Fréttablaðið - 22.07.2013, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 22.07.2013, Blaðsíða 4
22. júlí 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 4 STJÓRNSÝSLA Velferðarráðuneytið hefur hafnað ósk Hafnarfjarðarbæjar um að afhenda bænum endurgjaldslaust 85 pró- senta eignarhluti ríkisins í St. Jósefsspítala og Suðurgötu 44. Fasteignamat húsanna er samtals 426 milljónir. St. Jósefspítali hefur staðið auður síðan sjúkrahússtarfsemi var lögð þar af fyrir um einu og hálfu ári. Gunnar Axel Axelsson, formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar, segir Guðbjart Hannesson, þáverandi velferðar- ráðherra, hafa nefnt að nýta bæri fasteign- irnar fyrir nærsamfélagið í Hafnar firði. „Við lögðum fyrir ráðuneytið ýmsar hugmyndir um menningastarfsemi sem gæti verið í húsinu. Forsendan var og er að ríkið afsalaði sér sínum hluta líkt og það hefur gert á Ísafirði og víðar við svipaðar aðstæður,“ segir Gunnar, sem kveður Hafnar fjörð ekki í sérstakri þörf fyrir aukið húsnæði. „Við fögnum við því að fá skýrt svar en nú er boltinn hjá ríkinu sem þarf að svara því hvort húsið verði sett í almenna sölu eða hvort ríkið hyggst nýta það á einhvern hátt. Það gengur ekki að þessar byggingar standi auðar áfram og grotni niður,“ segir formaður bæjarráðs. - gar Ríkið hafnar ósk Hafnfirðinga um að gefa eftir hlut í 426 milljóna fasteignum: Bærinn fær ekki St. Jósefsspítala gefins ST. JÓSEFS- SPÍTALI Unnið að brottflutningi Landspítalans úr Hafnarfirði í nóvember 2011. Bygging- arnar standa enn auðar. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR NÝJA-SJÁLAND Harður jarð- skjálfti skók Nýja-Sjáland í gærmorgun en jarðskjálftinn var af stærðargráðunni 6,9 á Richter. Upptökin voru um 57 kílómetra suðvestur af höfuð- borginni Wellington. Engar fregnir hafa borist af manntjóni en rafmagn fór víða af í borginni og fólk sat fast í lyftum. Eins varð töluvert tjón á byggingum. „Það var eins og húsið ætlaði sér að rísa á fætur og labba niður götuna,“ sagði útvarps- maðurinn Tony Vale. - ka Jarðskjálfti í Nýja-Sjálandi: Töluvert tjón í hörðum skjálfta MENNTAMÁL Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra sagði í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins í vikunni að sameining háskóla á Íslandi væri í undirbúningi í menntamála- ráðuneytinu. Illugi sagðist þeirrar skoðun- ar að of margir háskólar væru hér á landi og að stefnt væri að sameiningu háskóla á þessu kjörtímabili. Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, tekur undir orð Illuga og telur að sameining Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík gæti skilað faglegum og fjárhagslegum ávinningi. Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, segir hins vegar sameininguna órök- rétta og að honum þyki sam- keppni milli háskóla afar mikil- væg. - le Sameining í undirbúningi: Illugi telur há- skóla of marga ILLUGI GUNNARSSON SAMFÉLAGSMÁL Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi kalla eftir því að starfsmanna- mál á kampavínsklúbbum verði skoðuð sérstaklega af lögreglu. Hættulegt sé að vanmeta starf- semina sem þar fari fram. Anna Katar- zyna Wozniczka er varaformaður samtakanna en hún segir að miðað við frétta- flutning síðustu daga af stöðun- um tveimur sé augljóslega ekki allt með felldu. Hún segir jafnframt að það eigi að tala upphátt um starfsemi sem þessa. „Okkur finnst þó mikilvægt að bíða með að dæma eða ýta undir fordóma þangað til lögreglan og ábyrgar stofnanir rannsaka málið með aðstoð túlka,“ segir Anna. Anna segir einnig að kampa- vínsklúbbar þurfi að vera undir stöðugu eftirliti lögreglu. Mikil- vægt sé að skoða reglulega að starfsmenn sem þar vinna séu með kennitölu og skattkort og einnig verður að huga að föstum ráðningarsamningum með starfs- lýsingu. „Starfsmenn eiga að vita um réttindi sín og hvort það sem þeir gera hér á landi