Fréttablaðið - 02.09.2013, Síða 8
2. september 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 8
MANNRÉTTINDI „Menn eru að fara
þessa leið vegna þess að ákveðnir
hópar standa höllum fæti og eiga
kannski ekki öfluga talsmenn,“
segir Anna Kristinsdóttir, mann-
réttindastjóri Reykjavíkurborgar
um stöðu utangarðsfólks í borginni.
Talið er að um 179 einstaklingar
séu heimilislausir eða utangarðs
í borginni, en Mannréttindaskrif-
stofa Reykjavíkurborgar hefur gefið
út upplýsingarit um mannréttindi
þessa hóps. Höfundar segjast ekki
vita til þess að aðrar borgir hafi lagt
út í slíka vinnu.
Mannréttindaráð Reykjavíkur-
borgar samþykkti árið 2011 að
stofna starfshóp með það verkefni
að skilgreina mannréttindi utan-
garðsfólks og fíkla í Reykjavíkur-
borg.
Í stefnunni sem tíunduð er í fyrr-
greindu riti er sérstaklega árétt-
að að sumt utangarðsfólk geti ekki
sökum vanda síns eða félagslegrar
stöðu sótt sér þjónustu borgarinnar
eftir hefðbundnum leiðum. Því skuli
leitast við að fara með þjónustuna
til þess.
„Það er hægt að gera með ýmsum
hætti, til að mynda að færa lækna-
þjónustu til þeirra,“ útskýrir Anna,
sem var sjálf í starfshópnum.
Þorleifur Gunnlaugsson, vara-
borgarfulltrúi Vinstri grænna,
sem átti einnig sæti í hópnum, seg-
ist vonast til þess að vinna hópsins
skili sér í auknum réttindum utan-
garðsfólks.
„Stefnan er þarna og hún er þá
innlegg í málið og er afstaða borgar-
yfirvalda í þessu máli. Réttur fólks-
ins ætti því að vera skýr, til dæmis
réttur þess til að hafa þak yfir höf-
uðið,“ segir Þorleifur.
Að sögn Þorleifs er stærsta breyt-
ingin þó sú að þriðji aðili taki út
þjónustu borgarinnar gagnvart úti-
gangsmönnum.
„Þá erum við að tala um úttektir
og almennt eftirlit, enda gengur það
ekki að velferðarsvið taki út eigin
þjónustu,“ segir hann.
Hvorki Þorleifur né Anna segj-
ast vita til þess að aðrar borgir hafi
lagst í sambærilega vinnu þar sem
réttindi utangarðsmanna eru skil-
greind sérstaklega. Í samtali við
Önnu kom fram að einnig væri
unnið að því að skilgreina réttindi
aldraðra en niðurstaða um það ætti
að liggja fyrir nú í haust. valurg@365.is
Þjónusta verði færð
til utangarðsfólks
Reykjavíkurborg hefur gefið út bækling um niðurstöður starfshóps þar sem mann-
réttindi utangarðsfólks eru skilgreind sérstaklega. Vilja skoða að færa heilbrigðis-
þjónustu til útigangsmanna í stað þess að þeir leiti til stofnana.
NÆTURSTAÐUR Sumir útigangsmenn þurfa að sofa úti eins og þessi dýna sýnir
sem ljósmyndari tók mynd af á Klambratúni fyrir nokkru. MYND/GVA
Ákveðnir
hópar standa
höllum fæti og
eiga kannski
ekki öfluga
talsmenn.
Anna Kristinsdóttir
mannréttindastjóri Reykjavíkurborgar
Nýbakað á nokkrum mínútum
Ómissandi með öllum mat
SAMFÉLAGSMÁL Hinn 13. ágúst
var opnaður veitingastaður í
Hellubíói, húsi sem hefur lengi
mátt muna sinn
fífil fegurri.
Það fór illa í
jarðskjálftan-
um árið 2000
og kom þá til
tals að rífa það.
„Það er til-
búið, nema
við erum ekki
farin að nota
stóra salinn
enn,“ segir Hjalti Þór Grettisson,
félagi í Kalos sem rekur veit-
ingastaðinn sem heitir einfald-
lega Hellubíó. - jse
Veitingastaðurinn Hellubíó:
Sögufrægt hús
komið í gagnið
HJALTI ÞÓR
GRETTISSON
SAMFÉLAGSMÁL Þ org r í mu r
Daníels son, sóknarprestur á
Grenjaðarstað, hefur lokið göngu
sinni á þrjátíu tinda og stóðst þar
með þá áskorun að ljúka því verki
áður en ágústmánuður væri liðinn.
