Fréttablaðið - 28.06.2013, Side 38

Fréttablaðið - 28.06.2013, Side 38
Lífi ð FRÉTTABLAÐIÐ Spjörunum úr og Helgarmaturinn Ari Már Heimis- son, kokkur og eigandi Kaffi - Kompanísins á Kjarvalsstöðum, mælir með hollum og bragðmiklum salsaborgara fyrir fjóra um helgina HELGAR MATURINN SALSA-KJÚKLINGABORGARI Kári Sverrisson ALDUR: 31 STARF: Ljósmyndari og alt- muligt mand á Lemon Laugavegi 4 ferskar kjúklingabringur 1 mangó 3-4 tómatar ½ rauðlaukur 3-4 hvítlauksgeirar ½ búnt kóríander, ferskt 1 stk. lime 1 poki klettasalat Brauðbollur frá Polarbröd 4 bökunarkartöflur, stórar Salt og pipar Paprikukrydd ½ líter létt ab-mjólk 1 dl olía Mangósalsa: Skerið mangó, rauðlaukinn, og tómatana í litla bita. Saxið einn hvítlauksgeira og koríander og blandið saman við. Limesafi er kreistur yfir og kryddað með örlitlu salti og pipar. Hvítlaukssósa: Hellið ab-mjólkinni í skál, pressið restina af hvítlauknum saman við og kryddið létt með salti og pipar. Grillið kjúklingabringurnar og kryddið með salti og pipar. Þegar kjúklingurinn er tilbúinn er hann skorinn í tvennt og borgaranum raðað saman með klettasalatinu, mangósalsanu og hvítlaukssósunni. Kartöflubátar: Skerið kartöflurnar í tvennt og síðan í þunna báta. Setjið í ofnskúffu, kryddið með paprikukryddi, salti og pipar. Veltið þeim því næst upp úr olíunni. Bakað í ofni á 200°C í ca. 20-25 mín eða þar til þær eru orðnar mjúkar í gegn. Gott er að byrja á að gera kartöflurnar áður en kjúklingurinn er eldaður þar sem þær þurfa langan tíma í ofninum. Hvern faðmaðir þú síð- ast? Ég faðmaði kærastann minn síðast. En kysstir? Kyssti bestu vin- konu mína Söndru bless, á munninn. Hver kom þér síðast á óvart og hvernig? Hún heitir Þrúða og vinnur hjá Lingo. Hún aðstoðaði mig við að sækja um í drauma- námið í London og nýlega hringdi hún í mig til þess að segja mér að ég hefði kom- ist inn í meistaranám í tísku- ljósmyndun í London College of Fashion. Hvaða galla í eigin fari ertu búinn að um- bera allt of lengi? Fullkomnunar áráttuna í mér. Ertu hörundsár? Get verið það, er nokkuð mannlegur. Dansarðu þegar enginn sér til? Mér finnst betra, þægilegra og skemmtilegra að dansa með öðrum. Hvenær gerðirðu þig síðast að fífli og hvernig? Fyrir stuttu þegar ég reyndi að nota afsláttarkort Olís á N1, það var gott ljóskumóment. Hringirðu stundum í vælubílinn? Nei, þegar ég er í því ástandi þá gleymi ég því að það sé til vælubíll. Tekurðu strætó? Helst ekki, kannski í hallæri og í ýtrustu neyð Hvað eyðirðu miklum tíma á Facebook á dag? Suma daga stoppa ég í smá stund og aðra daga stoppa eg mjög stutt. Ferðu hjá þér þegar þú hittir fræga eða heils- arðu þeim? Nei, ekki nema ég þekki þetta fræga fólk. Þá fær það lítið veif frá mér. Annars eru þessir frægu einstaklingar bara alveg eins og ég og þú. Lumarðu á einhverju sem fáir vinir þínir vita um þig? Ég vann einu sinni karókíkeppni, og ég átti að fæðast í janúar 1982, ekki desember 1981, en ég fæddist mánuði fyrir tímann. Hvað ætlarðu alls ekki að gera um helgina? Ég ætla alls ekki að láta mér leiðast. ...SPJÖ RU N U M Ú R

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.