Fréttablaðið - 02.09.2013, Side 10

Fréttablaðið - 02.09.2013, Side 10
2. september 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 10 Gæðaflísar á sanngjörnu verði Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Kletthálsi 7, Rvk - Reykjanesbæ - Akureyri - Vestmannaeyjum uboHeils rg ehf Faxaf Reykjavík www.heilsuborg.is Fjölbreyttir tímar þar sem bæði er dansað ZUMBA Fitness og ZUMBA Toning. Einföld og skemmtileg dansspor. Hefst 10. september Þjálfari: Hjördís Zebitz Verð kr. 13.900.- Dansaðu þig í form! ORKA SEM ENDIST Weetabix er frábær leið til að byrja daginn. Veldu næringar- ríkan morgunverð sem heldur þér gangandi fram að hádegi. Sykurminnsta morgunkornið Sykurinnihald er það lægsta sem gerist í morgunkorni. 4,4 g sykur í 100 g FRUMKVÖÐLASTARF Góður gang- ur er á umleitunum fyrirtækisins Zalibuna til að fá fjárfesta til liðs við sig til að koma upp rennileið niður Kambana. Að sögn Skúla Sigurðssonar, fjármálastjóra Zalíbunu, hefjast viðræður við þrjá hugsanlega fjár- festa í þessari viku. „Og svo förum við til Austur- ríkis þann 23. september að ræða við Brandauer sem er umboðsað- ili brautarinnar til að funda með honum og fara yfir stöðu mála,“ segir hann. „Þetta ætti því allt að skýrast á næstu mánuðum,“ bætir hann við. Vonir standa til þess að hægt verði að fara í salí- bunur niður Kambana vorið 2015. Fyrirtækið kynnti hugmyndirn- ar fyrir skipulags-, byggingar- og umhverfisnefnd Ölfuss og eins er búið að ræða við Orkuveituna og Vegagerðina um hugmynd- ina. Skúli segir að mikill áhugi sé meðal Ölfusmanna um málið. Nái áformin fram að ganga verð- ur lögð stæðileg rá niður Kambana en á henni geta sleðar runnið niður hlíðina. Sá sem situr í sleðanum ræður hraða ferðarinnar en hann hefur milli fóta sér stöng sem virk- ar eins og bremsa. Ef menn snerta ekki við hemlum þessum má ná 40 kílómetra hraða á klukkustund. - jse Þrír vilja koma að rennileið niður Kambana: Ölfusingar heitir fyrir salíbunuferðunum SLEÐI FYRIR SALÍBUNUR Þrír áhugasamir fjárfestar hafa komið að tali við fyrir- tækið Zalibunu um að koma upp rennileið niður Kambana. MENNTUN Síðastliðið vor gátu 67 prósent sjö ára stúlkna í grunn- skólum Reykjavíkur lesið sér til gagns en einungis 59 prósent drengja. Tveir af hverjum fimm sjö ára drengjum í grunnskólum höfuð- borgarinnar voru ófærir um að lesa sér til gagns þótt þeir kynnu að vera læsir eða geta stautað sig frá orði til orðs. Samkvæmt niðurstöðum les- skimunarinnar getur mikill munur verið á milli skóla. Í þeim þremur skólum þar sem staðan er verst geta frá 20 og upp í 25 pró- sent nemenda lesið sér til gagns. Í skólanum þar sem börnin stóðu sig best gátu 94 prósent lesið sér til gagns. Nöfn skólanna eru ekki birt. Heildarniðurstaða lesskimun- arinnar meðal nemenda í öðrum bekk grunnskólanna síðastliðið vor er sú að 63 prósent geta lesið sér til gagns og er niðurstaðan sú lakasta frá árinu 2005. Þá gátu 60 prósent lesið sér til gagns en skimun var gerð að afloknu kenn- araverkfalli. Þróunin hafði verið heldur upp á við og í fyrra gátu 69 prósent lesið sér til gagns. Skólastjórum hefur verið falið að kynna niðurstöður lesskimun- arinnar bæði fyrir nemendum og foreldrum. Færri sjö ára geta lesið sér til gagns Aðeins 63 prósent sjö ára barna í Reykjavík lesa sér til gagns samkvæmt lesskimun sem gerð var síðasta vor. Mikill munur getur verið á milli skóla í höfuðborginni. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðis- fl okksins, vill að birtar verði upplýsingar um hvernig einstakir skólar koma út úr lesskimuninni. „Það er verulega flókið fyrir for- eldra að finna út úr öllum þeim mælingum sem eru gerðar á einum stað. Ég er ekki hrædd við að þessar upplýsingar séu uppi á borðum. Fólk er gagnrýnið og það eru alltaf einhver rök í máli þegar um einhvern mismun er að ræða.“ Þorbjörg segir erfitt að mega ekki ræða hlutina. „Það er erfitt fyrir okkur að skoða þetta í trúnaði í borgarstjórn og mega ekkert segja hvað þarf að gera. Það er vont fyrir kerfið í heild sinni.“ Hún kveðst sammála Odd- nýju Sturludóttur um að ekki sé nauðsynlegt að birta niðurstöð- urnar frá ári til árs vegna mikilla árgangssveiflna. Oddný Sturludóttir, formaður skóla- og frístunda- ráðs, segir frammistöðu einstakra skóla aldrei hafa verið birta, óháð því hver hefur verið við völd. „Ég sé ekki hvaða tilgangi það þjónar að birta lista yfir útkomu skóla í einstaka mælingum. Skólar eiga ekki að vera í samkeppni við aðra heldur sjálfa sig. Þeir eiga að keppa að því marki að bæta sig.“ Oddný segir Reykjavíkurborg hafa verið ófeimna við að varpa ljósi á allt skólastarf. „Við höfum alltaf viljað nálgast þessar skim- anir sem umbótatæki. Þær eru verkfæri kennara til að sjá hvar börnin standa í námi og þær eru nýttar sem slík umbótatæki.“ Hún tekur það fram að hún hafi alltaf verið fylgjandi því að skólar og foreldrar fái allar upplýs- ingar um frammistöðu nemenda skólans milli ára. Á AÐ BIRTA ÚTKOMU EINSTAKRA SKÓLA? ÞJÓNAR ENGUM TILGANGIFORELDRAR FÁI UPPLÝSINGAR Flókið fyrir foreldra Upplýsingar uppi á borðum Vont fyrir kerfið Ekki í sam- keppni við aðra Ófeimin við að varpa ljósi á skólastarf Skimanir sem umbótatæki

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.