Þetta gerði hann til að vekja
athygli á Landspítalasöfnun þjóð-
kirkjunnar.
Lokatindurinn var Bolafjall við
Bolungarvík og segir Þorgrímur
að það hafi verið táknrænt því
Agnes Sigurðardóttir hafi einmitt
verið sóknarprestur í Bolungar-
vík áður en hún var vígð til bisk-
ups.
„Ég naut góðs félagsskapar á
öllum ferðum nema í sjö skipti
sem ég fór einn,“ segir Þorgrím-
ur. „Förunautar mínir á Kambs-
mýrarhnjúk voru hinir harðsnúnu
félagsmenn úr göngufélaginu 24
sinnum 24. Sem dæmi um harð-
fylgi þeirra má geta þess að nafn-
ið er tilkomið af göngu þeirra á 24
tinda á sólarhring.“
Hann segist vera afar þakklát-
ur með þann stuðning sem hann
hefur fengið á leiðinni. „Ég segi
bara eins og Stefán frá Hvítadal:
Ég á öllum gott að gjalda,
gleði mín er djúp og rík.“
Þegar blaðamaður spyr hvernig
söfnunin gangi kemur Þorgrímur
af fjöllum, enda Mammon ekki
hans drottinn. - jse
Hefur lokið göngu til styrktar Landspítalanum:
Séra Þorgrímur gekk
á 30 tinda í sumar
ÞORGRÍMUR DANÍELSSON Presturinn segir að þessi þrjátíu tinda þraut hafi verið
tekin meira með skynseminni en kröftunum.
SUÐUR AFRÍKA, AP Eftir rúmlega
þriggja mánaða dvöl á sjúkrahúsi
í Pretoríu vegna lungnasýkingar,
hefur fyrrver-
andi forseti Suð-
ur-Afríku, Nel-
son Mandela nú
fengið að fara
til síns heima í
Jóhannesarborg.
Í yfirlýsingu
frá fjölskyldu
Mandela segir
að hann hvíli
sig nú í faðmi fjölskyldunnar.
Þar mun hann njóta sömu þjón-
ustu og hann fékk á sjúkrahúsinu.
Mandela, sem er 95 ára, er engu
að síður afar veikburða og hvetja
stjórnvöld í Suður-Afríku almenn-
ing til þess að biðja fyrir honum.
- áo
Fluttur heim af sjúkrahúsi:
Mandela er
kominn heim
NELSON
MANDELA
HEILBRIGÐISMÁL Börn á aldrinum
12-14 ára og þriggja ára börn öðl-
ast nú rétt á gjaldfrjálsum tann-
lækningum. Foreldrar þessara
barna þurfa eingöngu að borga
2.500 króna komugjald en Sjúkra-
trygingar Íslands greiða tann-
lækningarnar að fullu.
Áður hafði samningurinn um
tannlækningar barna einungis
tekið til 15, 16, og 17 ára barna en
í tilkynningu frá Sjúkratrygging-
um Íslands segir að þar sé vand-
inn mestur. Börn í bráðavanda
sem búa við erfiðar félagslegar
aðstæður falla einnig undir samn-
inginn jafnvel þótt þau falli ekki
undir ofangreind aldursmörk. - áo
Réttur barna eykst:
Fleiri fá frítt til
tannlæknisins
LÖGREGLUMÁL Fyrrverandi bar-
þjónn og vaktstjóri á Slippbarnum
á Reykjavík Marina Icelandair
hótelinu hefur verið kærður til
lögreglu grunaður um fjárdrátt.
Upphæðin sem um ræðir hleyp-
ur á milljónum króna en yfir-
menn mannsins höfðu grunað
hann um fjárdrátt í nokkurn tíma.
Á eftirlitsmyndavélum staðarins
sást svo til hans taka peninga úr
afgreiðslukassanum og stinga inn
sig.
Málið er í rannsókn hjá lögregl-
unni á höfuðborgarsvæðinu. - áo
Grunaður um fjárdrátt:
Barþjónn sást
stinga á sig fé