Fréttablaðið - 13.09.2013, Page 6
13. september 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
1. Hvaða fyrrverandi ráðherra dæmir
með Bubba í hæfi leikakeppninni Ís-
land got talent?
2. Hvað hafa mörg kynferðisbrot verið
kærð til lögreglu frá áramótum?
3. Hjá hvaða liði ætlar Þórey Edda
Elís dóttir að efl a stangarstökksþjálfun?
SVÖR:
1. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. 2. 517.
3. Ármanni.
Frestur til að senda athugasemdir
rennur út 20. september 2013
Kynntu þér málið á adalskipulag.is
AÐALSKIPULAG
REYKJAVÍKUR
2010-2030
Tillaga að nýju aðalskipulagi fyrir Reykjavík
Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti þann 4. júní,
2013 að auglýsa tillögu að Aðalskipulagi Reykjavíkur
2010-2030, samkvæmt 31. gr. laga nr. 123/2010,
ásamt umhverfisskýrslu, sbr. 7. gr. laga nr. 105/2006.
Athugasemdir Skipulagsstofnunar, sbr. 3. mgr. 30 gr.,
voru teknar til umfjöllunar í borgarráði þann 25. júlí,
2013 ásamt minnisblaði umhverfis- og skipulagssviðs
um viðbrögð Reykjavíkurborgar við athugasemdunum.
Nýtt aðalskipulag tekur til tímabilsins 2010–2030
og er endurskoðun á aðalskipulaginu 2001–2024.
Endurskoðunin hefur staðið yfir undanfarin ár og
hefur falist í margvíslegri greiningarvinnu, mati
valkosta og samráði við íbúa og hagsmunaaðila.
Aðalskipulagstillagan er kynnt samhliða breytingum á
svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2001-2024,
sem nauðsynlegt var að ráðast í vegna endurskoðunar
á stefnu aðalskipulagsins. Athugasemdir Skipulags-
stofnunar, dagsettar 16. júlí 2013, eru lagðar fram
með aðalskipulagstillögunni, ásamt viðbrögðum
Reykjavíkurborgar við þeim, dagsettum 22. júlí 2013.
Tillagan ásamt umhverfisskýrslu og öðrum
fylgigögnum hefur legið frammi í þjónustuveri
Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð,
virka daga kl. 8:20 – 16:15, síðan 9. ágúst 2013 og
verður í kynningu til og með 20. september 2013.
Tillagan ásamt umhverfisskýrslu er einnig til sýnis á
Skipulagsstofnun, Laugavegi166, 3. hæð. Tillöguna
og önnur kynningargögn má nálgast á vefsvæðinu
adalskipulag.is
Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta
hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og
athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega til
Umhverfis- og skipulagssviðs, Borgartúni 12-14
eða á netfangið skipulag@reykjavik.is, eigi síðar en
20. september 2013. Vinsamlegast notið uppgefið
netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.
Megin breytingar frá gildandi aðalskipulagi:
Þéttari og blandaðri byggð
Minna landnám og minni landfyllingar
Vistvænni samgöngur
Ákveðnari verndun opinna svæða
Húsnæði fyrir alla
Skýrari kröfur um gæði byggðar
UTANRÍKISMÁL Gunnar Bragi
Sveinsson utanríkisráðherra segir
ekki tímabært að ræða framhald
aðildarviðræðna Íslands við Evr-
ópusambandið fyrr en skýrsla
Hagfræðistofnunar um stöðu við-
ræðnanna og þróun sambandsins
hafi verið lögð fram. Í umræðum
á Alþingi í gær greindi hann frá
því að hann hefði óskað eftir því að
stofnunin gerði slíka skýrslu.
Össur Skarphéðinsson, fyrrver-
andi utanríkisráðherra, gagnrýndi
Gunnar Braga harðlega fyrir að
hafa leyst upp samninganefnd og
viðræðuhópa Íslands vegna við-
ræðnanna og sagði hann þar með
fara á svig við vilja Alþingis og
að fyrsta skrefið væri stigið til að
slíta viðræðunum.
Utanríkisráðherra sagði ríkis-
stjórnina vera með jákvæða og
metnaðarfulla sýn í Evrópu-
málum, með öflugu samstarfi við
Evrópusambandið. Samskiptin
við sambandið stæðu á traustum
fótum og bæri EES-samstarfið þar
hæst.
„Ég vil að við stundum sterka
og sýnilega hagsmunagæslu innan
EES og annarra samninga sem
við höfum gert við Evrópusam-
bandið,“ sagði utanríkisráðherra.
Slíkt kallaði á mannafla og við-
veru í Brussel. Tillögur í þessa
veru væru á hans teikniborði
og hann legði áherslu á tví-
hliða samninga við sam-
bandið.
Gunnar Bragi segir að
ákvörðun um umsókn að
ESB hafi verið tekin án
þeirrar sannfæringar og
samstöðu sem hefði þurft
að vera til staðar. Fólk geti
treyst því að viðræðurnar
Segir ekki tímabært að ræða
framhald ESB-viðræðnanna
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra vill efla tvíhliða samskipti við Evrópusambandið. Össur Skarp-
héðins son þingmaður segir almenning réttilega búast við þjóðaratkvæðagreiðslu um framhaldið.
EVRÓPUMÁL Stækkunarskrifstofa Evrópu-
sambandsins mun í næstu viku leggja niður
deildina sem sá sérstaklega um málefni sem
tengdust umsókn Íslands að ESB. Þess í stað
verður stofnuð ný deild sem mun sjá bæði um
málefni Íslands og Svartfjallalands.
