Fréttablaðið - 28.06.2013, Side 32
FRÉTTABLAÐIÐ Elísabet Eyþórsdóttir. Brúðkaup og gotterí. Hönnun og hugmyndir. Spjörunum úr. Helgarmaturinn.
6 • LÍFIÐ 28. JÚNÍ 2013
H
vað ertu að fást við
þessa dagana? „Ég er
aðallega að vinna við
tónlist með Sísý Ey
þessa dagana.“
Hvar ólstu upp? „Ég ólst upp
að mestu leyti miðsvæðis. Við
fluttum í Grafarvoginn í nokkur
ár en svo aftur í miðbæinn.
Mamma og pabbi eru búin að vera
saman í yfir 30 ár og eru ótrúlega
góð og yndisleg. Ég er svo þakklát
fyrir að eiga þau sem foreldra því
við erum svo náin.“
Eruð þið þrjár systurnar eða
eruð þið fleiri systkinin? „Við
eigum svo einn bróður sem er 15
ára og er algjör snillingur. Það
er mjög mikill vinskapur á milli
okkar sem ég er ótrúlega þakklát
fyrir. Mamma og pabbi eru svo
ótrúlega góð og yndisleg. Ég er svo
þakklát fyrir að eiga þau sem for-
eldra því við erum öll mjög náin.“
Foreldrar Elísabetar eru Ellen
Kristjánsdóttir söngkona og Eyþór
Gunnarsson píanóleikari í Mezzo-
forte en Elísabet segir að það hafi
aldrei verið nein pressa frá for-
eldrum hennar að þær systur
veldu tónlistina sem framabraut.
Gaf það auga leið að þú myndir
velja tónlistarbrautina eins og for-
eldrar þínir? Ég ætlaði alltaf að
verða söngkona og píanóleikari af
því að mig langaði að vera bæði
eins og mamma og pabbi því ég
hef alltaf litið svo mikið upp til
þeirra. Við systurnar fengum að
ráða því alveg 100 prósent sjálfar
hvað okkur langaði að gera í lífinu
og það vildi bara svo til að við vild-
um allar vinna við tónlist.“
Hvernig kom það til að þið
stofnuðuð hljómsveit saman og
hvaðan kemur nafnið? „Hug-
myndin að bandinu kom frá Car-
men vinkonu okkar árið 2011 en
hún er einnig í Sísý Ey. Henni
fannst sniðugt að fá okkur systur
til að syngja saman og í fram-
haldi af því fengum við snillinginn
hann Friðfinn með okkur í bandið.
Nafnið á hljómsveitinni kom frá
Sóleyju frænku okkar systra en
amma okkar var kölluð Sísý og átti
hún mjög mikinn þátt í okkar lífi.
Hún hvatti okkur mikið í tónlist-
inni og bara í öllu sem við gerðum.
Hún var mín stærsta fyrirmynd
í lífinu. Ey er svo bara stytting á
nafninu hans pabba.“
Ein stór fjölskylda
Hvernig er fyrirkomulagið í band-
inu, er ekki einn karlmaður innan
um allar konurnar? „Jú Friffi,
eða Friðfinnur Sigurðsson, er eini
karlmaðurinn í bandinu en það
er aldrei neitt vesen vegna þess.
Við erum oftast bara ein stór
hamingjusöm fjölskylda og allir
geta talað um allt. Friffi sér um
„beat“-in og tekur allt upp sem
við gerum. Við vinnum að lög-
unum saman og pössum bara að
allir séu sáttir og þá gengur bara
rosalega vel.“
Spilið þið systurnar á hljóð-
færi? „Já, ég spila á píanó og hef
verið að fikta við að spila á bassa.
Elín spilar á gítar og Sigga á
píanó og gítar. Friffi spilar á allt
mögulegt og Carmen á saxafón.
En eins og er þá sjá Elín og Friffi
um að spila á hljóðfærin. Friffi
spilar alla „synthana“ og öll hljóð
í lögunum okkar.“
Mögnuð upplifun á Sónar
Nú voruð þið að spila á Sónar
Reykjavík og þið voruð einnig að
spila á Sónar Barcelona, hvernig
var það? „Það var mikill heiður að
fá að vera með á Sónarhátíðinni í
Barcelona og hópurinn okkar var
ekki af verri endanum. Wow Air
styrkti okkur með ferðinni út og
gerði okkur þannig kleift að kom-
ast öll saman. Hátíðin bauð upp á
ótrúlega mikið af flottri tónlist og
tónleikarnir okkar gengu rosalega
vel. Fólkið dansaði og það er svo
góð tilfinning að sjá alla í svona
skemmtilegri stemningu. Það var
bara rosaleg upplifun. Við fengum
hjálp frá vinum okkar til að gera
þetta mögulegt en Imba vinkona
sérhannaði búninga á okkur og
Magga vinkona aðstoðaði líka.
Svo fengum við Adda, sem er líka
þekktur sem Intro Beats, til að
taka upp tónleikana upp á vídjó.
Unnsteinn Manuel söng svo með
okkur eitt lag og peppaði áhorf-
endur upp. Án þeirra hefði þetta
alls ekki verið mögulegt.
Það er eitthvað magnað við
það að dansa með fullt af fólki
um miðjan dag í 30 stiga hita við
geggjaða tónlist. Við fórum út
fimm dögum fyrir tónleikana og
náðum að slaka á í sólinni og kom-
ast í mega gír fyrir tónleikana.
Hljómsveitin fór öll saman á æðis-
lega strönd í einstaklega fallegum
bæ sem heitir Sitges. Ég held að
það hafi verið eitt það skemmti-
legasta sem ég hef gert.
Hvaða verkefni eru í deiglunni
hjá ykkur í sumar? „Næst á dag-
skrá er bara að halda áfram að
semja og vinna að öllu sem fylgir
ELÍSABET EYÞÓRSDÓTTIR
ÞAKKLÁT FYRIR FORELDRA MÍNA
Tónlistarkonan Elísabet Eyþórsdóttir er meðlimur hljómsveitarinnar Sísý Ey sem skotist hefur fram á sjónarsviðið að undanförnu. Elísabet hefur
verið umkringd tónlist frá blautu barnsbeini, en fjölskylda hennar hefur lifað og hrærst í tónlistarheiminum. Lífi ð ræddi við Elísubetu um æskuna,
hljómsveitina, listamannalífi ð og hvernig það er að elska konu.
NAFN
Elísabet Eyþórsdóttir
ALDUR
26 ára
ATVINNA
Tónlistarkona
BÖRN
5 ára strákur
HJÚSKAPARSTAÐA
Í sambandi
MATUR
Sushi
DRYKKUR
Fanta lemon í
dós
VEITINGA-
HÚS
Grillmarkaðurinn
HREYFING
World Class
VERSLUN
Þær eru margar
HÖNNUÐUR
Jeremy Scot
DEKUR
Nudd
Uppáhalds
Brúnkukrem + bodylotion
í einni vöru
Gefur góðan raka.
Húðin dekkist með
hverri notkun.
SÖLUSTAÐIR:
www.guinot.is
LAIT HYDRABRONZE