Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.06.2013, Qupperneq 56

Fréttablaðið - 28.06.2013, Qupperneq 56
28. júní 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 32 BAKÞANKAR Magnúsar Þorláks Lúðvíkssonar Leikkonan Courteney Cox er komin með nýjan kærasta. Sam- kvæmt vinum Cox er hún komin á fast með mótleikara sínum úr sjónvarpsþáttunum Cougar Town. Cox og Brian Van Holt, sem leikur fyrrverandi eiginmann hennar í þáttunum, hafa verið saman í um sex mánuði. Cox skildi við leikarann David Arquette árið 2010 og sakaði Arquette fyrrver- andi eiginkonu sína um að hafa átt í „tilfinningalegu ástarsambandi“ með Van Holt á meðan á hjóna- bandi þeirra stóð. Cox ástfangin ÁSTFANGIN Courteney Cox við tökur á Cougar Town ásamt Brian Van Holt. NORDICPHOTOS/GETTY Ted Allen, stjórnandi matreiðslu- þáttanna Chopped, tilkynnti í dag að hann og kær- asti hans, Barry Rice, hafi ákveðið að trúlofa sig. Þetta gerðu þeir skömmu eftir að hæsti- réttur Bandaríkjanna tók á miðvikudag ákvörð- un um að nema úr gildi lög frá 1996 er fela í sér mis- munum gagnvart samkynhneigð- um pörum sem gengið hafa í hjónaband. „ É g e r stoltur af því að geta til- kynnt á þess- u m sög u - lega degi að ég og sambýlis- maður minn til tuttugu ára , Barry R ice , er u m trúlofaðir,“ ritaði Allen á Twitter. A l l e n e r menntaður blaða- maður og hefur meðal annars unnið við gerð sjónvarpsþáttanna Queer Eye for the Straight Guy, Iron Chef America og Chop- ped, sem er sérlega vin- sæll matreiðslu- þáttur sem er sýndur á sjón- varpsstöðinni Food Network. Sjónvarpsmaður trúlofar sig Ted Allen úr Chopped tilkynnti um trúlofun sína. TRÚLOFAÐUR Ted Allen ákvað að trú- lofast sambýlismanni sínum eftir að lög um hjónabönd samkyn- hneigðra voru felld úr gildi á miðvikudag. NORDICPHOTOS/GETTY Leikkonan Emma Watson, sem þekktust er fyrir að leika Hermione í Harry Potter, sagði í nýlegu viðtali að hún ætti aðeins átta pör af skóm. Watson leikur eitt aðalhlutverkið í nýrri mynd sem kallast The Bling Ring. Myndin er byggð á sann- sögulegum atburðum og segir frá hópi ungra þjófa sem brutust inn á heimili nokkurra Hollywood- stjarna. Gengið braust meðal annars inn til Paris Hilton sem gaf kvikmyndargerðarmönnum leyfi til þess að mynda á heimili sínu. Watson sagði í viðtalinu að það hefði verið súrrealísk upplifun að labba inn í stútfullt fataher- bergi hótelerfingjans og sagði það ákveðna tegund af ofneyslu. Á aðeins átta pör af skóm EMMA WATSON Gagnrýnir Paris Hilton fyrir að eiga allt of mikið fötum. Leikarinn Ryan Reynolds kveðst ekki fara út úr húsi án þess að eiginkona hans, leikkonan Blake Lively, leggi blessun sína á klæðnað hans. Þetta sagði Ryan í viðtali við Extra. „Ég mundi aldrei fara út um dyrnar án þess að fá hennar samþykki,“ sagði leikarinn er hann var staddur á Spáni við frumsýningu kvikmyndarinnar Turbo. Parið kynntist við tökur á kvikmyndinni Green Lantern árið 2011 og gifti sig þann 9. september í fyrra. Þeim er mjög annt um einkalíf sitt og eru sjaldan mynduð saman á rauða dreglinum. Lively samþykkir klæðnað Reynolds Ryan Reynolds segir eiginkonu sína velja fötin á sig. FÆR SAMÞYKKI Ryan Reynolds klæðir sig ekki án samþykkis eiginkonu sinnar, Blake Lively. NORDICPHOTOS/GETTY ➜ Ted Allen er meðal ann- ars þekktur úr sjónvarps- þáttunum Queer Eye for the Straight Guy. Það lá frekar beint við að hefja störf á dagblaði upp úr tvítugu enda hef ég verið fréttafíkill frá því að ég man eftir mér. Á barnsaldri þegar vinir mínir vildu verða atvinnumenn í fótbolta eða rokk- stjörnur vildi ég verða eins og gömlu kall- arnir í 60 mínútum. Ókei, ég vildi verða atvinnumaður og rokkstjarna en ég vildi líka verða eins og Steve Kroft, ólíkt hinum. „Those stories and Andy Rooney tonight on 60 Minutes.