Fréttablaðið - 16.08.2013, Síða 37
Á morgun hefst enski boltinn með leik
Liverpool og Stoke klukkan 11.35.
Leikurinn verður sýndur á Stöð 2 Sport
2. Leikirnir verða alls átta á laugardag-
inn og tveir á sunnudaginn. OZ-appið
getur komið sér vel þegar fótboltaleikir
eru annars vegar, sérstaklega þegar
margir leikir eru sýndir á stuttu tímabili.
Þegar enski boltinn er í gangi kemur
oftar en ekki fyrir að margir leikir séu
sýndir á sama tíma á Stöð 2 Sport 2, 3
og 4. Með OZ-appinu er hægt að safna
öllum leikjunum sem eru í gangi á sama
tíma og spóla fram og til baka. Engin
takmörk eru fyrir því hversu mörgum
leikjum eða þáttum er hægt að safna og
hægt er að horfa á þá hvar og hvenær
sem er.
Á mánudagskvöldum í vetur mun
Messan fara yfi r leiki helgarinnar. Þeir
Gummi Ben, Hjörvar Hafl iða og Bjarni
Guðjóns fjalla um hápunkta helgarinnar
en þættirnir hefjast að loknum mánu-
dagsleikjunum. Mikil spenna er fyrir
komandi tímabili enda margir búnir að
bíða í þrjá mánuði eftir komandi veislu.
OZ APPIÐ HENTAR VEL FYRIR ENSKA BOLTANN
ÓMISSANDI
Akureyringurinn Aron Einar Gunnarsson
mætir til leiks í ensku úrvalsdeildinni í
fyrsta sinn með Cardiff City.
Aron Einar var í lykilhlutverki hjá Car-
diff þegar liðið sigraði í B-deildinni með
glæsibrag á sl. tímabili og honum er ætlað
stórt hlutverk í úrvalsdeildinni í vetur.
Landsliðsfyrirliðinn hefur glímt við meiðsli
að undanförnu en spilaði æfi ngaleik um
sl. helgi og verður vonandi klár í slaginn
fyrir fyrstu umferðina.
Aron Einar hóf ferilinn með Þór á Akur-
eyri en þaðan lá leiðin til Hollands þar
sem hann spilaði með unglingaliði AZ
Alkmaar.
Sumarið 2008 var hann seldur til Co-
ventry City á Englandi og spilaði með lið-
inu í þrjú ár. Aron Einar skrifaði síðan undir
þriggja ára samning við Cardiff sumarið
2011 og hefur leikið 87 deildarleiki með
liðinu og skorað 13 mörk.
ARON EINAR Í
ÚRVALSDEILDINNI
Mikil tímamót urðu í rekstri 365 í gær þegar fyrirtækið
hóf að bjóða viðskiptavinum upp á hágæða internet
og heimasíma með enska boltanum til þeirra sem
kaupa Stöð 2 Sport 2 í 12 mánuði. Ari Edwald, for-
stjóri 365, segir þetta vera gríðarlega stórt skref fram
á við og lið í sjónvarpi framtíðarinnar. „Þetta er eitt
skrefi ð áfram í þróun okkar. Miðlun sjónvarpsefnis
er að færast út á netið og við erum að bjóða upp á
hágæðaþjónustu fyrir viðskiptavini.“
Að sögn Ara fer þjónustan fram í gegnum ljósnet og
ljósleiðara og er boðið upp á 50 MB upp í 100 MB á
sekúndu. „Það er því alveg ljóst að við erum að bjóða
upp á hágæða þjónustu og rökrétt að tengja fyrsta
skrefi ð við enska boltann þar sem unnendur hans
gera almennt miklar kröfur um myndgæði. Það er líka
mikil spenna fyrir enska boltanum núna og ánægja
með að Stöð 2 Sport geti sýnt alla 380 leikina í beinni
útsendingu, samanborið við einhverja 116 leiki hjá
Sky, sem hefur samt svipað áskriftarverð.“
Ari segir þróunina annars staðar vera með svipuðum
hætti, að fyrirtæki séu farin að bjóða upp á sjón-
varp og netþjónustu saman. „Við byggjum á svipuðu
módeli og Sky-sjónvarpsstöðin og teljum að sjónvarp
og útvarp framtíðarinnar verði á netinu. Við ætlum
okkar að vera í fararbroddi hérlendis á þessu sviði.“
Frekari spennandi nýjungar verða kynntar á næst-
unni að sögn Ara. „Þetta tilboð er bara tengt enska
boltanum. Við þurfum að meta viðbrögðin sem við
fáum við því og sjá hvað við önnum miklu. Einnig má
nefna að við bjóðum upp á fría áskrift í þrjá mánuði
á tonlist.is og aðild að Vildarklúbbi Stöðvar 2, sem
sparar fólki mikla peninga í sínu daglega neyslu-
mynstri. Fólk getur farið inn á www.365.is eða www.
stod2.is til að kynna sér þessa nýju þjónustu betur og
ganga frá pöntun.“
TÍMAMÓT HJÁ 365
Mikil
spenna er
fyrir enska
boltanum
sem hefst
á morgun.