Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.06.2013, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 28.06.2013, Qupperneq 12
28. júní 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 12 UPPLÝSINGATÆKNI Neyt- endur í Evrópu fá ekki þann nethraða sem þeir borga fyrir. Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknar á vegum Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB). Fram kemur að fólk fái að jafnaði 74 prósent af auglýstum hraða. Rann- sóknin tók sérstaklega til háhraðanettenginga, xDSL, kapalkerfa og ljós- leiðara. „Þetta er í fyrsta sinn sem staðfestur er munur á auglýstum og raunveruleg- um hraða háhraðatenginga með sambærilegum og áreiðanlegum gögnum frá öllum ríkjum Evrópusambands- ins,“ segir Neelie Kroes, aðstoðar- forseti Framkvæmdstjórnar ESB, en að auki eru upplýsingar frá Króatíu, Noregi og Íslandi. Fram kemur að svokallaðar kap- alkerfistengingar eru áreiðanleg- astar, en þar er hraðinn að jafnðai 91,4 prósent af auglýstum hraða. Næstbest standa sig ljósleiðara- tengingar með 84,4 prósent, en verst xDSL tengingar yfir síma- línur sem að jafnaði eru ekki með nema 63,3 prósent af auglýstum hraða. Ísland er þar rétt fyrir neðan meðaltal Evrópu, með 61,3 prósent. Fram kemur að gögn um hraða séu frá „besta tíma“ netumferðar, virka daga frá sjö til ellefu árdegis. Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst- og fjar- skiptastofnunar (PFS), segir umræðu um gæði netþjónustu hafa verið lengi í gangi og viljað brenna við að fólk teldi sig ekki fá þann hraða sem greitt væri fyrir. Hins vegar sé það þann- ig að fjarskiptafyrir- tæki auglýsi gjarnan hraða „allt að“ einhverj- um mörkum. Þau séu því tæknilega innan marka þótt að jafnaði náist til dæmis ekki nema sex megabita hraði á sekúndu þótt auglýst hafi verið að hraðinn geti verið allt að tíu megabitum. Þá segir Hrafnkell að margvís- legir flöskuhálsar á netinu geti haft áhrif á hraða hverju sinni. „En ég geri þó ekki lítið úr því að hraðamálin eru mikil- væg og eru mikið til skoðunar,“ bætir hann við stofnunin vildi gjarnan skilgreina betur ramma utan um þau gæði sem fólk eigi að geta gengið að í ólíkum net- tengingum. Um leið fagnar hann því því að niðurstaða sé fengin í könnun Framkvæmdastjórnar- innar. „Könnunin er til stuðnings þeirri viðleitni að leiða fram opna og málefnalega niðurstöðu um hvað felst í þessum gæðum, eða hraða.“ Á næsta ári eða þarnæsta segist Hrafnkell vonast til þess að verði komi grundvöllur sem byggja megi á leiðbeinandi regl- ur um hvað sé ásættan legur hraði á netinu, miðað við eðli hverrar tengingar. Rannsókn Framkvæmda- stjórnarinnar er unnin með sér- stökum búnaði SamKnows og verið að auglýsa eftir fleiri þátt- takendum sem samþykki að slík- ur búnaður sé settur upp hjá sér. (Sjá www.samknows.eu). Hrafn- kell segist í mars hafa sótt ráð- stefnu um nethraða þar sem fjallað var um rannsóknina. „Þetta er gert með mjög flottum búnaði. Hér á landi voru settir upp hundrað slíkir kassar,“ segir hann. „Kostnaður við hvern þeirra er nokkuð mikill og fagn- aðarefni að Framkvæmdastjórnin skuli ætla að halda rannsókninni áfram og fjölga mælum.“ Gert er ráð fyrir að rannsókn- in standi til ársloka 2014 og tvær mælingar verði framkvæmdar til viðbótar. olikr@frettabladid.is NEELIE KROES HRAFNKELL V. GÍSLASON Fólk fær bara þrjá fjórðu af auglýstum hraða á netinu Ísland er undir meðaltali Evrópulanda þegar kemur að niðurhalshraða nettenginga um símalínur (xDSL) miðað við auglýstan hraða. Framkvæmdastjórn ESB hefur birt fyrstu niðurstöður stórrar nethraðarannsóknar. Sl óv ak ía Kr óa tía U ng ve rja la nd M al ta Li th áe n Pó lla nd Ký pu r D an m ör k N or eg ur Sl óv en ía D an m ör k Fi nn la nd Té kk la nd Sv íþ jó ð Ei st la nd H ol la nd Írl an d Ís la nd Íta lía Po rt úg al G rik kl an d Br et la nd Fr ak kl an d 100 80 60 40 20 0% xDSL tengingar HLUTFALL AF AUGLÝSTUM HRAÐA Meðalhraði í Evrópu miðað við auglýstan hraða: 63,3% SJÁVARÚTVEGUR Bolvíski línu- báturinn Hrólfur Einarsson hefur slegið Íslandsmet smábáta í mánaðarafla. Skipverjar á Hrólfi hafa veitt yfir 300 tonn á þremur vikum en fyrra Íslandsmet var 233 tonn. Hrólfur hefur því fiskað ein- staklega vel, sérstaklega ef litið er til þess að júnímánuður er ekki enn úti. Skipverjar á Hrólfi Einars- syni veiða að meðaltali 14,4 tonn í róðri og hefur báturinn farið 21 róður í mánuðinum. Á vef- síðunni aflafrettir.com