of Steel var frumsýnd í Banda- ríkjunum um síðustu helgi og hlaut góðar viðtökur áhorfenda. Leikstjóri myndar- innar er Zack Sneyder sem er þaulreynd- ur þegar kemur að leikstjórn stórmynda sem eru stútfullar af tæknibrellum. Frum- raun hans var kvikmyndin Dawn of the Dead frá árinu 2004, hann hefur einn- ig leikstýrt myndum á borð við 300, með Gerard Butler í aðalhlutverki, Watchmen og Sucker Punch. Breska nýstirnið Henry Cavill fer með hlutverk Supermans að þessu sinni og þurfti leikarinn að leggja mikið á sig fyrir hlutverkið. Snyder óskaði eftir því að Cavill liti út eins og fyrstu teikningar af Superman og það án lið- sinnis tölvutækninnar og búningahönn- uða. Amy Adams fer með hlutverk blaðakonunnar Lois Lane, Michael Shannon, sem sjónvarps- áhorfendur þek kja ú r þáttunum Boardwalk Empire, leik- ur illmennið Zod. Kevin Costner og Diane Lane leika Jonathan og Mörthu Kent, Russ- ell Crowe fer með hlutverk Jor-El og loks leikur Laur- ence Fishburne yfirmann Lois Lane. sara@frettabladid.is Ofurmennið mætir aft ur til leiks Stórmyndin Man of Steel var frumsýnd í gær. Kvikmyndin segir frá upphafi Ofurmennisins, sem í þetta sinn er leikið af Bretanum Henry Cavill. ➜ Frá 16. júní hefur Man of Steel halað inn 15 milljörðum króna í Bandaríkjunum einum saman. UPPHAFIÐ Henry Cavill fer með hlutverk Supermans í stórmynd- inni Man of Steel sem frumsýnd var hér á landi í gær. Tvær kvikmyndir verða frum- sýndar á Jónsmessu: Before Mid- night og The Croods. Fyrrnefnda myndin er sjálfstætt framhald myndanna Before Sunrise og Before Sunset frá árunum 1995 og 2004 og sú síðarnefnda er þrívíddar mynd frá Dreamworks. Before Midnight þykir raunsæ og vönduð mynd sem hlotið hefur einróma lof kvikmyndarýna. Sagan gerist í Grikklandi og segir frá Jesse og Celine, sem leikin eru af Ethan Hawke og Julie Delpy, sem nú hafa verið par í tæpan ára- tug. Parið stendur á tímamótum og þarf að svara því hvort ástin sigri eða hvort aðskilnaður sé óum- flúinn. Leikstjóri myndar innar er Richard Linklater, sem hefur áður leikstýrt myndum á borð við Dazed & Confused, A Scanner Darkly og Bernie. The Croods er ný teiknimynd eftir Kirk De Micco og Chris Sanders. Félagarnir hafa áður komið að gerð teiknimynda á borð við Aladdin, Mulan, The Lion King, Lilo og Stich og How To Train Your Dragon. Myndin segir frá Croods-fjöl- skyldunni sem forðast allar hættur með því að prófa aldrei neitt nýtt. Dag einn hrynur hellirinn sem fjölskyldan býr í og neyðist hún þá til að halda út í hinn stóra, ókunnuga heim og lendir um leið í ýmsum ævintýrum. Þrívídd og þríleikur Tvær kvikmyndir frumsýndar á Jónsmessu. Önnur er hress teiknimynd, hin raunsæismynd um ást. ÞRÍLEIK LÝKUR Before Midnight er síðasta myndin í þríleik leik- stjórans Richards Linklater og skartar Ethan Hawke og Julie Delpy í aðalhlut- verkum. BEFORE MIDNIGHT THE CROODS 98% 68% Stórmyndin Jurassic Park var frumsýnd árið 1993 og sló þá rækilega í gegn. Nú eru uppi raddir um að fjórða myndin um Júragarðinn sé í bígerð. Empire- online.com flytur fréttir af þessu á vefsíðu sinni. Áður hafa birst fréttir sem þess- ar og upphaflega var talið að kvik- myndin yrði frumsýnd sumarið 2014. Líklegra er þó að frum- sýningardagur muni eiga sér stað ári síðar, eða 2015. Fengist hefur staðfest að myndin verði í þrívídd og skrifa Colin Trevorrow og Der- rick Connelly handritið að mynd- inni. Trevorrow mun einnig leik- stýra myndinni, en hann leikstýrði síðast gamanmyndinni Safety Not Guaranteed frá árinu 2012. Fyrsta myndin var í leikstjórn Stevens Spielberg og var hand- rit hennar byggt á samnefndri skáldsögu eftir Michael Crichton. Myndin skartaði Sam Neill, Laura Dern, Jeff Goldblum, Richard Attenborough, Ariana Richards, Joseph Mazzello, Martin Ferrero, Samuel L. Jackson og Bob Peck í helstu hlutverkum. Júragarðurinn ekki útdauður ennþá Fjórða myndin um Jurassic Park er í vinnslu. FJÓRÐA MYNDIN VÆNTANLEG Fjórða myndin um Júragarðinn er í bígerð. Tökur á gamanmyndinni Anchor- man 2: The Legend Continues standa nú yfir og er fyrsta stikla myndarinnar nú aðgengileg á net- inu. Sem fyrr fara Will Ferrell, Christina Applegate, Paul Rudd, Steve Carell, David Koechner og Fred Willard með aðalhlutverk myndarinnar. Adam McKay, leikstjóri mynd- arinnar, hefur áður upplýst aðdá- endur myndarinnar um að í The Legend Continues muni Herra Burgundy glíma við fjölmenning- arlegt fréttateymi. „Við vitum vel að þessir guttar taka breytingum ekki vel og á þeim tíma sem myndin gerist áttu margar breytingar sér stað,“ segir McKay. Á erfi tt með breytingar FRAMHALD Framhald gaman- myndarinnar Anchorman er að vænta innan skamms. NORDICPHOTOS/GETTY Sumarhappdrætti Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra Útdráttur 17. júní 2013 Toyota Yaris Terra 1.0 að verðmæti kr. 2.730.000 20947 56711 Ferðavinningar frá Úrval-Útsýn að verðmæti kr. 500.000 218 9075 10713 41802 57135 64773 75524 78257 79496 Ferðavinningar frá Úrval-Útsýn að verðmæti kr. 250.000 Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra þakkar veittan stuðning og óskar vinningshöfum til hamingju. Handhafar vinningsmiða framvísi þeim á skrifstofu félagsins að Háaleitisbraut 13, Reykjavík, sími 535-0900. 844 2776 4091 4115 5400 8255 8732 9927 10370 10832 14825 15253 15842 16385 18905 19096 19262 19744 20088 21805 27692 27971 28604 29601 29648 30496 31193 31641 32937 34108 37409 38157 38303 38923 39038 39074 39754 40051 40143 40197 40761 41500 42558 42718 42740 43234 45520 46994 48575 48597 49374 49783 51176 53967 54452 54775 57561 58397 59505 61463 62771 63285 63294 65663 67462 67469 67879 68906 69184 69867 70172 70969 71258 73837 73996 75164 75946 76165 76600 77203 77651 78834 78952 79346 STYRKTARFÉLAG LAMAÐRA OG FATLAÐRA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.