Fréttablaðið - 16.08.2013, Page 24
FRÉTTABLAÐIÐ Hártískan í myndum. Heilsa og æfingar. Ragna Lóa Stefánsdóttir. Skóhönnun. Menning og tíska. Helgarmaturinn og Spjörunum úr.
2 • LÍFIÐ 16. ÁGÚST 2013
HVERJIR
HVAR?
Umsjón blaðsins
Marín Manda Magnúsdóttir
marinmanda@frettabladid.is
Umsjón Lífsins á Vísir.is
Ellý Ármanns
elly@365.is
Útgáfufélag
365 miðlar ehf.
Forsíðumynd
Silla Pálsdóttir
Auglýsingar
Atli Bergmann
atlib@365.is
Hönnun
Silja Ástþórsdóttir
siljaa@frettabladid.is
Lífið
Skaftahlíð 24,
105 Reykjavík,
sími 512 5000
www.visir.is/lifid
Stílistar
Marín Manda
Silla Pálsdóttir
Lífi ð
Hamingja, fólk og
annað frábært
Á frumsýningu 2 Guns, með töff-
urunum Mark Wahlberg og
Denzel Washington í aðalhlut-
verki, í Smárabíói á þriðju-
daginn síðastliðinn var margt
um manninn. Þar mátti sjá parið
Skúla Mogensen og Friðriku
Hjördísi Geirsdóttur,
betur þekkta sem Rikku,
í góðu stuði. Þá tóku
glöggir gestir eftir því
að Lilja Pálmadóttir,
eiginkona Baltasars, lék
lítið hlutverk í myndinni.
Á frumsýningunni voru einnig Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti Íslands, Kjartan
Guðjónsson leikari, Ágústa Johnson lík-
amsræktarfrömuður, Unnsteinn Manuel
Stefánsson úr hljómsveitinni Retro Stefson
og Ingibjörg Pálmadóttir, mágkona
leikstjórans Baltasars Kormáks.
Vinsælu blúndu
aðhaldstopparnir
komnir aftur.
Blúnda að framan
og aftan.
Litir: Svart og húðlitur
Stærðir: S–XXL
Verð aðeins
3.450 kr.
Grensásvegur 16 - sími 553 7300 - Opið mán-fös 14–19. Laugd. 12–17
SOHO / MARKET
Á FACEBOOK
Grensásvegur 8 - sími 553 7300 - Opið mán-fi 12-18 — fös. 12-19 — lau. 12-17
.990 kr.
Save the Children á Íslandi
F
yrir tveimur árum tók ég Evrópukennara-
réttindin hjá Aveda og gat því farið að kenna
alls staðar í Evrópu. Ég hef eflaust farið á
tuttugu námskeið og hef lengi haft þessa
löngun til að kenna öðrum og miðla þekk-
ingu. Svo langaði mig að vera eitthvað meira en ein-
göngu hárgreiðslukona,“ segir Iðunn Aðalsteins-
dóttir, sem hefur sérhæft sig sem litafræðingur hjá
Aveda á Íslandi. Iðunn er nýkomin úr vinnuferð frá
Berlín, þar sem hún hélt námskeið, og er ferðinni
næst heitið til Mílanó. „Ég hef ferðast svo mikið í
kringum þetta starf og kynnst ógrynni af spennandi
fólki í gegnum Aveda.“
Hárið í vetur
Litirnir hafa fengið ótal verðlaun erlendis en þeir
eru 96% náttúrulegir og allt er meira og minna
byggt upp á lífrænum blómum og jurtum, jojoba-
olíu og lavender. Iðunn byrjaði að læra hárgreiðslu
á Unique hár og kynntist Aveda-merkinu þar. Hún
segir að það hafi heillað hana hve gott starf Aveda
hefur unnið á alþjóðavettvangi fyrir þjáða en fyrir-
tækið hafi tekið virkan þátt í að safna fyrir vatns-
brunnum í þorpum á Indlandi, Madagaskar og
Afríku. „Það eru aldeilis ekki allir sem hafa sama
aðgengi að vatni og við og því hefur orðið ákveðin
vitundarvakning hvað varðar merki sem styrkja
lífsgæði fólks með ýmsu sjálfboðastarfi og áheita-
söfnunum,“ segir Iðunn og heldur áfram: „Nýja
hárlínan frá Aveda er hrá og náttúruleg. Heil litir
eru að taka yfir og eru litirnir mjög neutral eða
með fallegum tónum af bleiku eða brúnu. Það eru
einnig allar síddir vinsælar núna nema kannski
mjög sítt hár,“ segir Iðunn að lokum.
HÁR LÁTLAUSIR LITIR
VINSÆLIR Í VETUR
Iðunn Aðalsteinsdóttir, litasérfræðingur og hárgreiðslukona, kynnir
haust- og vetrartískuna hjá Aveda, sem einkennist af náttúrlegum jarðlitum.
Iðunn Aðalsteinsdóttir litasérfræðingur vinnur hjá Unique hár
og spa en hún segist hafa í nógu að snúast enda sé hún á
ferð og flugi reglulega að kenna litun úti í heimi.
Einfaldleikinn
er allsráðandi í
hártískunni hjá
Aveda í vetur
en heillitir eru
að koma sterkt
inn og eru
litirnir fallega
náttúrulegir.