Fréttablaðið - 02.09.2013, Blaðsíða 14
2. september 2013 MÁNUDAGUR| TÍMAMÓT | 14
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
FREYJA ÁRNADÓTTIR
frá Siglufirði,
lést á Landspítalanum þann 21. ágúst
síðastliðinn. Útförin hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Ottó Jörgensen Björk Guðjónsdóttir
Árni Jörgensen Margrét Þóra Þorláksdóttir
Halldóra Ó. Jörgensen Sigurður Örn Baldvinsson
Guðbjörg Jörgensen Eyjólfur Óskarsson
Gunnar Jörgensen Antoinette Jörgensen
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
ÁSTA NÍNA SIGURÐARDÓTTIR
leiðsögumaður,
lést þann 30. ágúst á líknardeild LSH. Blóm
og kransar vinsamlegast afþakkaðir en
þeim sem vilja minnast hennar er bent á
minningarsjóð líknardeildar LSH í Kópavogi.
Útför verður auglýst síðar.
Börkur Helgi Sigurðsson
Ingólfur Torfason
Ellert Helgi Sigurðsson Díana Ármannsdóttir
Hlynur Helgi Sigurðsson Sari Maarit Cedergren
Auður Herdís Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
TÍMAMÓT
Tvö af þeim leikritum sem
frumflutt voru í Útvarps-
leikhúsinu síðasta vetur
munu öðlast nýtt líf á næst-
unni.
Annars vegar er um að
ræða Opið hús eftir Hrafn-
hildi Hagalín sem Útvarps-
leikhúsið frumflutti síð-
asta vetur í samstarfi
við Listahátíð í Reykja-
vík. Uppfærsla Útvarps-
leikhússins hlaut bæði
Grímuna í ár og Norrænu
útvarpsleikhúsverðlaunin
sem besta leikna útvarps-
verk ársins. Nú hefur
útvarpsleikhús norska
Ríkis útvarpsins, NRK,
tryggt sér réttinn á leikrit-
inu og undirbýr eigin upp-
töku á því.
Hins vegar er það leikrit-
ið Harmsaga eftir Mikael
Torfason sem Útvarpsleik-
húsið frumflutti einnig síð-
asta vetur. Þjóðleikhúsið
mun flytja það í leiksviðs-
gerð höfundar og verður
það frumflutt 20. septem-
ber næstkomandi í Kass-
anum í Þjóðleikhúsinu.
Útvarpsleikrit
öðlast nýtt líf
Opið hús og Harmsaga sett upp á nýjum
vettvangi.
LEIKSKÁLD
Hrafnhildur
Hagalín er
höfundur
verksins Opið
hús.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Ákveðið hefur verið að
bæta við aukasýningu á
uppistandssýningu enska
grínistans og fjölmiðla-
stjörnunnar Russells Brand
vegna mikillar aðsóknar, en
uppselt er orðið á fyrri sýn-
inguna þann 9. desember í
Hörpu.
Sýning Brands ber heitið
Messiah Complex og lýkur
hann hálfs árs löngu ferða-
lagi sínu með sýninguna á
Íslandi.
Í sýningunni tekst Brand
á við trúarbrögð og hetjur
mannkynsögunnar, en hann
mun einblína, með grínið
að vopni, á byltingaleiðtog-
ann Che Guevara, mann-
réttindafrömuðina Gandhi
og Malcolm X og svo Jesú
Krist sjálfan.
Fyrirhuguð sýning hefur
vakið mikla athygli meðal
annars vegna þess að
Brand hyggst meðal ann-
ars troða upp í Mið-Austur-
löndum, svo sem Abu Dabi
og í Ísrael. Í síðara land-
inu hafa ýmsir hópar hvatt
landa sína til að sniðganga
sýninguna vegna afstöðu
Brands til Palestínu.
Aukasýning á Russell Brand
Uppselt er á fyrri sýningu enska grínistans í Hörpu í desember.
RUSSELL BRAND Enski grínistinn lýkur hálfs árs ferðalagi sínu með
tveimur sýningum á Messiah Complex í Hörpu.
Lundúnabruninn mikli hófst þennan
dag árið 1666 en eldsupptök voru í
bakaríi Thomas Farriner á Pudding Lane.
Bruninn, sem stóð yfir í þrjá daga, eða
til 5. september, er einn sá mesti sem
orðið hefur á Englandi. Hann breiddist
hratt út um alla miðborgina, náði yfir í
fátækrahverfi borgarinnar og ógnaði um
tíma Westminster.
Í brunanum eyðilögðust 13.200 hús,
87 kirkjur, þar á meðal dómkirkja Páls
postula, og flestar opinberar byggingar.
Bruninn eyðilagði heimili sjötíu þúsund
Lundúnabúa, en í miðborginni bjuggu
um áttatíu þúsund manns.
Ekki er talið að margir hafi látið lífið en
þó voru manntöl yfir millistéttina og
fátæka ónákvæm og því getur verið að
fleiri hafi látist en tölur gefa til kynna.
