Fréttablaðið - 28.06.2013, Side 19
FÖSTUDAGUR 28. júní 2013 | SKOÐUN | 19
Skatturinn, ASÍ og Samtök
atvinnulífsins („Hið opinbera
plús“) fóru nýlega í átak til að
uppræta svokallaða ólöglega
gistingu í heimahúsum. „Gott
mál,“ hugsar einhver eflaust.
„Það á að taka þetta lið sem
brýtur lögin og draga það út um
dyragættina á hálskraganum.“
En samt: Þessi lög voru sett í
þágu hagsmunaaðila. Eiginlega
eru það lögin sem gera fólkið að
lögbrjótum, ekki öfugt.
Lobbýismi. Það er eina
ástæðan fyrir því að það er
ólöglegt að hýsa fólk heima hjá
sér en ekki er ólöglegt að borga
nánast engan vask af gistingu.
Samtök ferðaþjónustunnar hafa
unnið heimavinnuna sína en
„Samtök fólks sem á svefnsófa“
ekki. Kannski vegna þess að þau
síðarnefndu eru ekki til.
Unglingaherbergið leigt út
Tökum hjón sem búa í eigin
húsnæði. Ungmennið tilkynnir
þeim að það sé að fara í mánuð
til útlanda. „Kannski að við
drýgjum aðeins tekjurnar, og
leigjum út herbergið?“ hugsa
þau. „Auglýsum þetta á airbnb
eða eitthvað.“ „En er það ekki
ólöglegt?“ spyr annað þeirra.
„Gerum þetta þá bara löglega!“
segir hitt. „Það getur nú ekki
verið svo mikið mál.“
Fjórtán skriffinnskuskref
Þau byrja því á að fara í dóms-
húsið til að sækja forræðisvott-
orð fyrir íbúðina til að sýna að
þau megi ráðstafa henni (Skref
1). Þau sækja síðan um virðis-
aukaskattsnúmer hjá skatt-
stjóra (Skref 2). Það þarf víst að
borga vask af þessu þótt lágur
sé. Síðan þurfa þau auðvitað
að sækja um búsetuvottorð hjá
Þjóðskrá (Skref 3) og svo dugar
ekki minna en sakavottorð hjá
lögreglustjóra (Skref 4). Ekki
viljum við að það séu einhverjir
handrukkarar að leigja túristum
íbúðir.
Svo þarf tollstjórinn að votta
að þau séu skuldlaus við ríkis-
sjóð (Skref 5) og auðvitað þarf
lífeyrissjóður þeirra að stað-
festa sambærilegt skuldleysi
(Skref 6). Þá er skjalasöfnun
vegna umsóknarinnar næstum
lokið en reyndar þarf eitt í við-
bót: uppdrátt af íbúðinni á stað-
festu afriti frá byggingarfulltrúa
sveitarfélagsins (Skref 7). Þá
eru öll gögn komin. Sjö skjöl, sjö
staðir sem fólkið þarf að fara á.
Þessu þurfa hjónin síðan
að skila til lögreglu og borga
24.000 þúsund krónur (Skref 8).
Næst kemur heilbrigðiseftirlit-
ið í heimsókn og skoðar íbúðina
(skref 9). Síðan þarf sveitar-
félagið að veita jákvæða umsögn
(skref 10). Sömuleiðis slökkvi-
liðið (skref 11), Vinnueftirlitið
(skref 12), byggingarfulltrúi
(skref 13) og lögregla (skref 14).
Aðeins þá, nokkrum mánuðum
og tugþúsundum króna síðar, er
hægt að leigja út þetta eina her-
bergi. Og þá er gert ráð fyrir
að allt sé í lagi: Að handsápa og
pappírskarfa séu í herberginu og
allt svoleiðis.
Ef hjónin kysu nú að leigja
sama herbergi út til þriggja
mánaða en ekki til þriggja daga
þá er skyndilega ekki lengur
þörf á neinu af þessu. Nei, þá
dugar bara einfaldur samningur
sem fólk sækir á netinu og
prentar út. Svo þarf bara að fylla
tekjurnar út í réttan reit á skatt-
framtalinu. Heilbrigðiseftir litið
þarf ekki að mæta og enginn
spyr slökkviliðið um leyfi. Enda
væri það fáranlegt. Þetta er, jú,
íbúð. Fólk býr þarna.
