Fréttablaðið - 05.07.2013, Blaðsíða 8
5. júlí 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 8
EFNAHAGSMÁL Eigendur fasteigna-
félags sem fékk 1,5 milljarða króna
að láni frá Íbúðalánasjóði (ÍLS)
til uppbyggingar á Austur landi
greiddu sjálfum sér 430 milljónir
króna í arð stuttu áður en félagið
fór í þrot. Íbúðalánasjóður sat eftir
með 2,2 milljarða skuld og íbúðir
sem enginn vildi kaupa.
Fjallað er um málið í skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis um
Íbúðalánasjóð. Þar kemur fram að
umgjörð sjóðsins hafi verið gölluð
þar sem ekki hafi verið gerðar
nógu strangar kröfur um fjárhag
til leigufélaga sem lánað var til.
Meðal þeirra félaga sem fengu
lán var Fasteignafélag Austurlands
ehf. sem fékk 1,5 milljarða króna
hjá Íbúða lánasjóði til uppbyggingar
á Austurlandi. Eigendur fasteigna-
félagsins voru Ágúst Benediktsson,
Haraldur Gunnarsson, Ingibjörg
Baldursdóttir og Franz Jezorski,
en Franz er fyrrverandi stjórnar-
formaður Heklu og löggiltur fast-
eignasali.
Fram kemur í skýrslu rann-
sóknar nefndarinnar að á sama tíma
og félagið hafi fengið 1,5 milljarða
lán hafi eigið fé félagsins aðeins
verið um tvö prósent af eignum
þess. Reglur sjóðsins áttu að miða
við tíu prósenta eiginfjárhlutfall.
Í rannsóknarskýrslunni segir að
eigendurnir hafi fullvissað stjórn-
endur sjóðsins og yfirvöld um að
eftirspurn væri eftir íbúðum á
Austurlandi sem tóku eigendurna
á orðinu án þess að kanna málið
sjálfir.
Eigendur fasteignafélagsins
stofnuðu í kjölfarið fyrirtækið
Byggingaverktakar Austurlands
ehf. sem sá meðal annars um að
reisa fjögur sex hæða fjölbýlishús á
Reyðarfirði á árunum 2004 til 2007
fyrir lánsfjárhæðina og gerði fast-
eignafélagið því í raun samning við
sjálft sig.
Árin 2007 til 2009 lækkaði verð
á íbúðum á Austurlandi um 21
prósent sem gerði það að verkum
að ekki leit út fyrir að arðsemi yrði
mikil af verkefninu.
Samningarnir reyndust samt
sem áður hagstæðir fyrir eigend-
ur félaganna og græddu þeir vel á
meðan fasteignafélaginu gekk illa.
Á meðan fasteignafélagið gat
fengið lánað hjá sjóðnum, þrátt
fyrir slæman fjárhag, gátu eigend-
urnir greitt sér 430 milljóna króna
arð úr verktakafyrirtækinu, sem
hagnaðist vel á samningnum. Íbúða-
lánasjóður átti einungis kröfu á
fasteignafélagið sem var með eigið
fé sem sveiflaðist í kringum núllið.
Í lok árs 2007 sameinuðust svo
félögin undir nafni Fasteignafélags
Austurlands sem skuldaði Íbúða-
lánasjóði á endanum 2,2 milljarða
króna. Félagið lýsti sig gjaldþrota
árið 2011 og sat Íbúðalánasjóður því
uppi með allar skuldir félagsins og
hundruð íbúða sem standa margar
auðar, enn þann dag í dag, þrátt
fyrir að eigendurnir hefðu örfáum
árum áður greitt sér mörg hundruð
milljónir króna í arð.
lovisa@frettabladid.is
Fengu milljarða lán
þvert á reglur ÍLS
Eigendur Fasteignafélags Austurlands ehf. greiddu sér 430 milljóna króna arð
vegna uppbyggingar á Austurlandi án þess að verkefnið sjálft væri arðbært.
Félagið lýsti sig gjaldþrota og skildi Íbúðalánasjóð eftir í 2,2 milljarða króna skuld.
VIÐSKIPTI Fjárhagsstaða 365 miðla
styrktist árið 2012 og hagnaður
jókst um 22 prósent frá fyrra ári.
„Rekstur ársins 2012 var
ásættan legur og þriðja árið í röð
sem félagið skilar hagnaði sem
telja má viðunandi í ljósi efna-
hagsumhverfisins,“ er haft eftir
Ara Edwald, forstjóra 365 miðla, í
fréttatilkynningu sem fyrirtækið
sendi frá sér í gær. „Stöðugt er
unnið að ráðstöfunum til að bæta
afkomu félagsins.“ Nefnir hann í
því tilliti endursamninga um sjón-
varpsefni og önnur aðföng, ein-
földun á rekstri
og sameiningu
reksturs félags-
ins á einn stað.
Hluti af þessu
er sameining
fréttastofu
félags ins í eina
öfluga einingu.
„ Þá er lögð
áhersla á að efla enn frekar inn-
lenda dagskrárgerð en þar hefur
Stöð 2 verið í fararbroddi.“
Heildarvelta 365 miðla ehf. fyrir
árið 2012 nam 9.227 milljónum
króna og var hagnaður 305
milljónir króna eftir skatt og er
það 22 prósenta aukning.
