Fréttablaðið - 16.08.2013, Síða 31
KYNNING − AUGLÝSING Líkamsrækt16. ÁGÚST 2013 FÖSTUDAGUR 3
Sigríður Hjördís Jörunds-dóttir sagnfræðingur hafði lengi reynt að breyta lífsstíl
sínum en illa gengið. Hún fór sí-
fellt í sama farið aftur og þolið var
skammlíft. Skyndilausnir dugðu
skammt.
Fann loksins lausn
„Ég var alltaf að reyna að bæta
mig. Fyrir nokkrum árum léttist
ég til dæmis um rúmlega fjörutíu
kíló á danska kúrnum en þau hafa
verið að læðast smátt og smátt
aftur að mér. Maður virðist alltaf
detta í sama farið,“ segir hún en
bætir við að nú hafi hún loksins
fundið lausn sem hentar henni.
„Ég byrjaði í heilsurækt í Heilsu-
borg í janúar og þá ákvað ég að
byrja að einbeita mér að reglu-
legri hreyfingu. Svo var það orðið
að rútínu í sumar og þá ákvað ég
að fara að fylgja stigakerfinu sem
þau mæla með í Heilsuborg.“
Stigakerfið sem Sigríður talar
um byggist á hitaeiningaþörf
hvers og eins. „Bak við hvert stig
eru 50 hitaeiningar. Í líkams-
greiningu Heilsuborgar, sem
kallast heilsumat, er reiknað út
hversu margar hitaeiningar þú
þarft til að léttast um hálft kíló
á viku. Þetta er reiknað út frá
ýmsum þáttum, til dæmis aldri
og hæð,“ útskýrir Sigríður. „Þá fer
maður til hjúkrunarfræðings sem
fer vel yfir stöðu mála og reiknar
út hitaeiningaþörf manns.“
Sigríður segir leiðbeiningar
hjúkrunarfræðingsins hafa gert
gæfumuninn, því það var ekki
fyrr en hún fór að fylgja þeim í
einu og öllu að hún fór að finna
árangur erfiðisins.
Skuldbinding í ár
Sigríður segir að líf sitt hafi breyst
til muna eftir að hún hóf æfingar
hjá Heilsuborg. „Þetta er allt
annað líf. Bara að fara úr því að
sitja í sófanum alla daga yfir í að
hreyfa sig að lágmarki þrisvar í
viku munar heilmiklu. Maður
verður miklu sprækari.“
Hún mætir þrisvar sinnum
í viku í fasta tíma sem kallast
Heilsulausnir. „Það er skuldbind-
ing í heilt ár. Mér finnst það raun-
ar vera eina vitið ef maður ætlar
að taka þetta föstum tökum. Þessi
sex eða átta vikna námskeið sem
heita eitthvað eins og „í kjólinn
fyrir jólin“, það eru einfaldlega
skyndilausnir og maður fellur
fljótlega í sama far.“
Sett upp sem skóli
Eftirfylgnina sem boðið er upp
á í Heilsulausnum segir Sigríður
vera afar hvetjandi. „Námskeiðið
er í rauninni sett upp sem skóli.
Það eru fjórar annir í heilu ári
og í lok hverrar annar hittum við
hjúkrunarfræðing sem fer yfir
stöðu mála. Auk þess hittum við
markþjálfa sem ræðir við okkur
um sýn og áætlanir okkar. Það
er persónulegur fundur þar sem
hann skoðar stöðuna út frá lífi
hvers og eins og hvað best sé að
gera til þess að breyta henni.“
Ná mskeiðið er lok að og
Sigríður segir að það sé mikil
hvatning fólgin í því að vera hluti
af slíkum hóp. „Þetta eru einstak-
lingar sem allir eru í svipuðum
sporum og við hittumst þrisvar í
viku í klukkutíma í senn. Stuðn-
ingurinn frá hópnum er mikill
og við erum farin að tala um að
halda áfram að mæta þrisvar í
viku eftir að námskeiðinu lýkur,“
segir hún.
Daglegt líf
Heilsulausnir eru ekki hugsaðar
fyrir ákveðinn aldur heldur fólk
sem vill breyta lífsvenjum sínum.
„Ef maður ætlar að gera þetta,
þá er þetta verkefni sem maður
verður að taka inn í sitt dag-
lega líf,“ segir Sigríður. „Líf mitt
hefur breyst til muna. Sem dæmi
finnst mér gaman að stússast í
garðinum. Í fyrrasumar eyddi ég
heilum degi í garðinum og um
kvöldið gat ég varla gengið. Þetta
var áður en ég byrjaði í Heilsu-
borg. Þegar ég endurtók svo leik-
inn núna um daginn fór ég út að
ganga um kvöldið.“
Sigríður bætir við að hún hafi
átt við heilsufarsvandamál að
stríða á síðasta ári en það sé nú
liðin tíð. Auk þess sé hún orku-
meiri. „Síðasta haust fór ég yfir-
leitt heim eftir vinnu, lagðist upp
í sófa og gat ekki meir. Það er
undantekning ef það gerist í dag.
Þetta er allt annað líf,“ segir hún
að lokum og brosir.
Stuðningurinn
frá hópnum er
mikill og við erum farin
að tala um að halda
áfram að mæta þrisvar
í viku eftir að
nám skeiðinu lýkur.
Heilsulausnir breyttu lífi mínu
Sigríður Hjördís Jörundsdóttir hafði lengi reynt að breyta lífsstíl sínum en illa gekk. Skyndilausnir dugðu skammt en í Heilsuborg
fann hún loks námskeið sem hentaði henni. Nú er lífið léttara og hreyfing er orðin hluti af daglegu lífi Sigríðar.
Ert þú
Heilsuborg
Ert þú óviss með næstu skref?
Pantaðu tíma í Heilsumat og hjúkrunar-
fræðingur fer yfir stöðuna á þinni heilsu
og aðstoðar með næstu skref.
Kynningarfundur
fimmtudaginn 22. ágúst kl. 17:00
– Allir velkomnir