Fréttablaðið - 16.08.2013, Síða 32
KYNNING − AUGLÝSINGLíkamsrækt FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 20134
Actic heldur úti tíu líkamsræktar-stöðvum á landinu og eru allar tengdar sundlaugum. Stærstu stöðvarnar eru
við Sundlaug Kópavogs og Salalaug. Þá eru
stöðvar við Suðurbæjarlaug í Hafnarfirði, við
Álftaneslaug, í Vogum á Vatnsleysuströnd,
Grindavík, á Selfossi, Hellu, í Vík og Vest-
mannaeyjum. Nýr eigandi Actic, Kjartan Már
Hallkelsson, segir fyrirtækið ávallt bjóða árs-
kort á góðu verði.
Gott verð og úrval hóptíma
„Við bjóðum árskortið í Kópavogi á sérstöku
tilboði núna, á 33.900 krónur. Kortið gildir í
sund og í stöðina. Inni í því er tími með þjálf-
ara sem kennir á tækin og frítt í alla hóptíma,“
segir Kjartan Már.
Við byrjuðum með hóptíma í Sundlaug
Kópavogs í fyrra sem hafa virkilega slegið í
gegn. Meðal annars bjóðum við lokaða tíma
fyrir konur sem heita Flottar konur. Þeir hafa
notið mikilla vinsælda og nú bjóðum við upp
á nýjung þar, Flottar konur 4x10, þar sem
áhersla er lögð á styrk og þol samtímis. Jóga og
power-jógatímar eru einnig nýjung hjá okkur
og þá erum við með stöðvaþjálfun og spinn-
ingtíma sem við kennum í sérsal, en spinning
nýtur alltaf mikilla vinsælda,“ segir Kjartan.
„Við bjóðum einnig upp á morguntíma fyrir
byrjendur og fyrir eldra fólk, hádegistíma og
tíma sem henta þeim sem eru slæmir í baki,“
segir Kjartan.
Hóptímar Actic eru í Sundlaug Kópavogs
og í Suðurlaug í Hafnarfirði. Athugið að verð
á kortum eru mismunandi eftir því hvaða stöð
um ræðir þar sem mismunandi þjónusta er í
boði á hverjum stað. Kortin gilda í sund í því
sveitarfélagi sem þau eru keypt í.
Ókeypis prufutími
Hægt er að koma í ókeypis prufutíma í allar
stöðvar Actic. Þá hringir viðkomandi á undan
sér og pantar tíma með þjálfara sem setur
saman æfingaprógramm og kennir á tækin í
sal. Eftir tímann getur viðkomandi farið frítt í
sund og ákveðið síðar hvort hann kaupir kort
í stöðinni.
„Hjá okkur eru alltaf faglærðir þjálfarar í
sal sem hægt er að leita til. Þeir setja saman
æfingaplan eftir markmiðum hvers og eins,
þá er hægt að fá ókeypis fitumælingu og ráð-
leggingar,“ segir Kjartan.
Nýir eigendur
Kjartan tók nýlega við rekstri Actic stöðv-
anna ásamt Guðrúnu Björk Benediktsdóttur
en þau hafa unnið um árabil hjá fyrirtækinu
og eru öllum hnútum kunnug. Kjartan segir
viðskiptavini áfram geta gengið að þjónustu
stöðvanna vísri. Engar breytingar verði á fyrir-
tækinu. „Actic verður rekið með sama sniði og
á sömu kennitölu áfram en nýtt nafn mun þó
líta dagsins ljós um áramótin,“ segir Kjartan.
Nánari upplýsingar er að finna á www.
nautilus.is.
Fjölbreytt úrval hóptíma Actic
Nýr eigandi Actic líkamsræktarstöðva segir fyrirtækið ávallt bjóða árskort á góðu verði. Actic starfrækir líkamsræktarstöðvar við
sundlaugar víða um land og í tveimur þeirra er boðið upp á fjölbreytt úrval hóptíma.
Kjartan Már Hallkelsson er nýr eigandi Actic líkamsræktarstöðva ásamt Guðrúnu Björk Benediktsdóttur. Hann leggur áherslu á árskort á góðu verði og úrval hóptíma.
