Fréttablaðið - 05.07.2013, Síða 46

Fréttablaðið - 05.07.2013, Síða 46
5. júlí 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 34 „Ég er ekki með stór plön þessa helgina. Er að fara í vinnuferð með vinkonu minni og svo var eitthvað verið að tala um að fara á hestbak.“ Ísgerður Gunnarsdóttir leikkona. HELGIN Elsta leiklistarhátíð landsins, Act alone, verður haldin tíunda árið í röð 8. til 11. ágúst í sjávarþorp- inu Suðureyri. Margt verður gert í tilefni af afmæli hátíðarinnar og verður dagskráin sérstaklega fjöl- breytt og skemmtileg þetta árið. Efnt var til handritasamkeppni þetta árið undir yfirskriftinni íslenski sjómaðurinn þar sem óskað var eftir einleik sem fjallar um íslenska sjómann- inn. Alls bárust sextán handrit í keppnina en til- kynnt verður um sigurvegarann 1. ágúst. Það er eftir nokkru að slægjast því sá höfundur sem þykir eiga besta einleikinn að mati dómnefndar Act alone mun hljóta 250.000 krónur í verðlaun. Ilmur Kristjánsdóttir leikkona er einn af skipu- leggjendum hátíðarinnar. „Við vildum búa til sköpunarvettvang fyrir einleik. Nokkurs konar hvatningar verðlaun og stuðla að nýsköpun. Það eru ekki margir á Íslandi að skrifa einleiki.“ Sjálf vakti Ilmur mikla athygli fyrir hlutverk sitt sem Ausa í einleiknum um Ausu Steinberg. „Það er mjög sérstakt að leika einleik og ég dáist að fólki sem stendur í þessu. Það er nefnilega mikil ábyrgð að vera einn og getur líka verið einmanalegt. Þess vegna er mikilvægt að fá marga áhorfendur.“ Að sögn Ilmar verður ýmislegt fyrir alla á hátíðinni og má þá nefna barnaleikrit, tónleika og íslenska og erlenda einleiki. „Þetta er fjölskylduvæn skemmtun þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi, “ segir Ilmur að lokum. - hó Einmanalegt að sýna einleik Leiklistarhátíðin Act alone verður haldin í tíunda sinn á Suðureyri í ágúst SKIPULEGGUR Ilmur Kristjánsdóttir leikkona er einn af skipu leggjendum leiklistarhátíðarinnar Act alone. MYND/VALLI Það gengur ekki alveg eftir áætlun. Við þurftum að grípa til annarra ráðstafana út af sjóveiki,“ segir Lára, spurð hvernig lífið um borð í Húna gangi. „Ég ber það fyrir mig að fjögurra ára dóttir mín, sem er með í för, hafi orðið sjóveik á leiðinni frá Akureyri til Húsavíkur, en sannleikurinn er sá að ég var alveg eins sjóveik og hún.“ Lára, maður hennar Arnar Þór, sem er trommari í bandinu, og dóttir þeirra fóru því landleiðina til Borgarfjarðar eystri eftir tón- leikana á Húsavík, enda sautján tíma sigling ekki freistandi fyrir sjóveika. „Við sögðum bara pass, takk fyrir kærlega,“ segir Lára. Lára er af sjómannaætt frá Ísa- firði, bæði afi hennar og langafi voru skipstjórar, og segist hún skammast sín pínulítið fyrir sjó- veikina. „Ég hef sjómennskuna í blóðinu og vonandi tekur ekki nema tvo, þrjá daga að venjast þessu lífi. Ég mun verða með í siglingunni frá Höfn til Vest- mannaeyja, enda verður dóttirin þá komin til afa síns og ömmu, og vonandi gengur það betur. Ég verð bara að harka af mér.“ Þótt hljómsveitin kalli sig Áhöfnina á Húna er það ekki alveg réttnefni. Á bátnum er átta manna áhöfn auk Fjólu sem sér um mats eldina ofan í hópinn um borð. „Svo eru þrír kvikmyndatöku- menn með í för, þannig að þetta er heljarinnar hópur,“ segir Lára. Fyrstu tónleikarnir voru á Húsa- vík í fyrrakvöld og gengu alveg frábærlega vel að sögn Láru. „Ég held að flestir Húsvíkingar hafi mætt og þetta tókst eins vel og hægt var að hugsa sér.“ Í kvöld verður bein útsending frá tónleikunum á Reyðarfirði og síðan heldur Áhöfnin áfram hring- inn um landið og endar á Akureyri þann 20. júlí. fridrikab@frettabladid.is Lára Rúnars fl úði í land vegna sjóveiki Áhöfnin á Húna lagði upp í hringferðina um landið í fyrradag. Siglingin frá Akureyri til Húsavíkur gekk svo nærri einu konunni í bandinu að hún neitaði að fara aft ur um borð og fór landleiðina til Borgarfj arðar eystri. LANDKRABBAFJÖLSKYLDAN Fjölskyldan fagnar því að hafa fast land undir fótum á Borgarfirði eystri í gær. F ÍT O N / S ÍA „Íbúar Flateyrar eru svo ofsalega vinalegir og tóku okkur opnum örmum og okkur langaði að gefa eitthvað til baka,“ segir Sigurður Magnús- son, betur þekktur sem Siggi Bahama. Hann og tveir vinir hans smíðuðu frolfvöll og gáfu Flat- eyringum að gjöf. Siggi dvaldi fyrir vestan við tökur á kvik- myndinni París norðursins og smíðaði frolf- völlinn ásamt tveimur öðrum úr tökuliðinu. „Við vorum þrír í þessu: ég, Óli tröllabarn og Geiri glæsimenni. Við smíðuðum þetta úr rusli sem við fundum á haugunum á Ísafirði þannig að þetta kostaði ekki mikið, framleiðendur myndar- innar lögðu svo út fyrir því sem upp á vantaði.“ Frolfvöllurinn stendur við snjóflóðavarnagarð bæjarins og var opnaður við hátíðlega athöfn daginn áður en tökuliðið hélt til síns heima. „Það var bæjarhátíð daginn áður en við fórum og þá var klippt á borðann og svæðið opnað. Mér skilst að einn íbúanna ætli svo að taka sig til og leigja út diska til ferðamanna.“ Siggi hóf sjálfur að spila íþróttina stuttu eftir að hann flutti í íbúð við Klambratún, en þar er vinsæll frolfvöllur. Hann segir íþróttina stór- skemmtilega og mjög ávanabindandi. „Þetta er rosalega skemmtileg íþrótt og reglurnar eru alveg eins og í golfi, nema í frolfi er maður með frisbí í stað kylfu. Sá sem klárar hringinn á sem fæstum köstum sigrar,“ segir hann að lokum. - sm Gáfu Flateyringum frolfvöll Sigurður Magnússon og félagar smíðuðu frolfvöll úr rusli og gáfu Flateyringum. VIÐ VINNU Óli trölla- barn, Geiri glæsimenni og Siggi Bahama við störf sín. MYND/SPESSI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.