“ FYRIR tilkomu internetsins reikna ég með því að fréttafíkn hafi verið nokkuð viðráðan legur sjúkdómur. Jújú, menn gátu horft og hlustað á alla fréttatíma, verið áskrifendur að rosalega mörgum blöðum og tímaritum og, hver veit, jafnvel hringt stöku sinnum á ritstjórnir til að spyrja: „Er eitt- hvað í gangi?“ Tímafrekt en ekki of tímafrekt. Í nútímanum eru engin efri mörk á því hve margra frétta þú getur neytt. Fréttafíkilinn er því fastur í kviksyndi fíknar sinnar og á engrar undankomu auðið. Á hverju augnabliki er þessi blanda af eðlislægri forvitni og óttanum að vera að missa af einhverju (uppskrift fréttafíknar) eins og sverð Damóklesar hangandi yfir honum. Þetta er algjörlega óþolandi ástand. Hvernig er hægt að koma nokkru í verk með allan fróð- leik heimsins að kalla á þig? Í nútímanum les fréttafíkill öll blöð og tímarit og hlustar á alla fréttatíma. Þá fyrst byrjar ruglið. Fréttafíkillinn skoðar allar fréttasíður og blogg áður en hann fer á Twitter og fær upplýsingar frá hundruð milljóna manna um allan heim, beint í æð. Venjulegt fólk er komið með rödd og getur miðlað upplýsingum og fréttum beint í stað þess að fara í gegnum fjölmiðla. Hljómar vel, ekki satt? Vandinn er bara sá að netið kallar stundum fram það versta í fólki og þess vegna fyllist Twitter af óstað festum fréttum sem ekki er flugufótur fyrir. Ýktasta dæmið eru fréttir um félagaskipti knattspyrnumanna, sem eru endalausar og álíka pottþéttar og lottótölur sem blind- fullur bavíani að kasta pílum á spjald gefur þér. Þannig að fréttafíkillinn ver ekki bara allt of miklum tíma í fíknina heldur æsist hann upp oft á dag vegna frétta sem reynast síðan vera rugl. HVER er lausnin? Jú, væntanlega ætti fíkill inn að banna sjálfum sér að verja meiri tíma en til dæmis klukkutíma á dag í fréttalestur og halda sig við traustu miðlana. Skyldi fíklinum takast það? Bavíanar kasta pílum á spjald EGILSHÖLLÁLFABAKKA KRINGLUNNI KEFLAVÍK AKUREYRI EMPIRE H.S.S. - MBL WHITE HOUSE DOWN 5 - 8 - 10 THE PURGE 8 - 10.40 THE ICEMAN 8 - 10.20 THE INTERNSHIP 5 EPIC 2D 5 Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu. EIN NÓTT Á ÁRI ALLIR GLÆPIR ERU LÖGLEGIR 5% ÞRIÐJUDAGSTILBOÐIN GILDA EKKI Í BORGARBÍÓ SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%5% BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS BYGGT Á SANNSÖ GULEGUM ATBURÐUM WHITE HOUSE DOWN KL. 5.10 - 8 - 10.50 14 WHITE HOUSE DOWN LÚXUS KL. 5.10 - 8 - 10.50 16 THE PURGE KL. 6 - 8 - 10 16 THE INTERNSHIP KL. 5.25 - 8 - 10.35 7 AFTER EARTH KL. 8 12 FAST & THE FURIOUS 6 KL. 10.15 12 EPIC 2D ÍSL.TAL KL. 3.30 - 5.45 L EPIC 3D ÍSL.TAL KL. 3.30 L WHITE HOUSE DOWN KL. 6 - 9 14 THE PURGE KL. 6 - 8 - 10 16 THE ICEMAN KL. 10.15 16 THE INTERNSHIP KL. 9 7 AFTER EARTH KL. 8 12 EPIC 3D ÍSL.TAL KL. 5.45 L THE GREAT GATSBY KL. 6 12 WHITE HOUSE DOWN KL. 8 - 10 14 THE PURGE KL. 8 - 10.30 16 THE ICEMAN KL. 5.40 16 / THE INTERNSHIP KL. 5.40 7 DAGSKRÁIN ER Á WWW.BIOPARADIS.IS OG MIDI.IS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.