Flöskuhálsinn
Það vita flestir að gistirýmin
eru flöskuhálsinn í uppbyggingu
ferðaþjónustu á Íslandi. Nú er
einhver tannréttingaráðstefna í
Hörpu. Þangað mæta 5 þúsund
gestir. Það eru 8 þúsund „lögleg“
gistirúm á höfuðborgarsvæðinu.
Segjum að 4 þúsund ferðamenn til
viðbótar vildu nú koma til lands-
ins á þessum tíma. Hvort er betra
fyrir þjóðarbúið að þúsund ferða-
menn sitji eftir heima eða komi
og gisti í svefnsófum og gesta-
herbergjum fólks? Augljóslega
hið síðarnefnda. Þess vegna á að
gera fólki þetta auðvelt. Minni-
háttar leiga á heima g istingu
ætti að vera eins og minniháttar
prjónaskapur: Engin leyfi. Einn
reitur í skattfram talinu.
Einhvern veginn finn ég ekki
til reiði gagnvart því fólki sem
reynir að bjarga sér í kreppu með
því að leigja út íbúðir sínar til
ferðamanna þrátt fyrir að lögin
reyni að banna því það. Ég verð
hins vegar reiður þegar slegið
er á hendur þessa fólks. Skila-
boðin eru: Unglingaherbergið skal
standa autt. Þar geta húsráðendur
setið, hvílt ennið í lófum sér og
beðið eftir „leiðréttingu“.
Til atlögu
við svefnsófann
Í DAG
Pawel Bartoszek
stærðfræðingur
Hvort er betra
fyrir þjóðarbúið að
þúsund ferðamenn sitji
eftir heima eða komi og
gisti í svefnsófum og gesta-
herbergjum fólks?
Morgunblaðið
birti í vikunni
línurit sem það
kallar „rann-
sókn“ unna af
Pipar TPWA um
áskriftarfjölda
Stöðvar 2 og
Skjás Eins. Línu-
ritið er í raun
engin rannsókn
því það tekur
u.þ.b. 2 mínútur
að fá sama graf
út úr neyslukönnun Capacent sem
var heimild þess. Aðalatriðið er þó
að þessi niðurstaða Pipar TPWA
byggir á meingallaðri aðferðafræði
og er í engu samræmi við veru-
leikann.
Pipar TBWA tekur ekki tillit til
tímasetningar þeirra kannana sem
það er að túlka, en öll fjölmiðla-
neysla er árstíðabundin og tíma-
setningar fjölmiðlakannana því
mikilvægar. Það er lítið vit í að bera
sjónvarpsáhorf um jólin saman við
áhorf um verslunarmannahelgi
nema til að staðfesta það sem allir
vita að það er meira horft um jólin.
Línuritið frá Pipar TPWA er
byggt á könnunum sem gerðar eru
á mismunandi tímapunktum öll
árin, en Stöð 2 hefur meiri árstíðar-
sveiflur í sinni áskriftarsölu en
Skjár Einn. Samkvæmt upplýsing-
um frá Capacent um tímasetningar
þessara kannana síðustu þrjú árin
er endapunkturinn í grafinu, sem
er áskriftarmengið í maí/júní 2013,
borinn saman við jólamengið í des./
jan. árið 2011, páskamengið árið
2012 og svo kemur endapunkturinn
maí/júní 2011 sem áður var nefndur.
Ýkt niðursveifla
Auðvitað sýnir línurit svona upp-
byggt ýkta niðursveiflu hjá sjón-
varpsstöð sem samkvæmt hefð á
fjölmörgum íslenskum heimilum
selur flestar áskriftir um jólin,
næstmest um páskana og minnst á
sumrin.
Væri hægt að fullyrða að það sé
samdráttur í verslun í Kringlunni
út frá könnunum sem væru gerðar
um jólin fyrsta árið, páskana það
næsta og í byrjun júní síðasta við-
miðunarárið?
Það er erfitt að vita með vissu
hver áskriftarfjöldi Stöðvar 2
eða Skjás eins er á hverjum tíma,
stöðvarnar vita það einfaldlega ekki
sjálfar vegna þess að fjöldi áskrifta
segir ekki til um hversu margir eru
á bak við áskriftirnar, það ræðst af
fjölda þeirra sem búa á áskriftar-
heimilunum sem er óþekktur og
síbreytilegur fjöldi.
En það eru til betri gögn og betri
aðferð til að meta áskriftarfjölda
því Capacent gerir líka rafrænar
áhorfskannanir sem byggjast á
„panel“ sem í eru allir fjölskyldu-
meðlimir (12-80 ára) þeirra heimila
sem taka þátt í könnuninni. Þessi
panell er uppfærður oft á ári þannig
að hann sé í samræmi við raunveru-
legan fjölda þeirra heimila sem eru
með áskrift að sjónvarpsstöðvum.
