Fréttablaðið - 05.07.2013, Page 38

Fréttablaðið - 05.07.2013, Page 38
5. júlí 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 26 BAKÞANKAR Stígs Helgasonar Þegar ég var smástrákur hlupu stundum í mig óknyttir, eins og gekk, og ég hringdi símaöt. Sjaldnast voru þau frumleg – það var til dæmis vinsælt að hafa sam- band við verslanir og spyrja starfsmenn einkennilegra spurninga um vöruúrval og láta þá hlaupa til og frá í allskyns erindis- leysu. Ha ha. Yfirleitt voru fleiri áheyrend- ur að símtalinu – viðhlæjendur væru þeir kallaðir ef þeir hefðu ekki alltaf beitt sig hörðu til að halda rokunum niðri. KLASSÍSKAST var nafnagrínið. Manni var tamt að taka upp símann, hringja í fimm stafa númer af handahófi og spyrja hvort Bolli væri heima. „Enginn Bolli? En undirskál?“ Svo skellti maður á og sturlaðist úr hlátri. Það var auðvelt að vera lítill. Þetta gerði ég án þess að átta mig á kaldhæðninni sem fólst í því að maður sem héti Stígur vogaði sér að skopast að nöfnum annarra. FÁ samþykkt íslensk mannanöfn bjóða nefnilega upp á eins mikið grín og mitt eigið. Einmitt þess vegna þróaði ég snemma með mér býsna þykkan skráp sem engir útúrsnúning- ar bitu á, og ég geri ráð fyrir að það sama eigi við um þá 35 sem deila með mér eiginnafni. „STÍGUR lýgur meira en hann mígur,“ var frasi sem náði snemma fótfestu í mínu nánasta umhverfi þótt hann hafi verið – og sé enn ––fullkomlega órökréttur, enda lygar og þvaglát algjörlega ósambærilegar gjörðir og útilokað að leggja á þær sama mælikvarða. En hann var auðvitað ekki illa meintur, ekki frekar en það þegar maður var kallaður Göngustígur í fyrsta sinn eða það sjöþúsundasta, og ekkert af þessu tók maður nærri sér. Sumpart ber fólk nöfn einmitt svo að hægt sé að snúa upp á þau. OG spaugið er vissulega mishugvitssam- legt. „Ef Stígur væri plataður til að taka að sér kött, væri það þá Stígvélaði kötturinn?” spurði hnyttinn kollegi minn eitt sinn, við nokkra kátínu mína og annarra viðstaddra. SVO getur það líka verið torrætt og valdið heilabrotum. Þannig barst mér til dæmis tölvupóstur í gær frá virtum og máls- metandi þjóðfélagsþegn á áttræðisaldri sem hófst á orðunum: „Það var ánægju- legt, Stífur.“ Ég vona að það hafi verið innsláttar villa. Stígkrampi Fatahönnuðurinn Raf Simons sýndi nýja línu tískuhússins Dior á mánudag. Athygli vakti að fyrirsæturnar Alek Wek, Grace Mahary, Joan Smalls, Maria Borges, Kelly Moreira og Yasmin Warsame voru á meðal þeirra sem sýndu hönnun Simons, en þetta er í fyrsta sinn sem svartar fyrir- sætur sýna fyrir Dior frá því að hann tók við stjórn. Þetta er sjö- unda línan sem Simons hannar fyrir Dior. Svartar fyrirsætur sýna fyrir Dior Raf Simons notaði í fyrsta sinn svartar fyrirsætur þegar hann sýndi fyrir Dior. FLOTT Raf Simons hefur hannað sjö línur fyrir Dior. HÖNNUÐ- URINN Raf Simons ásamt skart- gripahönnuð- inum Gaia Repossi. NOR- DICPHO- TOS/GETTY ALEK WEK Fyrirsætan var á meðal þeirra sem sýndu nýjustu línu Dior. GLÆSILEGT FRÁ DIOR Línan frá Dior þótti hin glæsilegasta. RÖNDÓTT Sýningar- stúlkur Raf Simons hafa yfirleitt verið hvítar. THIS IS THE END 5 - 8 - 10.20 WHITE HOUSE DOWN 5 - 10 THE PURGE 8 THE ICEMAN 8 - 10.20 EPIC 2D 5 Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu. EKKERT EYÐILEGGUR GOTT PARTÝ EINS OG HEIMSENDIR! 5% DAGSKRÁIN ER Á WWW.BIOPARADIS.IS OG MIDI.IS SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%5% BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS THIS IS THE END KL. 5.30 - 8 - 10.30 16 THIS IS THE END LÚXUS KL. 5.30 - 8 - 10.30 16 THE LONE RANGER KL. 5 - 8 - 11 12 WHITE HOUSE DOWN KL. 5.10 - 8 - 10.50 14 THE PURGE KL. 10.35 16 THE INTERNSHIP KL. 5.25 - 8 7 EPIC 2D ÍSL.TAL KL. 3.20 L EPIC 3D ÍSL.TAL KL. 3.20 L THIS IS THE END KL. 5.30 - 8 - 10.30 16 WHITE HOUSE DOWN KL. 6 - 9 14 THE PURGE KL. 8 - 10 16 THE INTERNSHIP KL. 9 7 EPIC 3D Í SL.TAL KL. 5.45 L THE GREAT GATSBY KL. 6 12 THIS IS THE END KL. 5.40 - 8 - 10 16 WHITE HOUSE DOWN KL. 8 14 THE PURGE KL. 10.30 16 S.B., DV S.G.S., MBL Miðasala á: og EGILSHÖLLÁLFABAKKA KRINGLUNNI KEFLAVÍK AKUREYRI MERKTAR MEÐ GRÆNU OG APPELSÍNUGULU Í BÍÓAUGLÝSINGUM SAMBÍÓA KR. 1000 Á GRÆNT OG KR. 750 Á APPELSÍNUGULT SPARBÍÓ EMPIRE H.S.S. - MBL

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.