ÞETTA GERÐIST: 2. SEPTEMBER 1666
Lundúnabruninn mikli hefst
MERKISATBURÐIR
1625 Katla tekur að gjósa með miklum eldgangi og verður mikið
vatnsflóð og ísrek fram Mýrdalssand. Einnig varð mikið öskufall.
Gosið rénaði 14. september.
1845 Heklugos hefst og
stendur til næsta vors. Voru
77 ár frá gosinu á undan en
102 ár liðu til næsta goss
á eftir.
1876 Kveikt er á fyrsta
götuljóskerinu í Reykja-
vík. Þetta var steinolíu-
lukt á háum stólpa neðst í
Bakarabrekku (nú Banka-
stræti).
1967 Brúin yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi er vígð og var
önnur lengsta hengibrú landsins eða 110 metra löng.
AFMÆLISBARNIÐ
Kveðst eiga einfaldan
feril að baki en það
þýði þó ekki að hann
hafi alltaf verið sléttur
og felldur, þótt ættaður
sé úr Sléttu hreppi!
MYND/MELKORKA RÁN
„Ég get víst ekki neitað því að þetta er
að gerast en það er betra en hinn kost-
urinn,“ segir Ólafur Helgi Kjartansson
sýslumaður um hækkandi aldur sinn en
kappinn er sextugur í dag. Hann kveðst
hafa hitt nánustu ættingja og vini á
laugardaginn í tilefni þessara tíma-
móta og í dag ætlar hann að eiga góða
morgun stund með vinnufélögunum á
sýsluskrifstofunni á Selfossi. „Reynd-
ar vill svo til að ég ætla að gifta líka í
dag,“ upplýsir hann og efast ekki um að
sú stund verði hátíðleg. „Daginn byrja
ég samt í sundlauginni að venju, klukk-
an hálf sjö, um leið og hún er opnuð. Ég
er oftast fyrsti gestur þar á morgnana,“
bætir hann við.
Ólafur Helgi er á ferðinni í bíl í rysj-
óttu veðri á meðan þetta spjall fer fram,
vonandi með handfrjálsan búnað, og
sambandið er svolítið slitrótt. Samt er
hann krafinn um einhvern fróðleik um
eigin ævi til þessa. „Ég byrjaði á því,
eins og aðrir, að fara í barnaskóla og
endaði námsferilinn á því að verða lög-
fræðingur fyrir, hvað? 35 árum. Síðan
hef ég unnið hjá íslenska ríkinu,“ upp-
lýsir hann.
En hvaðan er maðurinn? „Ég er fædd-
ur í Reykjavík og alinn upp í Árnessýsl-
unni en er hreinræktaður Vestfirðing-
ur.“
Það rifjast einmitt upp fyrir blaða-
manni að Ólafur Helgi tók þátt í
spurningakeppni átthagafélaganna síð-
asta vetur fyrir Sléttuhrepp, við norðan-
vert Ísafjarðardjúp. Hann kannast við
það. „Það vill svo sérkennilega til að ég
hef, frá því ég lauk námi, bara unnið í
þeim tveimur héruðum sem tengjast
uppruna mínum mest. Hér á Selfossi
byrjaði ég sem fulltrúi sýslumanns, fór
svo vestur á Ísafjörð 1984 til að gerast
þar skattstjóri. Það dugði í rúm sjö ár,
þá varð ég sýslumaður á sama stað. Var
það rúm tíu ár og kom svo hingað í sama
embætti og hef verið hér í tólf ár. Þetta
er einfaldur ferill en það þýðir ekki að
hann hafi alltaf verið sléttur og felldur,
þó ég sé ættaður úr Sléttuhreppi,“ segir
hann en kveðst þó ekki muna neinar
svæsnar sögur að segja.
Hápunktana í lífinu telur Ólafur Helgi
hafa verið að giftast og eignast börnin
fjögur, Kristrúnu Helgu, Melkorku Rán,
Kolfinnu Bjarney og Kjartan Thor. „Það
er náttúrulega skemmtisaga út af fyrir
sig að þau tvö síðasttöldu eru tvíburar
en eiga ekki sama afmælisdaginn, því
þau lentu hvort sínum megin við mið-
nættið. Það olli einhvern tíma þeim mis-
skilningi úti í bæ á Akureyri að ég hefði
eignast börnin hvort með sinni kon-
unni,“ segir hann hlæjandi.
Þegar honum er þakkað fyrir spjallið
og óskað ánægjulegs afmælisdags svar-
ar hann hress:
„Þakka þér fyrir. Ég stefni eindregið
að því.“ gun@frettabladid.is
Stefnir eindregið að
ánægjulegu afmæli
Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður er sextugur og byrjar daginn í sundlauginni á
Selfossi klukkan hálf sjö. Síðan tekur við góð morgunstund með vinnufélögunum.