segir að bolvískir bátar hafi fiskað ótrú- lega vel þetta árið. - ne Línubátur slær Íslandsmet: Hrólfur Einars- son hefur veitt yfir 300 tonn ÍSLANDSMET Skipverjar á Hrólfi hafa fiskað einstaklega vel að undanförnu. PEKING, AP Lánsfjárskortur hefur skekið kínverska fjármála markaði síðustu daga. Fyrir vikið brást seðlabanki landsins við í vikunni og hét stuðningi lendi bankar landsins í vandræðum. Vextir á fjármagnsmörkuðum Kína skutust upp í lok síðustu viku eftir að lausafjárskorts varð vart á kínverskum fjármagnsmörkuð- um. Í kjölfarið lækkuðu hlutabréf í kínverskum kauphöllum mikið á mánudag vegna ótta um að lánsfjár- krísa væri að myndast í þessu næst stærsta hagkerfi heims. Á mánudag sagði Seðlabanki Kína að nægt lánsfé væri til staðar í hag- kerfinu og kenndi óstjórn þarlendra banka um stöðuna á fjármagns- mörkuðum. Seðlabankinn lagði þó áherslu á að hann myndi styðja við banka í lausafjárvandræðum og tryggja seljanleika á mörkuðum lendi bankastofnanir í tímabundnum lausafjárerfiðleikum. Í kjölfar yfir- lýsingar seðlabankans lækkuðu millibankavextir mikið, eða í 5,83% úr 13% fyrir helgi. Kínversk stjórnvöld hafa að undan förnu reynt að draga loft úr lánsfjárbólu í kínverska hag kerfinu. Greinendur telja það samt sem áður hafa komið bönkum á óvart að seðla- bankinn hafi ekki verið tilbúinn til að veita lausafjáraðstoð án tafar þegar fjárþurrðar varð vart á milli- bankamarkaði. Hann hafi því ekki miðlað nægilega vel stefnu sinni til markaðsaðila. - mþl Seðlabanki Kína reynir að sefa ótta um að lánsfjárkrísa sé að myndast: Skjálfti á kínverskum mörkuðum SJANGHÆ Vextir á millibankamarkaði í Kína skutust upp í methæðir fyrir helgi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP LÖGREGLUMÁL Lögreglan hand- tók í fyrradag tvo félaga í mótor- hjólasamtökunum Outlaws eftir húsleit í Hafnarfirði. Þar lagði lögregla hald á haglabyssu, raf- stuðbyssu, eggvopn, skotfæri og lítilræði af fíkniefnum. Húsráðandi, karl á fertugs- aldri, var handtekinn í þágu rannsóknar. Hinn maðurinn, sem er á fimmtugsaldri, var einnig handtekinn í tengslum við málið, en er jafnframt eftirlýstur fyrir aðrir sakir. - mlþ Fundu skotvopn og fíkniefni: Tveir félagar Outlaws í haldi LÖGREGLUFRÉTTIR Sextán hafa slasast Alls hafa 19 umferðarslys orðið það sem af er júnímánuði með þeim afleiðingum að sextán manns hafa slasast. Á sama tíma í fyrra urðu 32 slys og má því gera ráð fyrir að júní nú verði mun betri en sami mánuður í fyrra. FJÖLMIÐLAR Umfjöllun fjölmiðla um Breiðholtið hefur verið jákvæð og afar sjaldgæft er að fréttir veki upp neikvætt viðhorf hjá neytend- um miðlanna. Þetta er niðurstaða greiningar Fjölmiðlavaktarinnar sem Reykjavíkurborg lét gera fyrr á árinu og nær yfir fjögurra mán- aða tímabil, frá desember 2012 og út mars 2013. Óskar Dýrmundur Ólafsson, hverfisstjóri Breiðholts, segir ástæðu úttektarinnar vera þá að íbúar Breiðholts hafi löngum haft áhyggjur af neikvæðri umfjöllun fjölmiðla um hverfið og því hafi verið kjörið að láta Fjölmiðla- vaktina varpa ljósi á hvernig hún væri í raun. Í ljós kom að engin frétt var flokkuð sem mjög nei- kvæð, en 6,6 prósent voru hins vegar mjög jákvæð. Alls var um 422 fréttir að ræða. Jóhann Guðni Reynisson, ráð- gjafi hjá Fjölmiðlavaktinni, vonast til að fleiri hverfi stígi þetta skref og láti Fjölmiðlavaktina greina umfjöllun fjölmiðla um einstök hverfi. „Hún skiptir gríðarlegu máli þegar kemur að viðhorfum fólks til manna og málefna,“ segir Jóhann. - sv Reykjavíkurborg lét Fjölmiðlavaktina greina umfjöllun um Breiðholtið yfir fjögurra mánaða tímabil: Jákvæð umfjöllun fjölmiðla um Breiðholt 20% frekar eða mjög jákvæð 3,3% frekar neikvæð 0% mjög neikvæð 76,5% hvorki né, sem þýðir að ekki eru taldar líkur á að þær breyti við- horfi í garð viðfangsefnisins. Greining Fjölmiðlavaktarinnar um umfjöllun fjölmiðla um Breiðholtið á tímabilinu desember 2012 til mars 2013. 422 fréttir fjölluðu á einhvern hátt um hverfið á tímabilinu. Engin frétt af 422 mjög neikvæð Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Réttu græjurnar Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Akureyri Vestmannaeyjum Drive-HM-120C 1200W - 12cm Hræripinni - 2 hraðar 15.990,- Drive hornalaser 90 gráður 9.990,- Drive hornalaser 360 gráður kr. 15.990 + þrífótur kr 2.690 = 18.680,- Drive gíraffi gips- og spartl slípivél 620w 0-980sn/min 29.900,-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.