MYND/STEFÁN
Ég hef alltaf elskað fimleika og hef aldrei hætt. Æfingarnar eru orðnar partur af minni
daglegu rútínu og ég verð alveg
ómöguleg ef ég get ekki hreyft
mig, ég verð að fá útrás,“ segir
Glódís.
Fyrir ári byrjaði hún að æfa
crossfit samhliða fim leikunum.
„Crossfit hjálpar fimleikunum
mjög mikið og öfugt. Það eru
margar fimleikaæfingar í cross-
fit og það hjálpar mér að verða
sterkari fyrir fimleikana,“ út-
skýrir Glódís. Allt í allt fer Glódís
á níu æfingar á viku, sex fimleika-
æfingar og þrjár crossfit-æfingar.
Fær líka frí
„Ég fæ samt frí á sunnudög-
um sem ég er mjög þakklát fyrir.
Það er nauðsynlegt að fá að vera
í smá slökun einu sinni í viku,“
segir Glódís. Það sem skiptir þó
mestu fyrir hana er að allar þess-
ar æfingar láta henni líða vel og
líta vel út.
Það krefst mikillar orku að
mæta á æfingar sex daga vikunnar
og stundum tvær æfingar á dag.
„Ég reyni að borða eins hollt og ég
get enda líður mér þá best og það
er besta orkan fyrir æfingar. Ef mig
langar hins vegar í skyndibita eða
óhollan mat þá neita ég mér ekki
um hann. Ég elda mikið heima og
mér finnst líka gott að fara á Serr-
ano,“ segir Glódís.
Margt að gerast
Stífar æfingar fyrir Norðurlanda-
mótið í nóvember eru hafnar hjá
Gerplustelpum. Mótið í ár verður
haldið í Óðinsvéum í Danmörku.
„Við ætlum að vinna þetta
mót. Við höfum unnið það áður
og tvisvar sinnum orðið Evrópu-
meistarar svo að þetta ætti að tak-
ast. Við byrjum alltaf að æfa okkur
mjög snemma enda er árangurinn
í takti við það,“ segir Glódís.
„Æfingarnar eru mislangar
og við erum að æfa mismunandi
hluti. Á sumum æfingum erum
við að æfa dansinn og á öðrum
erum við að gera aðrar fimleika-
æfingar eins og stökk og f leira.
Það er alltaf gaman á æfingum
en það kemur stundum fyrir
að ég er alveg búin á því og það
er erfitt að koma sér á æfingu,“
segir Glódís.
Flottir dansar
Glódís er í hópfimleikum en það
er liðakeppni þar sem keppt er
í þremur áhöldum eða á gólfi,
dýnu og trampólíni. Gólfæfing-
arnar útskýrast sem frjáls út-
færsla án áhalda við tónlist að
eigin vali. Gerplu stelpurnar
hafa ávallt verið með f lottustu
dansana á gólfinu sem hafa vakið
gríðarlega athygli, enda eru þeir
þaulæfðir. Á dýnu og trampólíni
hafa stelpurnar einnig skarað
fram úr. Í sumar var Glódís að
þjálfa unga fimleikakrakka á
aldrinum níu til þrettán ára. Hún
er nýkomin heim frá vikudvöl í
Barcelona með kærastanum og
fyrr í sumar fór hún í útskriftar-
ferð, en hún er nýstúdent úr
Verzlunarskóla Íslands. Í haust
ætlar Glódís að hefja nám í líf-
efna- og sameindalíffræði við
Háskóla Íslands.
Æfingin orðin að daglegri rútínu
Glódís Guðgeirsdóttir hefur æft fimleika í 15 ár og er í dag tvöfaldur Evrópumeistari og Norðurlandameistari með fimleikafélaginu
Gerplu. Stífar æfingar eru hafnar fyrir Norðurlandamótið sem verður í Danmörku í nóvember.
Glódís æfir níu sinnum í viku en hún fær þó frí á sunnudögum. MYND/STEFÁN
Gerpla keppti til sigurs á Evrópumótinu á
síðasta ári.
Glódís að dansa á Evrópumótinu í fyrra
sem stelpurnar unnu.