Fréttablaðið - 16.08.2013, Blaðsíða 67
FÖSTUDAGUR 16. ágúst 2013 | SPORT | 35
FÓTBOLTI Stjörnukonur héldu sigurgöngu sinni
áfram í Pepsi-deild kvenna á þriðjudagskvöld-
ið með því að vinna 3-1 sigur á FH í Kapla-
krika.
Líkt og oft áður í sumar var það Harpa Þor-
steinsdóttir sem gerði útslagið í leik Garða-
bæjarliðsins en bæði hún og Stjörnuliðið eru
stungin af í baráttunni um gull sumarsins.
Stjarnan hefur unnið alla tólf deildarleiki
sína í sumar og er með tíu stiga forskot á Val
þegar aðeins sex umferðir eru eftir. Liðið á
því Íslandsmeistaratitilinn vísan.
Harpa hefur skorað fjögur mörk í síð-
ustu tveimur leikjum liðsins og er nú komin
með örugga forystu í baráttu um gullskóinn.
Harpa hefur skorað 16 mörk í 12 leikjum,
eða fjórum mörkum meira en Valskonan Elín
Metta Jensen.
Harpa hefur skorað fyrsta mark síns liðs
í sex af tólf leikjum Stjörnuliðsins en hún er
einnig búin að leggja upp fjölda marka fyrir
liðsfélaga sína.
Mikilvægi Hörpu sést einnig á því að eina tap
liðsins á þessu tímabili kom í leik þar sem hún
tók út leikbann, eða í undanúrslitaleik Borg-
unarbikarsins á móti Þór/KA. Stjarnan tapaði
leiknum 0-1 en vann 3-0 sigur í leik sömu liða
stuttu síðar, þá með Hörpu á skotskónum. - óój
Harpa að stinga af eins og Stjörnuliðið
Komin með fj ögurra marka forskot í baráttunni um markakóngstitilinn í Pepsi-deild kvenna.
HARPA ÞORSTEINSDÓTTIR Fagnar einu af
sextán mörkum sínum í Pepsi-deildinni í sumar.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
STRANDBLAK Elísabet Einars-
dóttir og Berglind Gígja Jóns-
dóttir urðu í gær Norðurlanda-
meistarar í strandblaki. Þær
skipa stúlknalandslið Íslands sem
vann 2-1 sigur á Noregi í úrslita-
leiknum á Norðurlandamóti 19
ára og yngri.
Íslensku stúlkurnar töpuðu
fyrstu hrinu en komu til baka og
tryggðu sér síðan sigurinn með
því að vinna oddahrinu 15-6.
Strákaliðið, skipað þeim Lúðvík
Má Matthíassyni og Theódóri
Óskari Þorvaldssyni, vann 2-1
sigur á Englandi í gær og tryggði
sér með því fimmta sætið á
mótinu. - óój
Elísabet og
Berglind unnu
NORÐURLANDAMEISTARAR Elísabet
Einarsdóttir og Berglind Jónsdóttir.
FRJÁLSAR Sænski hástökkvarinn
Emma Green-Tregaro vakti
mikla athygli á HM í frjálsum í
Moskvu í gær með því að mæta
til leiks með neglur sínar málaðar
í öllum regnbogans litum.
Hún var með því að mótmæla
nýjum lögum í Rússland sem
banna homma og lesbíur. Green-
Tregaro talaði ekki beint um að
hún væri að mótmæla lögunum
en það fer ekki á milli mála, ekki
síst eftir að hún birti myndir af
nöglunum á Instagram. Green-
Tregaro tryggði sér örugglega
sæti í úrslitunum á laugardaginn
með því að stökkva 1,92 metra.
Neglur Green-Tregaro vöktu
strax umtal og nýkrýndur heims-
meistari í stangarstökki, Yelena
Isinbayeva, taldi hana sýna
Rússum vanvirðingu með fram-
taki sínu. - óój
Neglurnar
orðnar frægar
EMMA GREEN-TREGARO Sýndi neglur
sínar á Instagram. MYND/INSTAGRAM
FÓTBOLTI David Moyes, knatt-
spyrnustjóri Manchester United,
kvartaði í gær yfir leikjaplani
liðsins í upphafi tímabils en
meðal fimm fyrstu deildarleikja
United eru leikir á móti Chelsea,
Manchester City og Liverpool.
„Ég á erfitt með að trúa því að
þetta hafi komið svona upp úr
hattinum,“ sagði David Moyes
og ýjaði að því að forráðamenn
ensku úrvalsdeildarinnar hefðu
séð til þess að byrjun hans hjá
United væri sérstaklega erfið.
„Ég held að þetta sér erfiðasta
byrjun United í 20 ár,“ sagði
Moyes. - óój
Moyes kvartar
DAVID MOYES Tók við liði Manchester
United af Sir Alex Ferguson. MYND/AFP