Fréttablaðið - 05.07.2013, Síða 16

Fréttablaðið - 05.07.2013, Síða 16
5. júlí 2013 FÖSTUDAGUR| SKOÐUN | 16 Margir höfðu vonast til að forsætisráðherra myndi nota tækifærið við hátíð- arræðu sína 17. júní sl. til að slá á sáttatóna bæði út á við sem og inn á við til þjóðarinnar. Það hefði getað auðveldað honum eftirleikinn og gert þjóðina sáttari við það afturhvarf til fortíðar og sérgæslu sem nýkjörinn meiri- hluti á Alþingi hefur lofað að standa vörð um og ráðherrar útfæra nú kappsamlega. Einnig hefði sú söguskoðun að sættir og samlyndi hafi ríkt hjá þjóðinni á krepputímum síðustu aldar, mátt bera vott um meiri þekkingu á þeim tíma. Sögufölsun er vand- meðfarið valdatæki, sem hefur alltaf verið notað af sigurvegur- um allra tíma, sjálfum sér til upp- hafningar. Aftenging við vinaþjóðir Sjaldan hafa átakalínur í íslensk- um stjórnmálum verið skýrari. Hvort sem horft er inn á við, til skattlagningar auðlindanýtinga, ríkisfjármála, umhverfismála, atvinnuuppbyggingar eða skipu- lagi stjórnsýslu, svo ekki sé minnst á stjórnarskrármálið sjálft. Alls staðar eru nú stigin föst skref til að snúa við þeim ákvörðunum sem teknar voru á síðasta kjörtíma- bili, og viðmið sett á löngu liðna tíð. Meðan stjórnvöld í nágrannaríkjum eru að kortleggja framtíðina fetum við í fótspor fortíð- ar. Þetta seinkar því að við Íslendingar getum orðið samhliða öðrum nágranna- þjóðum í samfélagsþróun- inni. En kannski er það einmitt til- gangurinn, því í utanríkismálum er snúið við af þeirri braut sem mótuð var eftir stríð, þar sem framtíð og örlög þjóðarinnar voru fasttengd í bandalögum með vestrænum ríkj- um við inngönguna í NATO. Þetta meginstef íslenskrar utan- ríkisstefnu var endurtekið um 1970, við þátttöku í EFTA og síðan aftur með EES-samningnum 1993. Nú er sá dýrmæti meginþráður rofinn, vík verður á milli vina. Kannski þau rof verði enn dýpri. Miðað við þær yfirlýsingar að for- seti landsins fari með fullveldis- málin f.h. ríkisstjórnarinnar, þá má vænta þess að hér gætu orðið frekari breytingar á. Hann hefur aldrei verið mikill vinur vestrænn- ar samvinnu. Og nú bætir for- sætisráðherra um betur. Illsakir eru troðnar við ríkjasamband nágrannaþjóða okkar og þar alið á tortryggni og fjandskap. Sjálf- birgingsháttur forsætisráðherr- ans 17. júní var með ólíkindum. Málflutningurinn minnti á belg- ing stjórnar Norður-Kóreu í garð Bandaríkjanna. Íslenskt samfélag í fjötrum Síðbúin samfélagsþróun er ekki ný af nálinni hérlendis. Við erum og vorum það sem kalla má seink- uð þjóð. Bjuggum við innlenda kúgun, sem sambærileg var við bændaánauð lénstímans í Evr- ópu, nema hér voru það stórbænd- ur sem héldu þróun samfélagsins í heljargreipum með vistarbandi og margvíslegum álögum á leigu- liða. Þetta var ekki afnumið fyrr en skömmu eftir að bændaánauð- in var aflögð í flestum Evrópu- ríkum. Við þurftum enga útlend- inga til að kúga okkur. Það gerðu samlandar okkar. Frelsisboðskap- urinn kom með sunnanvindinum yfir höfin. Þegar fullveldi var fengið vorum við vanþróuð þjóð bæði í pólitískum, búsetulegum sem og atvinnulegum skilningi. En dugleg vorum við og fljót að tileinka okkur erlenda verkkunn- áttu. Umbylting varð í atvinnuhátt- um sem sumir stjórnmálamenn óttuðust. Atkvæðin fluttu á möl- ina í gin nýrra og óþekktra áhrifa- valda. Þegar þjóðir eru staddar á milli þekktrar fortíðar og óvissr- ar framtíðar, bregðast þær oft við með sterkri löngun til að hverfa aftur til liðinna tíma, eins og best kom