Fréttablaðið - 16.08.2013, Page 34
ÓMISSANDI
Í VIKUNNI
2 FÖSTUDAGUR 16. ágúst 2013
MASTERCHEF USA
Fimmtudag
Kl. 20.00
BARA GRÍN
Föstudag
Kl. 20.15
THE OTHER END OF THE
LINE
Laugardag
Kl. 20.30
THE KILLING
Sunnudag
Kl. 21.45
THE NEWSROOM
Mánudag
Kl. 21.25
ORANGE IS THE NEW
BLACK
Þriðjudag
Kl. 21.10
„Það er búið að vera ótrúlega
skemmtilegt að taka upp þættina
og mikill stemmari, hlátur og
vitleysisgangur meðal keppenda.
Þeir hafa skemmt sér rosalega
vel og sagt margar óborgan legar
sögur,“ segir Siggi Hlö sem nú
stendur í ströngu við tökur á sjón-
varpsþáttunum „Veistu hver ég
var?“.
„Ég losa aðeins um málbeinið á
fólki áður en keppni hefst og í lok
þáttarins fæ ég alla út á gólfið í
diskódans. Þetta minnir því á
Hollywood í gamla daga, með
plötusnúð í leikmyndinni nema
við erum ekki með ljósagólf,“
segir Siggi í banastuði á dans-
gólfinu.
Hann segir þáttinn upphaflega
hafa átt að vera hálftíma að lengd
en að þátturinn endi í 40 mínútum
því þrautin þyngri sé að skera
niður stórskemmtilegt efni.
„Upptökurnar gefa góð fyrirheit
og ég vona að þjóðin taki þáttunum
fagnandi. Þeir sem eru af diskó-
og eitískynslóðinni eiga eftir að
hverfa aftur í tímann og þættirnir
verða aldeilis fjör eftir góða steik
og fíling á laugardagskvöldi.“
Siggi fær til sín þekkta gæja og
píur frá diskó- og eitístímabilinu
og tekur fram að gestirnir beri
aldurinn vel.
„Það sér ekki á þessu liði. Ein-
hverjir hafa haft smá komplexa
og víst erum við ekki öll með hár
lengur eða æðislega glans. Mér
hefur samt ekki reynst erfitt að
fá fólk í þáttinn þótt einn og einn
hafi afþakkað mjög pent og borið
við tímaleysi. Ég skil alveg hvað
það þýðir,“ segir Siggi og hlær
stríðnislega.
Sjálfur er Siggi af diskó- og
eitís kynslóðinni og segir að á
hátindi tímabilsins hefði hann
ekki trúað því að eiga eftir að vera
með sjónvarpsþátt um þessa sömu
kynslóð í stuði árið 2013.
„Í þá daga fannst manni fólk um
fertugt vera gamalmenni en nú er
þetta bara ungt lið. Mér finnst 40+
vera hið nýja 20+ og miklu meiri
grallaraskapur og lífsgleði í fólk-
inu nú en þá. Það einkennir þessa
kynslóð að okkur fannst diskó og
eitís alveg svakalega kúl og töff en
þegar grannt er skoðað var þetta
ekkert sérstakt. Tímabilið mark-
aði okkur þó mikið og í dag er það
kúl eins og sést á tískusveiflum
sem bera með sér diskó og eitís,“
segir Siggi.
Þegar fyrsti þátturinn fer í
loftið verður Siggi að störfum sem
plötusnúður í brúðkaupi en ætlar
þó að að kíkja á sjálfan sig í sjón-
varpinu og fá sér einn kaldan með.
„Þetta verður bara spennandi.
Mitt kikk er að skemmta fólki og
ég sé um vinnustaðagrínið í dag-
vinnunni líka. Ég tek þetta bara
að mér; þetta skemmtir sér ekki
sjálft,“ segir hann og skellihlær í
diskósnúningi.
ÞAÐ SÉR EKKI Á ÞESSU LIÐI
Það verður bara gaman að horfa á Stöð 2 næsta laugardagskvöld þegar sýndur verður
fyrsti þátturinn af Veistu hver ég var? með gleðigjafanum og diskóboltanum Sigga Hlö.
Logi Bergmann er í skýjunum yfi r þátt-
unum Broadchurch sem hófu göngu
sína á Stöð 2 síðastliðinn sunnudag.
„Þetta eru ótrúlega magnaðir þættir.
Fyrir það fyrsta er tónlistin alveg frá-
bær,“ segir hann en hinn rammíslenski
Ólafur Arnalds semur tónlistina í þátt-
unum. Loga fi nnst einnig mikið koma til
persónusköpunar þáttanna. „Karakter-
arnir grípa mann alveg. Ég var ekki
alveg viss um í hvað stefndi eftir fyrsta
þátt, en svo var þetta algjör negla. Það
er eitthvað við þessa karaktera sem
maður tengir svo vel við. Þetta er fólk
sem er breyskt. Það er vesen á því,“
segir hann og hlær.
Logi hrósar að lokum sérstaklega
sjónrænum þáttum, til dæmis umhverf-
inu og upptöku. „Það er greinilega mik-
ill metnaður lagður í þættina. Þeir eru
ótrúlega fl ottir, sérstaklega í HD.“
Þættirnir eru á dagskrá Stöðvar 2 á
sunnudagskvöldum klukkan 20.55.
MAGNAÐIR SAKAMÁLAÞÆTTIR
VEISTU HVER ÉG VAR?
KL. 19.50