Fréttablaðið - 13.09.2013, Qupperneq 10
13. september 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
UPPLÝSINGATÆKNI Landhelgisgæsla
Íslands notaði í fyrrinótt nýjan
miðunarbúnað til að finna mann
sem villtist á göngu við Svínafells-
jökul.
Búnaðurinn var um borð í þyrlu
gæslunnar, TF-GNÁ, og nýttust
upplýsingar úr honum, ásamt upp-
lýsingum frá stjórnstöð Lands-
bjargar, við að staðsetja manninn
með nokkurri nákvæmni um
klukkutíma eftir að þyrlan kom
á staðinn. Þá var búið að þrengja
leitarsvæði björgunarsveitar-
manna Landsbjargar sem höfðu
leitað mannsins í afleitu veðri í
um fimm tíma. Maðurinn fannst
tveimur tímum síðar á Hafrafelli,
kaldur og máttfarinn.
„Þetta er í fyrsta skipti sem bún-
aðurinn nýtist okkur við leit. Við
höfum notað hann tvisvar áður en
í þeim tilvikum fannst viðkomandi
aðili áður en við komum á staðinn
eða var með slökkt á farsíma,“
segir Höskuldur Ólafsson, tækni-
stjóri hjá Landhelgisgæslunni.
Höskuldur og fleiri starfs-
menn gæslunnar hafa undan-
farna mánuði unnið að prófunum
á búnaðinum í samstarfi við hug-
búnaðarfyrirtækið Rögg og Óskar
Valtýsson, fjarskiptastjóra hjá
Landsvirkjun. Óskar og Baldvin
Hansson, starfsmaður Röggvar,
hafa báðir farið með þyrlum
gæslunnar í allar ferðirnar og séð
um rekstur búnaðarins.
„Leit með búnaðinum virkar
þannig að flogið er með hann um
leitarsvæðið á meðan hann býr til
þjónustusvæði fyrir farsíma. Ef sá
aðili sem leitað er að er með kveikt
á sínum farsíma miðar bún aðurinn
hann út og leitaraðilar fá stað-
setningu hans með nokkuð mikilli
nákvæmni. Þetta er mjög mikil-
vægur búnaður og algjör bylting
í leit eins og í fyrrinótt,“ segir
Höskuldur.
Hugmyndin að búnaðinum kom
fyrst upp hjá Óskari Valtýssyni
þegar hann fylgdist með frétta-
flutningi af umfangsmikilli leit að
ungum Svía sem festist í sprungu
á Sólheimajökli árið 2011.
„Þegar ég heyrði í fréttum að
maðurinn hefði hringt í Neyðar-
línuna gerði ég ráð fyrir að þessi
búnaður væri til og að maðurinn
yrði miðaður út og síðan fundinn.
Daginn eftir heyrði ég að björg-
unar sveitarmenn væru enn að
leita að honum og þá setti ég
saman hugmynd að búnaðinum og
eftir það fóru hlutirnir að rúlla,“
segir Óskar Valtýsson.
Að hans sögn er hugmyndin sú
að búnaðurinn verði á endanum
hluti af tækjabúnaði Landhelgis-
gæslunnar.
haraldur@frettabladid.is
Mjódd l Salavegur l Hverafold l Grandi l Akureyri l Höfn
Grindavík l Reykjanesbær l Borgarnes l Egilsstaðir l Selfoss
Nicotinell fæst núna í öllum verslunum Nettó
1.199kr/pk - Fruit 799 kr/pk
Nýtt í Nettó!
NÝTT
Í tilefni 40 ára afmælis Glóeyjar
veitum við 10-40% afslátt af
völdum útiljósum í september.
AFMÆLIS
AFSLÁTTUR
Öræfajökull
Skeiðarársandur
HafrafellSkeiðarárjökull
VAT N A J Ö K U L L
Nýr leitarbúnaður
sannar strax gildi sitt
Nýr miðunarbúnaður aðstoðaði við leit að manni sem villtist við Svínafellsjökul.
Búnaðurinn mun á endanum verða hluti af tækjabúnaði Landhelgisgæslunnar.
Miðunarbúnaðurinn notar sérstakt loftnet sem
beinir radíómerkinu niður á við og nær því ofan í gil
og sprungur, ólíkt því sem oft gerist við sendingar úr
hefðbundnum sendistöðvum.
Miðunarbúnaðurinn er í raun færanleg GSM-móðurstöð með fylgibúnaði
á stærð við litla ferðatösku. Þegar kveikt er á búnaðinum býr hann til þjón-
ustusvæði og í kjölfarið nema farsímar hann sem mögulegan þjónustu-
aðila. Þegar farsími reynir að hafa samskipti við búnaðinn nýtir hann
innbyggða eiginleika GSM-kerfisins og mælir þann tíma sem það tekur
fyrir radíómerki að fara frá móðurstöðinni í þyrlunni og í farsímann.
Þá eru gerðar mælingar á þeim upplýsingum og þeim raðað inn í
reiknimódel sem reiknar út staðsetningu farsímans. Þegar staðsetningin
liggur fyrir sendir búnaðurinn síðan sms-skilaboð í viðkomandi farsíma
um að hjálp sé á leiðinni. Ef aðilinn sem leitað er að er með meðvitund er
einnig hægt að nota búnaðinn til að hringja í viðkomandi og hann getur
sömuleiðis hringt til baka.
SENDIR SMS-SKILABOÐ UM
AÐ HJÁLP SÉ Á LEIÐINNI
35 km
Með búnað-
inum er hægt
að ná sam-
bandi við
farsíma sem
eru í allt að 35
kílómetra fjar-
lægð.
Save the Children á Íslandi
SKÓLAMÁL „Við fögnum þessu, það
er fyrst og fremst ótrúlega gott
að það sé verið að eyða þessari
óvissu,“ segir María Rut Kristins-
dóttir, formaður Stúdentaráðs,
um þá ákvörðun Illuga Gunnars-
sonar menntamálaráðherra og LÍN
að áfrýja ekki dómi Héraðsdóms
Reykjavíkur í máli námsmanna
gegn LÍN. „Við erum búin að vinna
að þessu í allt sumar og nú er kom-
inn algjör loka punktur á þetta,“
segir María Rut, og bendir á að
margir námsmenn hafi ákveðið
að fara ekki í nám í vetur vegna
óvissunnar sem ríkt hafði um
framfærsluna.
Hún bendir á að þrátt fyrir að
endurskráningu í námskeið hafi
lokið í gær, hafi þau fengið vilyrði
fyrir því að að það verði hægt að
breyta skráningu eitthvað áfram.
Skólinn muni sýna þessum að-
stæðum skilning, þeir sem hafa til
dæmis skráð sig í aukaáfanga til
að ná upp nógu mörgum einingum
til þess að fá lán, geta endurskoðað
sína skráningu. - ka, hrs
Formaður Stúdentaráðs fagnar ákvörðun menntamálaráðherra og LÍN:
Algjör sigur fyrir stúdenta
STÚDENTARÁÐ FAGNAR María Rut
Kristinsdóttir, formaður Stúdentaráðs,
fagnar ákvörðun menntamálaráðherra
og LÍN. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
SVONA VIRKAR NÝR LEITARBÚNAÐUR LANDHELGISGÆSLUNNAR