Fyrirtækið hefur byggt upp
öflugt fjarskipta- og tæknisvið,
þróað tæknilegri hlið á þjón-
ustuframboði félagsins og hann-
að ný smáforrit sem nú þegar
hefur verið halað niður 70 þúsund
sinnum.
„Í haust verða kynntar spenn-
andi nýjungar undir hatti sjón-
varps framtíðarinnar sem bæta
þjónustu og auka hagkvæmni fyrir
viðskiptavini.“ - ne
Unnið að því að bæta afkomu, efla dagskrárgerð og þróa þjónustuframboð:
Hagnaður eykst hjá 365 miðlum
ARI EDWALD
Árið 2006 stóð til að þrengja skilyrði Íbúðalánasjóðs um lán til leiguíbúða
töluvert og meðal annars lækka lánshlutfall til slíkra verkefna.
Eigendur Fasteignafélags Austurlands kvörtuðu yfir fyrirhugaðri
breytingu við Magnús Stefánsson, þáverandi félagsmálaráðherra, og bentu
á að slík ákvörðun myndi hafa veruleg áhrif á verkefni félagsins.
Eigendurnir fullvissuðu sjóðinn um að ekki væri nokkur leið að hætta
við verkefnin sökum gríðarlegrar eftirspurnar eftir leiguíbúðum á svæðinu.
Í kjölfarið fóru forsvarsmenn fasteignafélagsins á fund með Magnúsi
og starfsmönnum félagsmálaráðuneytis sem tóku eigendurna á orðinu án
þess að rannsaka frekar hver eftirspurnin væri í raun og veru.
➜ Yfirvöld könnuðu ekki jarðveginn
Fjármálaeftirlitið gerði athugasemd við að Fasteignafélag Austurlands
uppfyllti ekki reglur um að eiginfjárhlutfall skyldi vera að minnsta kosti
tíu prósent. Íbúðalánasjóður fullyrti samt í svari til eftirlitsins að lán hefði
verið í samræmi við reglur á þeim tíma sem það var veitt. Fram kemur í
skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis að sú fullyrðing hafi verið röng.
Ekki hlustað á Fjármálaeftirlitið
MATVÖRUVERÐ HÆKKAR Matvöruverð hækkar um allt að 26 prósent
NEYTENDUR Vöruverð hefur hækk-
að verulega í öllum verslunum frá
því í júní 2010 samkvæmt könn-
un Alþýðusambands Íslands (ASÍ)
sem kynnt var á dögunum.
Könnunin tekur til lágvöru-
verðsverslana, stórmarkaða og
klukkubúða en þegar rýnt er í
verðhækkanir verslunarkeðjanna
á þessum þremur árum má sjá að
verðhækkanir eru afar mismun-
andi eftir verslunarkeðjum.
Minnsta hækkunin á þessu
tímabili er hjá verslunum Hag-
kaupa, um fjögur prósent, og
Nóatúns, um átta prósent. Mesta
hækkunin á tímabilinu er hins
vegar hjá Tíu-ellefu verslunum
en þar hefur verð hækkað um
26 prósent. Vörukarfa hjá Bónus
hefur hækkað um tuttugu prósent
og vörukarfa Krónunnar um 18
prósent.
Til hliðsjónar bendir ASÍ á að
verð á mat- og drykkjarföngum í
vísitölu neysluverðs hafi hækkað
um sautján prósent frá því í júní
2010. - le
Verð hækkað um 4 til 26 prósent frá árinu 2010:
Vörukarfan hækkar
mest hjá Tíu-ellefu
VOTMÝRI Ein þeirra fasteigna sem Fasteignafélag Austurlands reisti á Egilsstöðum.
MYND/SIGURÐUR INGÓLFSSON
Stjórnin berst fyrir
lífi sínu
1PORTÚGAL Leiðtogar stjórnarflokkanna í
Portúgal reyndu í gær að
bjarga lífi stjórnarinnar,
sem riðaði til falls vegna
harðvítugra deilna flokk-
anna út af efnahagskrepp-
unni. Erfiðar aðhalds-
aðgerðir hafa leikið bæði
landsmenn og stjórnvöld
grátt, en Mario Draghi,
seðlabankastjóri Evrópu-
sambandsins, reyndi í gær
að hvetja stjórnina áfram
og sagði hana hafa náð
framúrskarandi árangri.
Murdoch
viðurkennir brot
2BRETLAND „Við erum að tala um greiðslur til
lögreglu fyrir fréttaábend-
ingar. Það hefur tíðkast
öldum saman,“ heyrist
fjölmiðlajöfurinn Rupert
Murdoch segja á hljóðupp-
töku, sem birt var afrit af á
fréttarás bresku sjónvarps-
stöðvarinnar Channel
4 News. Á upptökunni
gerir hann lítið úr brotum
blaðamanna á fjölmiðlum
sínum, sem uppvísir hafa
orðið að hlerunum og
mútugreiðslum.
Áminning á
þjóðhátíð
3FRAKKLAND Manuel Walls,
innanríkisráðherra
Frakklands, lét
tækifærið ekki ónotað
þegar hann flutti ræðu
í bandaríska sendi-
ráðinu í París í gær, á
þjóðhátíðardegi Banda-
ríkjanna, og ítrekaði
kröfu Frakka um að fá
að vita sannleikann um
njósnir Bandaríkjanna:
„Við eigum að segja
hlutina skýrt, greini-
lega og af einurð.“
1
2
3
HEIMURINN