Fréttablaðið - 28.06.2013, Page 36
FRÉTTABLAÐIÐ Hönnun og hugmyndir. Spjörunum úr. Helgarmaturinn.
10 • LÍFIÐ 28. JÚNÍ 2013
É
g hef alltaf heillast rosa-
lega mikið af þessum stíl
frá því að ég var ung-
lingur en ég sá fyrir mér
í einhverjum draumi að
mig langaði að eiga svona heimili
einhvern tímann. Svo fluttum við
í stærra húsnæði og mig vantaði
húsgögn til að fylla upp í plássið
og byrjaði því af fullum krafti að
endurgera mublur,“ segir Lilja
Björk Birkisdóttir. Það má vera
að heimilið sé þar sem hjartað er
en þegar maður er skapandi þá er
aldeilis ekki sjálfgefið að rölta út
í búð og kaupa nákvæmlega þau
húsgögn sem maður leitar að. Hjá
Lilju Björk er hugmyndaflugið til
staðar og áhuginn fyrir hönnun
og húsgögnum með frönsku ívafi
er svo mikill að hún ákvað sjálf
búa til franska stemningu fyrir
sitt draumaheimili. Lilja Björk
heldur úti Facebook-síðunni
Franska Liljan þar sem hún deilir
ýmsum verkefnum og aðferðum
með áhugasömum. Hún segir við-
brögðin hafa verið einstaklega
góð. Jafnvel karlmennirnir fjór-
ir á heimilinu hvetja hana til dáða
þrátt fyrir að heimilið sé orðið
heldur kvenlegra en áður fyrr.
„Maður verður að hafa augun
opin. Stundum kaupi ég einhver
húsgögn í Góða hirðinum eða á
Bland.is því mér líst vel á þau en
svo hef ég ekki endalaust pláss
og sel þá hluti sem ég hef verið að
gera upp. Þetta er svolítið tíma-
frekt þegar maður er að leita að
réttum hlutum og getur stundum
verið svolítið erfitt,“ segir Lilja
Björk og bætir við að hún sé
heimavinnandi og hafi því nægan
tíma til að dunda í þessu. Hús-
gagnamálun segist hún ekki hafa
sérstaklega lært nema í gegnum
bækur og annað efni sem hún
hefur verið að rýna í af miklum
ákafa. Múrbúðin hefur oftar en
ekki orðið fyrir valinu þegar
kaupa á málningu eða grunn og
segist Lilja Björk hafa verið að
prófa sig áfram með alls kyns
uppskriftir að kalkmálningu.
„Ég nota mikið hvíta Meistara-
grunninn. Svo nota ég svarta
matta veggmálningu og mála allt-
af kantana eða alla mubluna með
henni og hvíta grunninn ofan á
til að fá þetta dökka slit þegar
maður pússar, það finnst mér
svolítið flott.“
HÖNNUN
BÝR TIL FRANSKT
DRAUMAHEIMILI
Lilja Björk Birkisdóttir gerir upp húsgögn
og málar gamla fallega muni.
Lilja Björk Birkisdóttir endurgerir gamla muni og gefur þeim nýtt líf.
App sem
þú þarft
Nýtt í spjaldtölvuna og snjallsímann
Nú er komið app fyrir Fréttablaðið:
Fáðu Fréttablaðið ókeypis í spjaldtölvuna og snjall-
símann með nýja Fréttablaðsappinu. Nú er hægt að
nálgast Fréttablaðið hvar sem er, á hverjum morgni.
Sláðu inn Fréttablaðið á Google Play, Windows
store eða í App store og náðu í appið.
Fyrir
Fyrir
Eftir
Eftir
Skápurinn í stofunni var áður brúnn.
Sænski bekkurinn var málaður með grunni og hann fékk nýtt áklæði.
KALKMÁLNING LILJU
1 hluti gifsduft
Vatn
3 hlutar akrýlmálning (má
vera t.d. veggmálning eða
akrýl lakk, en ekki grunnur)
Aferð: Ég byrja á því að setja
duftið í ílát eins og t.d. fötu, og
þynni það út með vatni, smá í
einu. Það er gott að hræra í,
þetta á að vera álíka þykkt og
súrmjólk.
Þegar duftið er uppleyst og
blandan er jöfn, þá bæti ég út í
málninguna og hræri vel. Svo má
alltaf þynna blönduna með vatni
ef hún verður of þykk.