Fréttablaðið - 16.08.2013, Blaðsíða 50
Lífi ð
FRÉTTABLAÐIÐ Spjörunum úr og helgarmaturinn.
HELGAR MATURINN BANANATERTA MEÐ KARAMELLUOSTAKREMI
Hvern faðmaðir þú síð-
ast? Dóttur mína Hönnu sem
er fjögurra ára.
En kysstir? Sveinbjörgu
vinkonu mína fyrir að vera
svona frábær og fyrir að
nenna að hanga með alveg
síðan við vorum fimm.
Hver kom þér síðast á
óvart og hvernig? Kom
sjálfri mér á óvart þegar ég
náði að drösla mér „næst-
um“ upp á topp á Hvanna-
dalshnúk í byrjun maí á
þessu ári. Í fyrra hafði ég
aldrei gengið á fjall en byrj-
aði áskorunina 52 fjöll árið
2013 í janúar.
Hvaða galla í eigin fari
ertu búin að umbera
allt of lengi? Ég á það til
að mikla hlutina fyrir mér og
geri þar af leiðandi mér og
öðrum lífið leitt. Þetta er eitt-
hvað sem ég er markvisst að
vinna í að láta af.
Ertu hörundsár? Já, mjög
svo. Ég er mikil tilfinninga-
vera en ég er sem betur fer
gædd þeim hæfileika að
vera mjög fljót að jafna mig.
Hvenær gerðirðu þig
síðast að fífli og hvern-
ig? Ég geri mig oft að fífli,
enda alræmdur klaufi. Að
detta í læki og polla, brjóta
og bramla, rúlla niður stiga
og þess háttar hefur verið
mín sérgrein síðan ég man
eftir mér. Þau eru svo mörg
atvikin að þetta rennur bara
saman í eitt.
Hringirðu stundum í
vælubílinn? Það er ekki í
boði! Bíta á jaxlinn og brosa
í gegnum tárin er vænlegra.
Tekurðu strætó? Nei, ég
geri það alltof sjaldan og
þá helst til skemmtunar fyrir
dóttur mína.
Hvað eyðirðu miklum
tíma á Facebook á
dag? Ég held úti Facebook-
síðum fyrirtækjanna minna
svo ég eyði mjög nauðsyn-
legum tíma þar og svo allt of
miklum óþarfa tíma.
Ferðu hjá þér þegar þú
hittir fræga eða heils-
arðu þeim? Ég er ekki
týpan til að hlaupa fræga
uppi. Brosi kannski frekar
ef ég næ augnsambandi
líkt og við flesta aðra. Enda
frægir ekkert öðruvísi en hver
annar.
Hvað ætlarðu alls ekki
að gera um helgina? Ég
ætla ekki að vera löt! Ekki
vera innan um fólk í vondu
skapi, ekki borða vondan
mat og ekki láta mér leiðast.
Ásta Sveinsdóttir
ALDUR: 32
STARF: Eigandi suZushi og
einn eigenda Roadhouse
Edda Karen Davíðsdóttir
starfar í Landsbankanum
og er viðskiptafræðinemi.
Hún hefur mikinn áhuga á
bakstri og deilir hér upp-
skrift sem hún fann í mat-
reiðslubók fyrir mörgum
árum. Kökuna segir hún
bragðast einstaklega vel en
uppskriftina hefur hún verið
að þróa áfram með árunum.
3 dl púðursykur
3 dl sykur
150 g mjúkt smjör
3 egg
9 dl hveiti
1 1/2 tsk. lyftiduft
4 dl mjólk
2 bananar
KREM
250 g mjúkt smjör
300 g rjómaostur
6 dl flórsykur
2 dl tilbúin karamellusósa
(fæst í Hagkaup)
Hrærið vel saman púður-
sykri, sykri og smjöri.
Bætið einu eggi í einu
saman við blönduna og
síðan hveiti og lyftidufti.
Stappið bananana og
blandið mjólkinni saman
við. Setjið bananablönd-
una saman við deigið.
Bakið í tveimur 20 cm
hringlaga formum við
160 gráður í 40-45 mín.
Þegar búið er að hræra
kreminu saman þann-
ig að það er ljóst
og létt er það kælt í
15-20 mín. Svo er
kremið sett fallega
á kökuna og
hún jafnvel
skreytt.
...SPJÖ
RU
N
U
M
Ú
R
BARA GRÍN
rifjar upp bestu gamanþætti Stöðvar 2 í sprenghlægilegum
og fjörugum nýjum þætti. Allt sem þú vissir ekki um Fóstbræður,
Stelpurnar, Steindann okkar, 70 mínútur og Vaktirnar.
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
F
I0
14
8
8
1