Fréttablaðið - 13.09.2013, Blaðsíða 24
„ Mér fi nnst mikið
atriði að fólk fari
áhyggjulaust og á
réttan hátt inn í
helgina og slaki
aðeins á. Það er samt
ekki þar með sagt að
þetta verði bara
einhver froða!
Logi Bergmann
„Ef ég gæti valið þrjár persónur úr mann-
kynssögunni til að mæta til mín í settið
þætti mér fínt að fá Bítlana í hljómsveitar-
þátt. George gæti þá bara setið undir
Ringó og það væri sennilega frekar áhuga-
vert,“ segir Logi Bergmann, sem mætir
aftur á skjáinn með Loga í beinni þann 20.
september.
Logi segir þáttinn verða með svipuðu
sniði og áður. „Þetta verður léttur spjall-
þáttur með skemmtilegri tónlist og áhuga-
verðum gestum. Mér finnst mikið atriði að
fólk fari áhyggjulaust og á réttan hátt inn í
helgina og slaki aðeins á. Það er samt ekki
þar með sagt að þetta verði bara einhver
froða!“ segir Logi og hlær.
Gestir Loga þurfa að uppfylla nokkrar
kröfur. „Þeir þurfa að vera skemmtilegir,
áhugaverðir og hafa frá einhverju að segja.
Þá skiptir í raun ekki máli hvort þeir hafi
komið áður.“
Eftirminnilegasti gestur Loga er leikar-
inn og leikstjórinn Benedikt Erlingsson.
„Benedikt er skemmtilega óútreiknan-
legur og maður lendir dálítið í honum. Hann
tók kast á mig í fyrstu heimsókn sinni í þátt-
inn fyrir hvað ég var mikill plebbi og þátt-
urinn ekki nógu menningarlegur. Þorsteinn
Gunnarsson, Jón Gnarr og Anna Svava eru
líka í uppáhaldi; svona eins og fólk hefur
sennilega tekið eftir,“ segir Logi sposkur.
Í kvöld mætir Logi á skjáinn sem gest-
gjafi í Haustpartíi Stöðvar 2. Hann lofar líf-
legri skemmtidagskrá og góðum gestum í
bland við kynningu á spennandi dagskrár-
liðum Stöðvar 2 á vetri komanda. Haust-
partíið verður sýnt í beinni útsendingu á
Stöð 2 klukkan 18.55 í kvöld.
„Veturinn er virkilega spennandi á Stöð
2. Það er mikill kraftur í innlenda efninu
og alls konar nýir, íslenskir þættir sem ég
hlakka til að sjá. Á skjáinn eru líka væntan-
legir nýir og freistandi erlendir þættir í
bland við gamla kunningja,“ segir Logi og
viðurkennir að hann sé dálítill plebbi hvað
sjónvarpsáhorf varðar.
„Ég er plebbi af því að ég horfi á The
Mentalist og American Idol. Ég hlakka svo
mikið til að sjá Ástríði, nýju þættina hennar
Lóu Pind, Eitthvað annað, og Óupplýst lög-
reglumál með Helgu Arnardóttur. Einnig
Blacklisted með James Spader og 24, sem
snýr aftur. Aðrir uppáhaldsþættir mínir
eru Bones, Homeland og Orange Is the New
Black.“
Til gamans má geta að dagskrá Stöðvar 2
verður opin og ólæst alla helgina.
Svolítill sjónvarps plebbi
Hausthátíð Það verður erfitt að segja skilið við sjón varps sófann í vetur því dagskráin á Stöð 2
rígheldur áhorfendum við skjáinn. Dagskrána kynnir Logi Bergmann í Haustpartíi í kvöld.
Þáttaröðin Hið blómlega bú sló
eftirminnilega í gegn á Stöð 2
síðastliðið vor, en áhorfendur
kunnu vel að meta matreiðslu-
manninn Árna Ólaf Jónsson
og frumraun hans í búskap
og eldamennsku fyrir framan
myndavélarnar í íslenskri sveit.
Það gleður því eflaust marga
að vita að nýrrar þáttaraðar er
að vænta af Hinu blómlega búi
í nóvember þar sem notaleg
vetrar stemning mun ríkja.
Þó að Árni Ólafur hafi hreint
ekki verið neinn nýgræðingur
í eldhúsinu þegar Hið blóm-
lega bú leit dagsins ljós var
hann þar að þreyta frumraun
sína í sjónvarpi. Hann segir að
honum og leikstjóra og fram-
leiðanda þáttanna hafi því
komið viðtökurnar skemmti-
lega á óvart.
„Við vissum hreinlega ekki
hverju við áttum að búast við.
Viðfangsefnið heillaði okkur
– íslenska sveitin, maturinn
og hefðirnar – og töldum við
að fleiri væru í svipuðum
pælingum. Það reyndist rétt og
erum við hæstánægð með við-
tökurnar.“
Í nýju þáttaröðinni verður
sem fyrr segir áhersla á vetrar-
legan mat og matarhefðir.
„Við ætlum að halda áfram
á svipuðum nótum og í fyrri
þáttaröðinni og fylgjast með
lífinu í sveitinni, kíkja í heim-
sókn til bænda, elda góðan mat
og vinna hann sem mest frá
grunni. Veturinn getur verið
svo notalegur og það er margt
spennandi sem hægt er að gera
á þessum árstíma,“ segir Árni
Ólafur.
En hvað skyldi vera eftir-
lætismatur sjónvarpskokksins
rómaða?
„Það er enginn einn réttur í
uppáhaldi hjá mér; bragðlauk-
arnir eru alltaf að sækjast
í mismunandi hluti. Ég er í
Hollandi þessa stundina og þar
sem ég gisti eru epla-, plómu-
og mórberjatré í garðinum
og því leitar hugurinn núna
í bökur og sultur. Ég nýt alls
matar sem útbúinn er af natni
úr fersku og góðu hráefni.“
Veturinn
getur verið
svo notalegur
Hið blómlega bú
Hefst á Stöð 2 í nóvember.
„Ég nýt alls matar sem útbúinn er
af natni úr fersku og góðu hráefni.