Fréttablaðið - 02.09.2013, Blaðsíða 18
Sporthúsið MÁNUDAGUR 2. SEPTEMBER 20132
Heilsustoð var stofnuð í febrúar
2013 og er samstarfsverkefni
Sporthússins, Sjúkraþjálfunar-
innar Sporthúsinu og
Kíró prakt or stofu Íslands.
Markmið Heilsustoðar er að
veita þjónustu á sviði líkamsþjálf-
unar fyrir einstaklinga og hópa
sem þurfa á stuðningi fagfólks
að halda eða vilja bæta líkam-
lega getu sína með stuðningi há-
skólamenntaðs fagfólks. Þjónust-
an hentar því vel þeim sem eru
að ljúka meðferðum, hvort sem
er hjá sjúkraþjálfara á stofu eða
á stofnunum, s.s. Reykjalundi, á
Grensási, í Hveragerði o.s.frv.
Heilsustoð ehf. býður upp á
námskeið sem miða að því að efla
almenna heilsu og hreyfigetu
þeirra sem þurfa á endurhæfingu
eða sérstökum stuðningi fagfólks
að halda eða vilja stuðning við að
breyta um lífsstíl. Í boði eru fjöl-
breytt námskeið sem henta vel
bæði einstaklingum og hópum
sem vilja auka líkamlegan styrk
og virkni. Öll kennsla er í hönd-
um fagfólks og eru gerðar ríkar
kröfur til kennara félagsins hvað
varðar gæði og ábyrgð.
HEILSUSTOÐ
STUÐNINGUR TIL AUKINNA LÍFSGÆÐA
Sjúkraþjálfunin í Sporthús-inu hefur verið starfrækt frá 8. febrúar 2010. Um er að
ræða fullbúna sjúkraþjálfunar-
stofu með sjö lokuðum starfsstöðv-
um og beinni tengingu við heilsu-
rækt Sporthússins. Þar vinna átta
sjúkraþjálfarar og móttökuritari.
Lögð er áhersla á forvarnir og
eftirfylgni. Forvarnir eru einkum
í formi hreyfigreiningar og ráðgjaf-
ar, heilsufarsmælinga og fræðslu,
jafnt á námskeiðum sem opnum
fyrirlestrum innanhúss eða úti í
bæ.
Styrkur stofunnar liggur í stað-
setningunni og því þverfaglega
samstarfi sem þar er. Einkaþjálf-
arar hafa sent skjólstæðinga sína
í greiningu og meðferð til sjúkra-
þjálfaranna, sem á móti hafa sent
sína skjólstæðinga til áframhald-
andi uppbyggingar hjá einka-
þjálfurunum. Nuddstofa er í hús-
inu, en nudd reynist oft áhrifa-
ríkt samhliða annarri meðferð.
Kírópraktor stofa Íslands hefur
verið rekin við hlið sjúkraþjálfun-
arinnar frá því í nóvember 2010.
Fyrirkomulag samstarfs þessara
tveggja stofa er hið fyrsta sinnar
tegundar á landinu. Sérfræðing-
arnir greina sömu skjólstæðinga
út frá mismunandi nálgun, sem
stuðlar að breiðari greiningu sem
aftur ætti að leiða til betri árang-
urs.
Í nóvember árið 2010 opnaði
Magni Bernhardsson Kírópraktor-
stofu Íslands í Sporthúsinu. Í dag
starfa þar fjórir kírópraktorar og
tveir móttökuritarar.
Starf kírópraktorsins er að finna
og leiðrétta skekkju í stoðkerfi lík-
amans svo taugakerfið geti starfað
á hámarksgetu.
Í fyrstu heimsókn tekur kíró-
praktorinn standandi röntgen-
myndir og er Kírópraktorstofa Ís-
lands með stafræn röntgentæki
sem eru þau bestu sem völ er á. Öll
greiningarvinna á röntgenmynd-
um fer fram á tölvuskjá fyrir fram-
an viðskiptavininn, sem fær strax
greiningu á vanda sínum. Að sjá
hrygginn og fá útskýringar mynd-
rænt hjálpar viðskiptavininum að
skilja vandamálið og hvernig leið-
rétting getur átt sér stað. Einn-
ig eru gerðar styrktar- og hreyfi-
greiningar, því kírópraktorinn
leggur mikið upp úr því að kenna
fólki sérhæfðar teygjur og æfingar
og þar af leiðandi verða meiri líkur
á að langvarandi árangur náist.
Kírópraktor meðhöndlar ekki ein-
göngu einkennin heldur finnur
orsök vandans og leiðréttir. Með
því að koma eðlilegri hreyfigetu
aftur á með réttum aðferðum getur
líkaminn myndað smám saman
stöðugleika og stöðvað óeðlilegan
hraða á sliti.