samræmist lögum,“ segir hún. Anna bendir á að konur sem hingað koma frá Austur-Evrópu þurfi ekki sérstakt atvinnuleyfi. Þær megi dvelja og starfa hér á landi í allt að þrjá mánuði. „Það gerir þær mun ósýnilegri. Því er mikilvægt að Ísland vanmeti ekki þetta mál og læri frekar af reynslu nágrannalandanna,“ segir Anna. „Sérstaklega með tilliti til þess að konurnar sem þarna vinna eru nýkomnar til landsins og búa allar saman í lítilli íbúð. Það verður að ganga úr skugga um að þær séu hér á réttum forsendum,“ segir hún. Anna segist jafnframt sammála orðum Bjarkar Vilhelmsdóttur, borgarfulltrúa Samfylkingarinn- ar, um að starfsemi sem þessi sé varasöm. „Er þetta eitthvað sem við viljum hér?“ segir Anna. Fyrir helgi stefndu eigendur kampavínsstaðanna VIP Club og Crystal borgarfulltrúanum Björk Vilhelmsdóttur og Steinunni Gyðu- og Guðjónsdóttur, forstöðu- konu vændisathvarfsins, fyrir ummæli um að það virtist sem vændi og mansal væri stundað í tengslum við staðina. Konurnar þurfa að biðjast afsökunar á ummælunum og greiða miskabætur í dag, ella verður höfðað meiðyrðamál gegn þeim. maria@frettabladid.is Vilja athugun á starfsmanna- málum Kampavínsklúbbanna Samtök kvenna af erlendum uppruna vilja úttekt á starfsmannamálum kampavínsklúbba. Þær segja mikilvægt að vanmeta ekki starfsemi sem þessa. Ganga verði úr skugga um að konurnar séu hér á réttum forsendum. ANNA WOZNICZKA Í kvöldfréttum Stöðvar 2 sögðu tvær breskar starfs- stúlkur á kampavínsklúbbnum VIP í Austurstræti að þær ætluðu ekki sitja undir því að vera kallaðar vændiskonur og að orðrómur um að mansal sé stundað í tengslum við staðinn sé ekki sannur. Konurnar vilja opinbera afsökunarbeiðni frá þeim sem hafa viðhaft slík ummæli og hafa ráðið sér lögfræðing. „Við vinnum við að skemmta. Við tölum við karlmenn, látum þeim líða þægilega, dönsum fyrir þá og syngjum. Eða bara það sem gerir þá ánægða. Þetta snýst um félagsskap okkar, það er allt og sumt. Félagsskapur, dans, kampa- vínsglas eða -flaska,“ sögðu konurnar tvær. Dansa fyrir karlmenn í bakherberginu 7.715 heimili fengu fjár-hagsaðstoð sveitar- félaga árið 2011. Árið áður fengu 6.910 heimili slíka aðstoð. Fjölgun á milli ára nemur 805 heimilum. Fjölmennustu hóparnir sem fengu fjárhagsaðstoð árið 2011 voru einstæðir barnlausir karlar og einstæðar konur með börn. VIP CLUB Í AUSTUR- STRÆTI Eigandi VIP Club í Austur stræti hefur hótað að höfða meiðyrða- mál vegna ummæla um staðinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ DANÍEL AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sigurður Helgi Grímsson sigurdurhg@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ Veðurspá Miðvikudagur Fremur hægur vindur, hvassara syðst. BIRTIR TIL Á V-VERÐU LANDINU á morgun, áfram einnig bjart NA-lands en dálítil væta syðst. Hlýjast verður inn til landsins vestan til á morgun, að 22 stigum. Bjart víðast hvar einnig á miðvikudag en dregur fyrir SA-til síðdegis. 13° 4 m/s 13° 2 m/s 14° 3 m/s 12° 2 m/s Á morgun Fremur hægur vindur, hvassara syðst. Gildistími korta er um hádegi 17° 14° 14° 18° 18° Alicante Basel Berlín 30° 31° 30° Billund Frankfurt Friedrichshafen 28° 32° 30° Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas 25° 25° 35° London Mallorca New York 32° 34° 29° Orlando Ósló París 32° 23° 35° San Francisco Stokkhólmur 18° 19° 18° 2 m/s 15° 3 m/s 20° 2 m/s 14° 4 m/s 17° 3 m/s 16° 2 m/s 13° 4 m/s 17° 14° 14° 19° 18° Snjólaug Ólafsdóttir veðurfréttamaður VISTVÆNN RUSLAPOKI 100% niðurbrjótanlegur, úr maíssterkju, 10 lítra, 25 stk. í pakka. Verð 490 kr. MILD HÚÐ- OG HÁRSÁPA til daglegra nota. Lágt ph-gildi, aðeins 4,5. Verð 396 kr. PI PA R\ TB W A • SÍ A • 13 17 72 www.rekstrarland.is VISTVÆNAR VÖRUR Í Rekstrarlandi finnurðu mikið úrval af vistvænum og vottuðum vörum. Skeifunni 11 | Sími 515 1100

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.