Fréttablaðið - 13.09.2013, Blaðsíða 28
6 FÖSTUDAGUR 13. september 2013
Það gleðjast eflaust margir yfir endurkomu einnar ást-
sælustu sjónvarpskonu landsins á Stöð 2, en Vala Matt
ætlar að sjá um tvo ólíka þætti á Stöð í vetur.
Hún ríður á vaðið þann 19. september næstkomandi
með þáttum sem nefnast Sælkeraferðin. Þar ferðast Vala
í kringum Ísland og heimsækir
annálaða sælkera.
„Við förum í ævintýralegt
ferðalag um Ísland, hittum
dúndurskemmtilegt fólk og
lærum að elda dýrindis mat,“
segir Vala um þættina góðu.
Eftir áramótin ætlar Vala,
ásamt fleirum, að huga að
heilsunni í þáttunum Heilsu-
gengið.
„Í þáttunum fáum við að
fylgjast með þekktum einstak-
lingum sem eru að kljást við
hversdagsvandamál og jafn-
vel sjúkdóma tengda matar-
æði og lífsstíl. Við fáum að vita
hvaða fæðutegundir við eigum að borða til þess að veita
okkur ró, hvaða mat við eigum að borða til þess að verða
orkumeiri, hvaða mat við getum notað til að líta betur út
og hvað við eigum að borða til að finna fyrir meiri gleði.
Ekkert meinlæti, bara hamingja og gleði,“ lofar Vala.
Heilsugengið dregur nafn sitt af Völu og sérfræðing-
unum tveimur sem verða henni til halds og trausts í
þáttunum góðu. „Þorbjörg Hafsteinsdóttir, hjúkrunar-
fræðingur og næringarþerapisti, mun taka við mælendur
í heilsugreiningu og gefa síðan fagleg ráð um breytt
mataræði og lífsstíl. Sólveig Eiríksdóttir, heilsu-
kokkur og besti hráfæðiskokkur heims, kemur svo og
býr til dýrindis heilsumat í samræmi við ráðleggingar
Þorbjargar.“
Bara
hamingja
og gleði
Sælkeraferðin
Hefst á Stöð 2 19. september.
Heilsugengið
Hefst á Stöð 2 í janúar.
Einn af mikilsvirtustu skurðlæknum
Bandaríkjanna er fenginn til að skera
upp forseta Bandaríkjanna. Kvöldið fyrir
aðgerðina gera hryðjuverkamenn innrás á
heimili skurðlæknisins og taka fjölskyld-
una í gíslingu. Lausnargjaldið? Að láta for-
setann deyja á skurðarborðinu; að öðrum
kosti er úti um fjölskyldu læknisins.
Þannig spinnst söguþráður í einni af
viðamestu erlendu þáttaröð vetrarins á
Stöð 2.
Þættirnir fara í loftið mánudagskvöldið
30. september og skarta áströlsku verð-
launa leik konunni Toni Collette í hlutverki
skurðlæknisins dr. Ellen Sanders. Leik konan
segir umboðsmenn sína hafa verið nógu
snjalla til að ljóstra engu upp um söguþráð-
inn þegar henni bauðst að lesa handritið.
„Þættirnir eru skrifaðir af mikilli snilld
og á gáfulegan máta og þótt ég þættist
viss um hvað gerðist næst hafði ég aldrei
rétt fyrir mér. Spennan greip mig heljar-
tökum og ég gat ekki með nokkru móti lagt
handritið frá mér,“ segir Collette, sem með
Hostages fagnar því einnig að leika loks
eina sögupersónu eftir að hafa leikið marg-
skiptan persónuleika í sjónvarpsþáttunum
The United States of Tara.
Í hinu aðalhlutverki Hostages er sjarma-
tröllið Dylan McDermott í hlutverki
Duncans Carlisle, föðurlandssvikara innan
FBI og foringja hryðjuverkamannanna.
„Í hlutverki Carlisle er ég ekki bara
vondur karl sem gerir ljóta hluti, að baki ill-
virkisins liggur verulega góð ástæða sem
smám saman verður ljósari þótt áhorfendur
hafi aldrei í hendi sér hvert söguþráðurinn
stefnir,“ upplýsir McDermott.
Hostages kemur úr smiðju Jerrys Bruck-
heimer sem fær áhorfendur til að sveiflast
í óvissu um hvað sé rétt og rangt. Þeir upp-
lifa viðleitni dr. Sanders við að bjarga fjöl-
skyldu sinni, leyndarmál fjölskyldumeðlima
og persónulegt mótlæti Carlisle sem liggur
að baki sviksamlegum aðgerðum hans.
Forsetinn skal deyja
Hostages Hefst 30. september á Stöð 2.
„ Þættirnir eru skrifaðir af mikilli
snilld og þótt ég
þættist viss um hvað
gerðist næst hafði ég
aldrei rétt fyrir mér.
Toni Collette