fram í stefnu Jónasar frá Hriflu um nýbýlavæðingu sveit- anna. Bændasamfélagið átti áfram að vera undirstaða þjóðlífsins. Nú virðumst við aftur vera komin á sama pólitíska reit. Þeir tveir atvinnuvegir sem fæstum veita atvinnu og minnsta þróun- armöguleika eiga að bera uppi framtíðar atvinnuþróunina. Land- búnaðarstefnan tryggir stórum hluta bænda hörmungarkjör, enda er kindakjötsframleiðsla næst geita búskap ein óhagkvæmasta atvinnugrein á heimsvísu. Óhag- kvæmar atvinnugreinar geta aldrei leitt til skaplegra lífskjara. En vissulega er hefðbundinn land- búnaður afar þjóðlegur og því skal hlúa að honum. Oflátungsskapur og gorgeir Enduruppvakning þjóðernis- drambsins, sem nú er óspart sung- ið lof, er varhugaverðasti boðskap- urinn sem ríkisstjórnin leggur að þjóðinni að tileinka sér. Ekkert er hættulegra farsælli þróun sam- félaga en ofuráhersla á þjóðerni, trúarstefnur eða hugmyndafræði og hefur alltaf leitt til ógæfu. Það er ekki gæfulegt að þrengja sýn okkar til umhverfisins og fram- tíðarinnar. Nesjamennska Heimssýnar er slæmt leiðarljós lítilli þjóð. Fyrir um öld síðan voru sambærileg átök milli fortíðar og framtíðar og nú, sem meðal annars kom fram í mótmælum bænda gegn símanum. Síminn þótti ekki þjóðlegt fyrir- bæri. Við mærðum yfirburði vík- ingaeðlisins íslenska á upphafsár- um núverandi aldar, með kunnum afleiðingum. Nú virðist holur oflát- ungsskapur og gorgeir aftur orðin þjóðleg einkenni. Seiður þjóðremb- unnar er rammur afskekktri þjóð. Vonandi stendur þetta gjörninga- veður stutt yfir í þetta sinn. Ofl átungsskapur treður illsakir SAMFÉLAG Þröstur Ólafsson hagfræðingur ➜ Við þurftum enga útlendinga til að kúga okkur. Það gerðu samlandar okkar. Frelsisboðskapurinn kom með sunnanvindinum yfi r höfi n. Það vekur alltaf furðu mína þegar þeir sem mæla á móti byggingu nýs Land- spítala nota rökin að steypa muni ekki leysa vanda spít- alans. Ég get ekki tekið undir það og tel mikla þörf fyrir að bæta í steypu- magnið á Landspítala. Landspítalinn er það sjúkrahús sem sinnir öllum landsmönnum, líkt og nafnið gefur til kynna. Innan veggja sjúkrahúss- ins starfa hátt á fimmta þúsund starfsmenn og yfir 100.000 sjúklingar nýta sér þjón- ustu spítalans ár hvert. Starfsemi spítalans er dreifð um allt höfuð- borgarsvæðið og telja húsakynni hans tugi húsa. Flest þessara húsa eru börn síns tíma og þjóna á engan hátt þörfum þess heilbrigðiskerfis sem við búum við í dag. Núverandi húsnæði spítalans þarfnast verulegs viðhalds og sífellt þarf að breyta húsnæðinu og bæta til að reyna að koma starf- seminni fyrir. Tækninni hefur fleygt fram og ekki var gert ráð fyrir öllum þeim tækjum sem henni fylgja í núverandi húsnæði. Allir vita að spítalinn er í mikilli þörf fyrir ný tæki en hvar á að koma þessum tækjum fyrir? Húsnæðið er of lítið. Til að mynda eru allar geymslur stútfullar. Það veldur því að gangarnir eru oftar en ekki full- ir af rúmum, tækjum eða sjúkling- um. Það vantar nefnilega ekki bara pláss fyrir tæki og tól heldur líka sjúkrastofur. Spítalinn er sprung- inn. Dýrast að gera ekki neitt Margur hefur notað þau rök gegn byggingu spítalans að huga þurfi að mannauðnum og ætla ég ekki að draga úr mikilvægi þess. Mann- auðurinn er það sem virkilega þarf að hlúa að. Lág laun og mikið álag er að sliga starfsfólkið. Bæta þarf þessi atriði sem allra fyrst og er kjörið tækifæri til þess nú þegar kjarasamningar verða lausir á nýju ári. En vinnuumhverfi hefur líka mikið að segja. Í dag ætti vinnustaður með lekum gluggum og myglu í veggj- um að heyra sögunni til. Það að sjúklingar þurfi að liggja á gangin- um í allra augsýn, inni á setustofu eða inni á salerni ætti líka að til- heyra fortíðinni. Fjölbýli er einnig eitthvað sem ekki ætti að nota í dag með tilliti til sýkingavarna og smit- sjúkdóma, svo ég tali nú ekki um vegna friðhelgi einkalífsins. Það að veita góða þjónustu hefur líka áhrif á líðan starfsfólks við vinnu sína. Að veita góða þjónustu eykur starfsánægju. Við þurfum nýtt sjúkrahús, bæði starfsfólksins og sjúklinganna vegna. Ég fagna því að heilbrigðisráð- herra hefur ekki blásið byggingu Landspítalans út af borðinu sbr. umræðu á alþingi þann 25. júní síðastliðinn. Landspítalinn er mik- ilvægur hlekkur í heilbrigðiskerfi okkar, ómissandi hlekkur. Ef Land- spítalinn getur ekki sinnt hlutverki sínu sem skyldi lamast allt heil- brigðiskerfið. Ég hef fullan skilning á því að nauðsynlegt sé að sýna aðhald í rík- isrekstri en útreikningar hafa sýnt að með byggingu nýs sjúkrahúss, og því að koma þjónustunni undir eitt þak, næst fram hagræðing sem fljótt borgar upp kostnað bygging- arinnar. Spítalareksturinn er dýr, en hann er dýrari en hann þyrfti að vera eins og fyrirkomulagið er í dag. Stundum er nefnilega dýrast að gera ekki neitt. Ekki bara steypa HEILBRIGÐIS- MÁL Ólafur G. Skúlason formaður Félags íslenskra hjúkrunar- fræðinga ➜ Það vantar nefnilega ekki bara pláss fyrir tæki og tól heldur líka sjúkra- stofur. Spítalinn er sprunginn. Við setningu Alþingis sagði forsetinn eðlilegt að Alþingi skyldi fyrir fjórum árum, þegar örlagaþrungin óvissa ríkti í efnahagslífi hins vestræna heims, sjá kosti í viðræðum við Evrópusam- bandið. Nú blasti annar veruleiki við. Enginn vissi hvernig sambandið kynni að þróast og evrusvæð- ið byggi við djúpa kreppu. Síðan segir: „Þessi atburðarás, og reyndar líka viðræður mínar við fjölmarga evrópska áhrifamenn, hafa sann- fært mig um að þrátt fyrir vinsam- legar yfirlýsingar sé í raun ekki ríkur áhugi hjá Evrópusamband- inu á því að ljúka á næstu árum við- ræðum við okkur. […] Því er í senn ábyrgt og nauðsynlegt að deila þeirri sýn með þingi og þjóð að litlu kann að skipta hvort Ísland kýs að halda viðræðum áfram; mótaðilann virðist í reynd skorta getu eða vilja til að ljúka þeim á næstu árum.“ Þegar forsetinn segir mótaðilann virðast í reynd skorta getu eða vilja til að ljúka samningaviðræðunum á næstu árum hafa flestir skilið orð hans þannig að Evrópusamband- ið vildi ekki „taka við Íslandi“ – á næstu árum. Í viðtali við RÚV 27. júní vegna Þýskalandsheimsóknar segist for- setinn aldrei hafa sagt „að Evr- ópusambandið vildi ekki taka við Íslandi” og bætir við að óábyrgt sé af Íslandi að fara í viðræður við Evrópusambandið í einhverjum leikaraskap. „Ég sagði í þingsetningarræðunni að það væri margt sem að benti til þess, og það væri mín ályktun eftir viðræður við marga og það hefur nú styrkst í þessari heimsókn, að af ýmsum ástæðum, sem að ég rakti í ræðu minni, að ekki væri unnt að ljúka viðræðum, nema að ljóst væri að verulegur stuðningur væri meðal Íslendinga fyrir aðild.“ Þessi skoðun kemur ekki fram í ræðunni heldur sú skoðun að í raun væri ekki ríkur áhugi hjá Evrópu- sambandinu á því að ljúka á næstu árum viðræðum við okkur. Alvörusamband Nú er það ályktun forsetans „að ekki væri unnt að ljúka viðræð- um, nema ljóst væri að verulegur stuðningur væri meðal Íslendinga fyrir aðild“ – og forsetinn heldur áfram: „Því það er á vissan hátt óábyrgt af okkur sem þjóð að fara í viðræð- ur við alvörusamband eins og Evr- ópusambandið, svona í einhverjum leikaraskap, bara til þess að kanna nú, hvað við kannski fengjum út úr því. Slíkur leikaraskapur er bara ekki gjaldgengur í alvöru alþjóðleg- um samskiptum, þó að það kannski passi á Íslandi í umræðunni þar. Við verðum að passa okkar orðspor sem þjóð og sem lýðveldi að þegar við sækjum um inngöngu í aðildar- samband eins og Evrópu þá mein- um við það í alvöru.“ Í þingsetningarræðunni var það „í senn ábyrgt og nauðsynlegt að deila þeirri sýn með þingi og þjóð að litlu kann að skipta hvort Ísland kýs að halda viðræðum áfram“. Í viðtalinu við RÚV er það óábyrgt af okkur sem þjóð að fara í viðræð- ur við alvörusamband eins og Evr- ópusambandið svona í einhverjum leikaraskap bara til þess að kanna nú hvað við kannski fengjum út úr því. Ísland – þar sem leikara- skapur passar í umræðunni innan- lands – getur ekki boðið alvörusam- bandi eins og Evrópusambandinu að kanna hvað fengist kannski út úr samningaviðræðunum. Samningar Þegar gengið er til samninga er verið að kanna hvað fæst út úr samningum. Norðmenn gengu til samninga við EB 1972 og lögðu samninginn fyrir þjóðina sem var felldur vegna þess að kjósendur töldu sig engu bættari. Hið sama gerðist 1993. Norðmenn fóru ekki í viðræður við „alvörusamband“ í einhverjum leikaraskap heldur sem fullvalda þjóð til að kanna hvað fengist út úr samningum. Enginn talaði um að það væri á vissan hátt óábyrgt af Norðmönnum að fara í viðræð- ur við alvörusamband eins og Evr- ópusambandið til þess að kanna hvað þeir fengju út úr samningun- um, allra síst þjóðhöfðingi Norð- manna sem lét aldrei hafa neitt eftir sér um afstöðu sína, enda þjóðhöfðingi allra Norðmanna, hvort heldur þeir voru með eða á móti aðild. Auk þess vissi hann að hann ræður ekki stefnu Norð- manna í stjórnmálum. Forseti Íslands þarf að gera sér grein fyrir að hann ræður ekki stefnu Íslands í stjórnmálum, heldur kjörnir fulltrúar – stjórn- málamenn – og forsetinn er ekki stjórnmálamaður. Samkvæmt stjórnarskrá lýðveldisins Íslands er „forseti lýðveldisins ábyrgðar- laus á stjórnarathöfnum“ og „ráð- herrar bera ábyrgð á stjórnar- framkvæmdum öllum“. En hann má ekki vera ábyrgðarlaus í tali. Evrópusambandið og forseti lýðveldisins UTANRÍKISMÁL Tryggvi Gíslason fyrrverandi skóla- meistari ➜ Enginn talaði um, að það væri á vissan hátt óábyrgt af Norðmönnum að fara í við- ræður við alvörusamband eins og Evrópusambandið til þess að kanna hvað þeir fengju út úr samningunum DEH-1500DEH-150 DEH-4500 LÁGMÚLA 8 · REYKJAVÍK · SÍMI 530 2800 VERSLANIR UM LAND ALLT www.ormsson.is HEIMSKLASSA HLJÓMFLUTNINGUR 4X50 W MOSFET magnari / Útvarp með 24 stöðva minni / Spilar MP3, WMA, WAV, CD-R/RW / AUX og USB tengi á framhlið / Hægt að tengja við fjarstýringu í stýri (tengi fylgir ekki) / EEQ, Tónstillir fyrir bassa, mið- og hátóna. Verð: 22.900,- kr. 4X50 W MOSFET magnari / Útvarp með 24 stöðva minni / Spilar MP3, WMA, WAV, CD-R/RW / AUX tengi á framhlið / Hægt að tengja við fjarstýringu í stýri (tengi fylgir ekki) / EEQ, Tónstillir fyrir bassa, mið– og hátóna. Verð: 19.900,- kr. 4X50 W MOSFET magnari / Útvarp með 24 stöðva minni / Spilar MP3, WMA, WAV, CD-R/RW / AUX og USB tengi á framhlið / iPod í gegnum USB / Bluetooth, mic fylgir / EEQ, Tónstillir fyrir bassa, mið– og hátóna. Verð: 37.900,- kr.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.