Rafrænu gögnin hafa þann kost
ef meta á áskriftarfjölda að þau
skrá áhorf allra fjölskyldumeðlima
þannig að við getum séð hversu
margir áskrifendur í þúsundum eru
að horfa á hverri mínútu og hægt er
að bera saman fjöldann á sömu árs-
tímum.
Það hlýtur að teljast varlega áætlað
að áskrifandi að sjónvarpsstöð, Stöð 2
eða Skjá einum, horfi a.m.k. 5 mín-
útur á sína stöð einhvern tíma í vik-
unni og ef fjöldi áskrifenda er met-
inn með þeirri aðferð er útkoman
eins og í þessu línuriti.
Þetta er miklu raunhæfara mat
á fjölda áskrifenda því áskriftar-
heimilum Stöðvar 2 fækkaði eðli-
lega eftir hrun og náði botninum
árið 2010 en 2011-2013 hefur sá
fjöldi sem býr á heimilum með
áskrift staðið í stað eins og á
Skjá einum.
Að blekkja með línuritum
FJÖLMIÐLAR
Sverrir
Agnarsson
starfar hjá 365 við
fj ölmiðlarannsóknir
FJÖLDI ÁSKRIFENDA Í ÞÚS SEM HORFA
Á SÍNA STÖÐ EINHVERN TÍMA I VIKUNNI
70
60
50
40
30
20
10
0
Vika 24 2011 Vika 24 2012 Vika 24 2013
■ St 2 ■ S1
53,7
31,2 30,831
53,2 53,5
Borgaraleg óhlýðni Alþingis?
Samkvæmt fréttum gera reglur Evrópuráðsins ráð fyrir kynjakvótum. Hér segir
að kynjahlutföll eigi að endurspegla kynjahlutföll á þingi og að minnst einn
fulltrúi af því kyni sem á hallar skuli sitja í hverri nefnd.
Þessu er ekki hægt að framfylgja ef kosið er í nefndir. Samt er íslenska
sendinefndin kosin.
Þjóðþingið gefur þannig skít í reglur Evrópuráðsins. Það verður ekki túlkað
sem annað en yfirlýsing um að reglurnar eigi ekki rétt á sér. Kannski yfirlýsing
um að kosningar séu lýðræðislegri en kynjakvótar.
Þegar almennir borgarar brjóta reglur meðvitað í pólitískum tilgangi, heitir
það borgaraleg óhlýðni. Hvað heitir það þegar þjóðþing notar sömu taktík í
fjölþjóðlegu samstarfi?
http://blog.pressan.is/evahauks/
Eva Hauksdóttir
Prinsessan á bauninni
Það lýsir af skrifum Sigmundar Davíðs að af íslenskum stjórnmálamönnum
kemst hann næst því að vera prinsessan á bauninni. En kannski hentar það
mönnum illa að stýra þjóðum ef þeir hafa viðkvæman bakhluta prinsessunnar
– og tapa svefni yfir einni baun.
http://blog.pressan.is/ossur/
Össur Skarphéðinsson
AF NETINU
Skógarhlíð 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 Akureyri sími: 4 61 1099 • www h. eimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
ré
tt
t
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
57
48
4
Benidorm
Costa del Sol
frá aðeins kr.
78.700
með fullu fæði
frá aðeins kr.
89.900
2. júlí
í viku
11. júlí
í 14 nætur
Heimsferðir bjóða frábært tilboð
í 7 nátta ferð til Benidorm 2. júlí.
Í boði er m.a Hotel Carlos I.
Hotel Carlos I
Kr. 78.700
með fullu fæði.
Netverð á mann m.v. 2 fullorðna og
2 börn í herbergi.
Netverð á mann mv. 2 fullorðna í herbergi
kr. 99.200. Sértilboð 2. júlí í viku.
Heimsferðir bjóða frábært tilboð
á síðustu sætunum 11. júlí
í 14 nætur. Í boði er m.a
Aguamarina íbúðarhótelið. Önnur
gisting í boði á ótrúlegum kjörum.
Aguamarina
Kr. 89.900
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og
2 börn, 2-11 ára, í íbúð með einu
svefnherbergi.
Netverð á mann m.v. 2 fullorðna í studio
íbúð kr. 118.900. Sértilboð 11. júlí í 2 vikur.