Hryggurinn er grunnur að góðri
heilsu. Láttu ekki verki og óþæg-
indi koma í bakið á þér!
Þverfaglegt
samstarf
Áhrifamikið samstarf ríkir milli sjúkraþjálfara,
kírópraktora, nuddara og þjálfara í Sporthúsinu en
samstarfið er það fyrsta sinnar tegundar hérlendis.
Guðmundur, Jón
Arnar, Magni og
Gunnsteinn.
Glæsilegur hópur
sjúkraþjálfara.
Magni að störfum.
Sólveig Þráinsdóttir og Hildur Kristín Sveinsdóttir.
Heilsustoð er með starfsemi í Sporthúsinu í Kópavogi og Reykjanesbæ.
Heilsustoð ehf. kt. 660213-2360.
Nánari upplýsingar og skráningar á netfangi heilsustod@heilsustod.is og í síma 863 5559.
HOT YOGA ÁSKORUN
4 vikur
Verð: 14.900 kr.
Ótakmarkaður aðgangur að 17 hot
yoga tímum í viku + aðgangur að
tækjasal og opnum hóptímum.
Hot yoga ÁSKORUN er upprunalega komin frá
Bikram Choudhery, sem stofnaði hot yoga eða nánar
tiltekið bikram yoga. Skorað er á fólk að mæta á
hverjum degi í fjórar vikur. Árangurinn lætur ekki á
sér standa og við höfum heyrt skemmtilegar
frásagnir frá ólíkum einstaklingum sem hafa
tekið áskoruninni og áhrifin eru allt frá því
að léttast og styrkjast yfir í að losna við
bakverki og aðra kvilla.
Á MEÐAL NÁMSKEIÐA SEM VERÐA Í BOÐI Í HAUST ERU:
Stoðkerfisskóli I & II
Stoðkerfisskólinn er ætlaður fólki sem á við
mikinn stoðkerfisvanda að stríða. Markmið
skólans er að fræða skjólstæðingana, kenna
þeim rétta líkamsbeitingu til að fyrirbyggja
áframhaldandi vanda og að efla álagsþol
og hreyfigetu fyrir dagleg störf. Allir þátt-
takendur Stoðkerfisskóla I fara í gegnum
einstaklingsmat hjá sjúkraþjálfara áður
en námskeið hefst. Í Stoðkerfisskólanum
setja þátttakendur sér markmið og njóta
stuðnings reyndra sjúkraþjálfara. Boðið er
upp á fræðslu og æfingar á myndum til að
nota á milli tíma.
Heilsuklúbbur – sex vikna námskeið fyrir
þá sem ekki eiga við stoðkerfisvanda að
stríða en vilja halda áfram uppbyggingu
sinni úr öðrum úrræðum.
Hjartaklúbbur – fyrir einstaklinga sem
eiga eða hafa átt við hjartasjúkdóma að etja.
Sykursýkisklúbbur – fyrir þá sem þjást af
sykursýki.
60+ klúbbur – fyrir einstaklinga 60 ára og
eldri sem vilja auka lífsgæði með markvissri
og fjölbreyttri hreyfingu. Liðleiki og styrkur.
Fræðsla um ýmis heilsutengd málefni.
Karlaklúbbur – fjölbreytt hreyfing fyrir
karla.
Kvennaklúbbur – fjölbreytt hreyfing fyrir
konur.
Hjónaklúbbur – fyrir hjón sem vilja stunda
hreyfingu saman og í félagsskap annarra
hjóna. Fjölbreytt hreyfing og fræðsla.
Heilsustoð býður einnig upp á fyrirlestra á
ýmsum sviðum, s.s. um mataræði og fjöl-
breytta hreyfingu, geðheilsu, svefn o.s.frv.
Fyrirlestrarnir eru þátttakendum á nám-
skeiðum Heilsustoðar að kostnaðarlausu.
Öll kennsla er á ábyrgð sjúkraþjálfara sem
búa yfir áralangri reynslu af meðferð og
uppbyggingu álagsþols einstaklinga til
bættrar líkamlegrar og andlegrar vellíð-
unar. Að auki fá þátttakendur hvatningu og
stuðning til þess að halda áfram uppbygg-
ingu sjálfir, samhliða eða eftir að námskeiði
lýkur.
Ég tók hot
yoga-áskorun og
æfði á hverjum degi í fjórar
vikur og léttist um tíu kíló.
Hot yoga hefur
gjörsamlega
bjargað mjóbakinu á
mér.
Hot yoga
heldur mér
við og ég er laus við stífar
axlir og almenna stífni í
líkamanum.