Í svari við fyrirspurn Fréttablaðsins segir
Peter Stano, talsmaður Stefans Füle, stækk-
unarstjóra Evrópusambandsins, að fram-
kvæmdastjórnin muni hafa starfsfólk til að
sinna málefnum Íslands á meðan Ísland er í
aðildarferli.
„Að sjálfsögðu fer fjöldi starfsfólks sem
vinnur að málefnum hvers lands eftir vinnu-
álagi sem fylgir, og þar sem [íslenska] ríkis-
stjórnin hefur tilkynnt um hlé á viðræðum
hefur vinna við það dregist saman. Það hefur
hins vegar engin sérkunnátta tapast og fram-
kvæmdastjórnin getur hafið vinnu við samn-
ingaferlið án tafar ef til þess kemur.“
Í Fréttablaðinu í gær var skýrt frá því að
utanríkisráðherra hefði leyst upp samninga-
nefnd Íslands við ESB og samningahópa.
Stano segir þá ákvörðun utanríkisráðherra
ekki koma framkvæmdastjórninni á óvart í
ljósi þess að ríkisstjórnin hafi margoft lýst
því yfir að ekki standi til að halda áfram
aðildarviðræðum. - þj
Framkvæmdastjórn ESB hefur einnig dregið saman seglin í aðildarferlinu:
Umsókn Íslands sameinuð Svartfellingum
VIÐ FUNDARBORÐIÐ Gunnar Bragi Stefánsson utan-
ríkisráðherra hitti Stefan Füle, stækkunarstjóra ESB, á
fundi í Brussel í sumar. MYND/EUROPA.EU
DÓMSMÁL Mál gegn karlmanni
sem er ákærður fyrir sérstak-
lega hættulega líkamsárás þegar
hann á að hafa slegið flösku í
andlit leigubílstjóra var þingfest
í Héraðs dómi Reykjaness í gær.
Maðurinn er einnig ákærður
fyrir fjársvik og eignaspjöll.
Í ákæruskjali kemur fram
að maðurinn hafi látið leigubíl-
stjórann aka sér til Hafnar fjarðar
í desember árið 2011. Þegar
þangað var komið steig maðurinn
út úr bifreiðinni án þess að greiða
fyrir aksturinn og sló leigubíl-
stjórann í andlitið með flösku í
gegnum hliðar rúðu bílsins. - vg
Ákærður fyrir líkamsárás:
Sló bílstjóra
með flösku
LEIGUBÍLAR Leigubílstjórinn var sleg-
inn í andlitið.
SAMGÖNGUR Miklar fram kvæmdir
standa nú yfir á Hverfis götu en
unnið er að því að endurnýja göt-
una frá grunni. Unnið er á kafl-
anum milli Klappar stígs og Vita-
stígs og á gatnamótum Vitastígs
og Hverfisgötu.
Gert er ráð fyrir því að hægt
verði að opna gatnamótin fyrir
bílaumferð í byrjun október. Ráð-
gert er að hefja fram kvæmdir
á gatnamótum Hverfisgötu og
Frakkastígs í næstu viku og
verður bílaumferð beint um hjá-
leiðir. Gönguleiðum niður Frakka-
stíg verður þó haldið opnum. - ka
Framkvæmdir á Hverfisgötu:
Opna fyrir um-
ferð í október
verði ekki teknar upp aftur fyrr en
að undangenginni þjóðaratkvæða-
greiðslu.
Össur Skarphéðinsson segir
ráðherra hafa slegið Íslandsmet í
ræðu sinni á Alþingi í gær.
„Því honum tókst í einni ræðu
bæði að fara gegn eigin yfirlýs-
ingum, storka fullveldi Alþingis
og líka að fara gegn stefnu ríkis-
stjórnarinnar,“ sagði Össur. En
formenn stjórnarflokkanna hefðu
báðir lýst því yfir að þjóðarat-
kvæðagreiðsla um framhald við-
ræðna færi fram á þessu kjör-
tímabili. Almenningur byggist því
réttilega við að staðið yrði við þau
fyrirheit.
Skiptar skoðanir eru um Evrópu-
málin innan Sjálfstæðisflokksins.
Vilhjálmur Bjarnason, þingmaður
flokksins, viðurkennir að hann sé í
minnihluta innan flokksins. Hann
telji rétt að Alþingi hefði átt að taka
þá ákvörðun að gera hlé á aðildar-
viðræðunum þar sem ríkis stjórnin
sæti í skjóli þingsins og hefði
ekki sjálfstætt vald. Alþingi hefði
ákveðið árið 2009 að farið yrði í við-
ræðurnar og Ísland hefði t.d. gerst
aðili að Alþjóðagjaldeyrissjóðnum,
Alþjóðabankanum, EFTA, NATO og
fleiri stofnunum með þings álykt-
unar tillögum.
Til að vera sjálfstæð
þjóð þurfi stundum að
taka ákvörðun um full-
veldisafsal til að vera
með öðrum þjóðum.
„Það er engin upp-
gjöf. Fullkomið sjálf-
stæði í sam skiptum
við aðrar þjóðir er
ekki til lengur,“
sagði Vilhjálmur.
heimir@frettabladid.is
Á ÖNDVERÐUM MEIÐI
Össur Skarphéðinsson, þing-
maður Samfylkingar, gagnrýnir
Gunnar Braga Sveinsson utanríkis-
ráðherra harðlega fyrir að leysa
upp samninganefnd og
viðræðuhópa vegna
aðildarumsóknar
Íslands að ESB.
VEISTU SVARIÐ?