Fréttablaðið - 28.06.2013, Qupperneq 62
28. júní 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 38
„Okkur líður bara eins og þetta
hafi verið draumur en við erum
með hringa sem staðfesta þetta
allt saman,“ segir Daniel Ann-
isius, starfsmaður hvalaskoðunar-
fyrirtækisins Gentle Giants á
Húsavík, sem gekk að eiga hina
sænsku Alexiu Askelöf 24. júní.
Daniel og Alexia, eða Lia eins
og hún er kölluð, starfa bæði
hjá Gentle Giants en þau kynnt-
ust árið 2007 þegar Alexia hóf
störf hjá fyrirtækinu. Á mánu-
daginn gengu þau í það heilaga
og fór athöfnin fram í Naustavík
við Skjálfanda. „Þetta var voða
rómant ískt allt saman. Við kynnt-
umst um borð, með steypireyðar
og hnúfubaka allt í kring. Fyrir
þremur árum fórum við í starfs-
mannaferð út í Naustavík, sem er
hérna hinum megin við flóann.
Þar segir Lia: „Hér ætla ég að
gifta mig!“ og síðan þá hefur þetta
verið djók innan fyrirtækisins. En
öllu gríni fylgir greinilega ein-
hver alvara,“ segir Daniel og hlær.
Hann segir brúðkaupsdaginn hafa
verið draumi líkastur. „Við ferj-
uðum fólkið yfir flóann í hvala-
skoðunarbátnum okkar, Sylvíu, og
athöfnin fór fram í fjörunni. Svo
kom sólin fram einmitt á meðan á
athöfninni stóð sem var alveg frá-
bært. Við fengum veitingastaðinn
Pallinn á Húsavík, sem Völundur
Snær Völundarson rekur, til að sjá
um grillið og svo vorum við með
köku í sæluhúsinu. Að því loknu
kveiktum við upp í varðeldi og
sungum, og sigldum svo heim um
miðnætti við flugeldasýningu á
meðan hnúfubakarnir blésu og
miðnætursólin skein. Þetta var
bara eins fullkomið og hægt var
að ímynda sér.“
Daniel og Lia búa í Svíþjóð yfir
vetrartímann, þar sem Lia starf-
ar sem hundaþjálfari en Daniel
nemur við Dalarna-háskólann.
„Við ákváðum bara þegar við
komum til Húsavíkur í vor að nú
væri rétti tíminn kominn. Þetta
er tólfta sumarið mitt hjá Gentle
Giants og sjötta hjá henni, og
þar að auki eiga foreldrar henn-
ar þrjátíu ára brúðkaupsafmæli
í ár,“ segir Daniel. Hann segist
ekki vita til þess að aðrir en þau
Lia hafi gift sig í Naustavík. „Ég
hef talað við marga gamla sjóara
og eins við landeigendur í Nausta-
vík en það man enginn eftir því
að einhver hafi gift sig þarna
áður,“ segir Daniel, en Nausta-
vík er hluti af Náttfaravíkum
sem bera nafn þrælsins sem var í
för með Garðari Svavars syni sem
kom til Íslands árið 870 og hafði
hér vetursetu fyrstur manna.
Spurður að því hvort ekki standi
til að fara í brúðkaupsferð segir
Daniel að ferðin verði að bíða
fram á haustið. „Það er brjálað að
gera á sumrin í hvalaskoðuninni
svo við verðum bara að bíða eftir
að vertíðinni ljúki. Þá skellum við
okkur í Interrail um Evrópu.“
kristjana@frettabladid.is
Ástin kviknaði í hvalaskoðun
Daniel Annisius og Alexia Askelöf, starfsmenn Gentle Giants á Húsavík, gift u sig við ævintýralega athöfn í Naustavík á mánudaginn.
Þau ferjuðu gestina yfi r fl óann í hvalaskoðunarbátnum Sylvíu og fylgdust með hnúfubökum blása við hlið bátsins á leiðinni.
Alexia Askelöf var rétt tæplega átján ára þegar hún sótti um starf hjá
Gentle Giants. Þá hafði Daniel starfað hjá fyrirtækinu í sex ár og þegar
hann fór yfir umsóknir ásamt framkvæmdastjóra fyrirtækisins, Stefáni
Guðmundssyni, vildi Daniel helst ekki að Alexia yrði ráðin inn, þar sem
hann taldi hana of unga. Stefáni leist hins vegar vel á umsókn stúlkunnar
og réð hana til starfa. „Þetta er búið að vera þvílíkt ævintýri hjá þeim.
Dagurinn var líka alveg hreint ólýsanlegur,“ sagði Stefán, sem skipulagði
daginn með brúðhjónunum.
Örlögin réðu ferðinni
Í ÍSLENSKUM
LOPAPEYSUM
Þau Alexia og Daniel
fundu ástina í hvala-
skoðun á Húsavík. Þau
gengu í það heilaga
á mánudaginn og
klæddust íslenskum
lopapeysum við
athöfnina, sem fram
fór í Naustavík við
Skjálfanda.
MYND/JÓHANNES SIGURJÓNSSON
Við sigldum svo
heim um miðnætti við
flugeldasýningu á meðan
hnúfubakarnir blésu og
miðnætursólin skein.
„Ég verð í vinnunni á laugardaginn
en á sunnudaginn geri ég
eflaust eitthvað skemmtilegt og
uppbyggilegt. Fer eflaust út að
hreyfa mig og borða svo góðan mat
með góðu fólki.“
Jóhanna Kristjánsdóttir, annar eigandi
Systrasamlagsins.
HELGIN
H Ú S G AG N A H Ö L L I N O P I Ð
O G O P I Ð E I T T S Í M A N Ú M E R
ÚTSALA
SUMAR-
| |
| |
| |
|
| | |
UREYRI | REYKJAVÍK | AKU
REYRI | REYKJAVÍK | AKUR
EYRI |
– fyrir lifandi heimili –
AFSLÁTTUR
%50
ALLT AÐ
Sjóntækjafræðingurinn Davíð
Sigurðsson er mikill áhugamaður
um Willys-jeppa og hefur átt yfir
tuttugu slíka á ævinni.
„Frá því að maður var peyi hafði
maður ægilega gaman af svona
jeppum. Ég komst í kynni við gaml-
an Willys-jeppa hjá frænda mínum
þegar ég var tíu til tólf ára og eftir
það komst ekkert annað að hjá mér
en að eignast svona jeppa,“ segir
Davíð, spurður út í þetta áhuga-
mál sitt.
Hinn 48 ára Davíð, sem rekur
verslunina Optic Reykjavík, keypti
sinn fyrsta Willys-jeppa þegar
hann var sextán ára. Hann var
1974-árgerð af tegundinni CJ5.
Davíð setti 35 tommu dekk undir
bílinn, sem þóttu ægilega stór
á þeim tíma, tók þátt í torfæru-
keppnum og lék sér mest á honum í
kringum syðra Fjallabak en Davíð
ólst upp að hluta til á Hellu.
Síðan þá hefur hann verið dug-
legur að kaupa sér Willys og núna
á hann tvo, einn fyrir veturinn og
annan fyrir sumarið. Sá fyrrnefndi
er átta sýlindra, á 38 tommu dekkj-
um og með 420 hestafla vél. - fb
Hefur átt yfi r tuttugu Willys
Sjóntækjafræðingurinn Davíð Sigurðsson er áhugamaður um jeppana.
WILLYS-MAÐUR
Sjóntækjafræð-
ingurinn Davíð
Sigurðsson hjá
Willys-jeppunum
sínum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON