Fréttablaðið - 05.07.2013, Qupperneq 36
5. júlí 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 24
„Með nýju fólki koma auðvitað
örlítið nýjar áherslur,“ segir
útvarpskonan Hulda Bjarna-
dóttir, sem frá og með deginum
í dag mun stjórna hinum vinsæla
útvarpsþætti „Í bítið“ á Bylgjunni
ásamt þeim Gulla Helga og Heimi
Karlssyni. Þátturinn hefur
verið á dagskrá Bylgjunnar um
langt skeið en síðastliðin sex ár
hafa þau Heimir og Kolla [Kol-
brún Björnsdóttir] stýrt þætt-
inum. Kolla sagði skilið við þátt-
inn í byrjun júní og í hennar stað
koma inn reynslu boltarnir tveir.
„Ætli þetta séu ekki um 80 ár í
útvarpsreynslu,“ segir Hulda og
hlær, en Gulli hóf störf í útvarpi
árið 1984 og Heimir tveimur
árum síðar. Þau segja að ein-
hverjar breytingar verði á þætt-
inum en að þó muni þau halda
í fasta liði. „If it‘s not broken,
don‘t fix it,“ bætir Gulli við.
Þátturinn verður áfram á dagskrá
alla virka daga og hefst á slaginu
6.50 en lýkur nú klukkutíma síðar
en venjan er, eða klukkan tíu. - ka
Breytingar á Bylgjunni
Útvarpsþátturinn Í bítið á Bylgjunni verður nú
klukkutíma lengur í loft inu en áður.
REYNSLUBOLTAR MEÐ MEIRU Þau Hulda Bjarnadóttir, Heimir Karlsson
og Gunnlaugur Helgason stjórna nú útvarpsþættinum „Í bítið“ á Bylgjunni.
Þátturinn hefur verið lengdur um klukkutíma.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
„Þetta eru allt vinir Björns og hljóm-
sveitir sem Skátar spiluðu mikið með
hér áður fyrr. Okkur langaði að heiðra
minningu látins félaga með því að halda
gott partí. Þetta verður engin erfis-
drykkja heldur falleg og skemmtileg
stund,“ segir Benedikt Reynisson, gítar-
leikari hljómsveitarinnar Skáta. Sveitin
stendur fyrir tónleikum á Faktorý í
kvöld til heiðurs Birni Kolbeinssyni, sem
betur er þekktur sem Bjössi Skáti. Hann
lést í köfunarslysi í Silfru á Þingvöllum
þann 28. desember síðastliðinn.
Aðspurður segir Benedikt að lagalisti
kvöldsins samanstandi fyrst og fremst
af lögum Skáta. „Við tökum Skáta-lög og
svo smá spuna til heiðurs Bjössa,“ segir
hann.
Auk Skáta munu fjórar aðrar
sveitir stíga á svið í kvöld og halda
uppi minningu Björns.
Aðgangseyrir er þúsund krónur
og mun ágóðinn renna til Kvenna-
athvarfsins. „Okkur þótti meira
við hæfi að styrkja gott málefni en
að styrkja okkur sjálfa. En fyrst og
fremst er þetta í anda Bjössa, hann
var meðvitaður um samfélagið í
kringum sig.“
Tónleikarnir hefjast stund-
víslega klukkan 22.30 í kvöld.
sara@frettabladid.is
Halda minningu á
loft i með tónleikum
Hljómsveitin Skátar heiðrar minningu Björns Kolbeinssonar með tónleikum á
Faktorý í kvöld. Engin erfi sdrykkja, heldur falleg stund, segir Benedikt Reynisson.
FÖSTUDAGURHVAÐ? HVENÆR? HVAR?
HEIÐRA MINNINGU VINAR Meðlimir Skáta heiðra minningu látins vinar með tónleikum á Faktorý í kvöld. Björn Kolbeinsson lést í
köfunarslysi í desember í fyrra. MYND/ÚR EINKASAFNI
Óskar R. Harðarson
hdl. og löggiltur fasteignasali
Verð: 28,9 millj.
Logafold
112 Reykjavík
Nánari upplýsingar veitir
Jórunn Skúladóttir, Sölufulltrúi
jorunn@miklaborg.is sími: 845 8958
• Falleg íbúð með glæsilegu útsýni
• Þriggja herbergja
• Lítið fjölbýli 2 íbúðir á hæð
• Bílskýli
PI
PA
R\
TB
W
A
-S
ÍA
-
1
3
1
9
5
5
Vinur við veginn
11 kg
2 kg
5 kg
10 kg
Smellugas fyrir
grillið, útileguna
og heimilið
Einfalt, öruggt og þægilegt!
Smellugas
Bloodgroup
Grísalappalísa
Jan Mayen
Sigtryggur Berg Sigmarsson
Skátar og vinir Bjössa úr Kimono
og Bloodgroup
➜ Þessir koma fram
í kvöld
BENEDIKT
REYNISSON
Myndlist
17.00 Sýningin Verkfærið opnar í Verk-
smiðjunni á Hjalteyri. Þar verður sýnd
innsetning eftir Elísabetu Brynhildar-
dóttur, Guðrúnu Benónýsdóttur og
Selmu Hreggviðsdóttur.
17.00 Sumarsýning hjá Tveimur
hröfnum listhúsi, Baldursgötu 12 (gegnt
Þremur frökkum veitingastað). Sýningin
er samsýning þeirra listamanna sem
eru í samstarfi við listhúsið ásamt
völdum verkum eftir fleiri listamenn.
Sýnd verða verk eftir eftirtalda lista-
menn; Davíð Örn Halldórsson, Hallgrím
Helgason, Huldu Hákon, Húbert Nóa
Jóhannesson, Jón Óskar, Steinunni
Þórarinsdóttur, Erró, Óla G. Jóhannsson
og Kristján Davíðsson.
Tónlist
22.00 Ljótu hálfvitarnir leika á Græna
hattinum á Akureyri. Forsala miða hjá
Eymundsson í Hafnarstræti.
22.00 Bítladrengirnir Blíðu fá til
sín gesti á kvöldskemmtun á Café
Rosenberg. Gestasöngvarar eru; Gísli
Helgason, Kormákur Bragason, Eggert
feldskeri, Sara Blandon og Atli Geir
Grétarsson. Gestaspilarar verða Þórður
Árnason og Hjörtur Howser. Aðgangs-
eyrir kr. 2.000.
23.00 Ingvar Grétarsson skemmtir á
Ob-La-Dí-Ob-La-Da,Frakkastíg 8.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is .