Fréttablaðið - 16.08.2013, Page 30
KYNNING − AUGLÝSINGLíkamsrækt FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 20132
Svínakjöt getur verið magurt og gott kjöt. Hægt er að útbúa ljúffenga
máltíð á stuttum tíma þegar komið er heim úr ræktinni. Hægt er að
nota svínafilét, úrbeinaðar kótelettur eða grísahnakka, allt eftir smekk.
Uppskriftin er miðuð
við fjóra
600 g svínakjöt í sneiðum
1 msk. grillolía til að pensla kjötið
½ tsk. salt
¼ tsk. pipar
Ananas-salsa
1 heill, ferskur ananas
1 msk. olía til að pensla
1 rauður eldpipar
2 msk. rifin engiferrót
2 msk. ferskt kóríander, smátt
saxað
½ dl sólkjarnaolía
1 límóna
Salt og pipar
Skrælið ananasinn og deilið
honum í fjóra langa hluta.
Fjarlægið kjarnann í miðj-
unni. Penslið stykkin og grill-
ið í um það bil fjórar mínútur.
Skerið síðan í bita.
Fræhreinsið eldpipar og sker-
ið mjög smátt. Blandið honum saman við engifer, kóríander-límónu-
safa og olíu. Bætið ananas saman við og bragðbætið með salti og pipar.
Penslið kjötið með grillolíu, kryddið með salti og pipar og grillið á heitu
grilli í um það bil tvær mínútur á hvorri hlið. Lækkið hitann og grillið
áfram í 3-4 mínútur.
Berið kjötið fram með fersku ananas-salsa og komin er ljúffeng mál-
tíð. Einnig er gott að hafa sætkartöflumús og spergilkál með ef fólk vill
hafa meira við.
Ljúffengt svínakjöt með
ananas-salsaÞað sést hverjir hugsa vel um kroppinn sinn og allir vilja líta vel út. Mörgum reynist hins vegar erfitt að standa upp
úr sófanum og koma sér í ræktina. Hér eru tíu heilræði sem
hjálpa til:
■ Byrjaðu hægt. Taktu tíu mínútna æfingu eða göngutúr og
áður en þú veist af hefur æfingatíminn lengst og löngunin
til að æfa með.
■ Fáðu skemmtilegan vin til að stunda líkamsræktina með
þér. Þá er sennilegra að þú mætir og félagsskapurinn hefur
hvetjandi áhrif.
■ Settu æfingaföt í töskuna að morgni og taktu hana með að
heiman. Þá er líklegra að þér finnist þú þurfa að nota þau í
ræktinni.
■ Hafðu hugann við annað en átökin í líkamsræktinni til að
byrja með. Horfðu á sjónvarp, spjallaðu við vin eða hlust-
aðu á tónlist á meðan þú hreyfir þig.
■ Uppörvandi tónlist er heillavænlegust í líkamsræktinni en
einnig til að koma sér í gírinn áður en farið er á æfingu.
■ Vertu í núinu og hugsaðu einn dag í einu. Áður en þú veist af
er æfingin búin.
■ Fáðu þér piparmintu. Rannsóknir sýna að angan af mintu
eykur styrk, hraða og snerpu.
■ Ekki hafa samviskubit yfir því að mæta ekki reglulega í rækt-
ina. Það hefur neikvæð áhrif á hugann. Mun betri heilaleik-
fimi er að sjá sig fyrir sér fullan vellíðunar í ræktinni.
■ Settu þér raunhæf markmið og verðlaunaðu góðan árangur.
Nennirðu ekki í ræktina?
Góður félagsskapur getur haft úrslitaáhrif þegar kemur
að því að mæta í ræktina.
Nitric Oxide
30% meira blóðflæði
20% meira orka og úthald
Nóbelsverðlaun 1998 - Sameind ársins 1992
SUPERBEETSTM
Fyrir íþróttarfólk
Rauðrófukristall sem getur bætt árangur íþróttafólks allt að 20% Blandað í
150 ml af vatni - Drukkið 30 mín. fyrir æfingar. Örvar Nitric Oxide framleiðslu strax.
Meiri vöðvasnerpa, orka, þrek, úthald og súrefnisupptaka. Betra blóðflæði
allt að 30% æðaútvíkkun
BEETELITE er lífrænt og því fullkomlega öruggt. Örvar áhrifamátt annarra
fæðubótarefna ef drukkið er samhliða inntöku þeirra.
Fyrir almenning
Eftir fertugt framleiðir líkaminn mun minna Nitric Oxide
SUPERBEETS eykur framleiðslu líkamans á Nitric Oxide strax
Betra blóðflæði - allt að 30% æðaútvíkkun
Stjórnun blóðþrýstings - Bætir öndun og súrefnisupptöku
sem leiðir til meiri orku, þreks, úthalds og fitubrennslu
Örvar áhrifamátt annarra fæðubótarefna ef drukkið er samhliða inntöku þeirra
1 teskeið daglega blandað í 150 ml af vatni
Fyrir
BeetElite (1 skot)
Eftir
29 mínútur:
Hitamynd: Sýnir aukinn hita vegna meira blóðflæðis eftir BEETELITE drykk
Sónarmynd: Slagæð í handlegg fyrir og eftir inntöku BEETELITE.
Eftir inntöku 0,7 cmFyrir inntöku 0,5 cm
Umboð: Vitex ehf
TENNIS
er skemmtileg hreyfing
Nú er rétti tíminn til að
panta fastan tíma í tennis.
Eigum nokkra tíma lausa.
Skemmtilegu byrjendanámskeiðin
fyrir fullorðna eru að hefjast.
Skráning og upplýsingar í síma 564 4030 eða á tennishollin.is
Það er sama hvað er að gerast - við seljum miðana.
LANGAR ÞIG
Á VÖLLINN?
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA